Þjóðvakablaðið - 24.02.1995, Blaðsíða 3
ÞJÓÐVAKI
3
Réttlæti er allt sem þarf
„Að réttlæti í þjóðfélaginu auk-
ist. Því er fljótsvarað", sagði
Sigríður Rósa Kristinsdóttir frá
Eskifirði aðspurð um hvaða
vonir hún bindi við
Þjóðvaka."Eg hef þá trú að ef við
værum heiðarleg og legðum
græðgina á hilluna væri hægt að
lyfta Grettistaki í málefnum
láglaunafólks í þessu landi"
sagði hún og gat þess að nýgerðir
kjarasamningar væru nánast
hlægilegir."Þeir voru brjóstum-
kennanlegir samningsaðilamir
þegar þeir skælbrosandi, skrif-
uðu undir samning sem hljóðaði
upp á smánarhækkun fyrir
launþega með laun undir
fátækramörkum".
Hún kvaðst binda miklar vonir
við Þjóðvaka og var bjartsýn á að
þar myndi heiðarleikinn ráða
rikjum. „Heiðarleiki er lykilorð í
pólitík . Ef allir borguðu skattana
sína og efnamenn kæmust ekki
upp með að "kaupa" sig frá
skattgreiðslum með því að
fjárfesta endalaust í hlutabréfum
myndu vera til nægilegir pen-
ingar til þess að borga
láglaunafólki hærri laun. Hvaða
sanngirni var t.d. í því þegar
dómarar hækkuðu laun sín um
„litlar" 100 á mánuði fyrir
skömmu? Hefðu þeir peningar
ekki nýst betur í buddum
Sóknarkvenna sem búa við
smánarlaun?"
Sigríði Rósu var heitt í hamsi
þegar blaðamaður Þjóðvaka
talaði við hana kvöldið sem
alþingismenn þuldu upp afrek sín
í eldhúsdagsumræðum á þing-
inu."Hvað ætli þeir séu búnir að
eyða miklu vatnsmagni í að þvo
hendur sínar þessir karlar? Að
minnsta kosti hafa þeir verið
iðnir við að að lofa upp í ermina
á sér fyrir kosningar og þvo
síðan hendur sínar á eftir. En nú
er lag . Eg hef þá trú að Þjóðvaki
geti breytt ríkjandi ástandi svo
hið vinnandi fólk fari loksins að
njóta afraksturins í stað fárra
útvalinna.
x-j
Já,
takk
ÞJÓÐYAKI á Reykjanesi
Gengið hefur verið frá efstu sætum á framboðslista
Þjóðvaka í Reykjaneskjördæmi en þau skipa:
1. Ágúst Einarsson prófessor, Seltjarnarnesi
2. Lilja Á. Guðmundsdóttir kennari, Hafnarfirði
3. Jörundur Guðmundsson markaðstjóri Vogum
4. Bragi J Sigurvinsson starfsm. álverinu, Bessastaðahreppi
5. Sigríður Sigurðardóttir myndlistakona ,Kópavogi
6. Þorbjörg Gísladóttir húsmóðir, Hafnarfirði
7. Benedikt Sigurður Kristjánsson sjómaður, Hafnarfirði
8. Jan A. Ingimundarson,deildarsjóri, Mosfellsbæ
Kosningaskrifstofan er að
Reykjavíkurvegi 62 Hafnarfirði.
Símar eru 655740 og 655741 og
faxnrúmer 655742. Alfreð Guð-
mundsson hefur verið ráðinn
kosningastjóri. Skrifstofan er
opin frá mánudegi til föstudags
frá kl 16 - 19 . Á laugardögum
og sunnudögum er opið frá 14
-18. Lítið inn, hringið og fáið
send gögn.
Kosningabaráttan í kjördæminu
er hafin og nauðsynlegt er að
allir leggist á eitt að kynna stefnu
hreyfingarinnar. Verið er að
undirbúa blaðaútgáfu, dreifi-
bréfaútgáfu o. fl.
Kosningaskrifstofan verður
formlega opnuð með kaffi og
kleinum laugardaginn 25. febrúar
n.k. að Reykjavíkurvegi 62
Hafnarfirði. Mætum öll og ræð-
um horfur og útlit og skipuleggj-
um starfið framundan. Takið með
ykkur gesti. Hópar við allra hæfi.
Málefnafundir verða öll
þriðjudagskvöld kl. 20.30. Fyrsti
fundurinn verður um atvinnumál
þann 28 febrúar. Annar fundur
verður haldinn 7. mars. og þar
rætt um skólamál.
Framboðslisti Þjóðvaka í
Norðurlandskjördæmi eystra
við Alþingiskosningar 1995
1. Svanfríður Inga Jónasdóttir, forseti bæjarstjómar, Dalvík
2. Vilhjálmur Ingi Árnason, formaður Neytendafélags Akureyrar
3. Magnús Aðalbjörnsson, aðstoðarskólastjóri, Akureyri.
4. Helga Kristinsdóttir, bankastarfsmaður, Húsavík
5. Árni Gylfason, verkamaður, Raufarhöfn
6. Jórunn Jóhannesdóttir, leikskólakennari, Akureyri
7. Sæmundur Pálsson, forstöðumaður, Akureyri
8. Ingibjörg S. Egilsdótlir, sjúkraliði og bóndi, Reykadál
9. Gunnar R. Kristinsson, stýrimaður, Ólafsftrði
10. Jón Benónýsson, múrarameistari, Reykjadal.
11. Ásdís Árnadóttir, Akureyri.
12. Hannes Örn Blandon, sóknarprestur, Eyjafjarðarsveit.
Framboðslisti Þjóðvaka Norð-
urlandskjördæmi vestra til
Alþingiskosninga 8. aprfl 1995.
1. sæti Sveinn Allan Morthens, framkvæmdastjóri, Garðhúsum,
Skagafirði
2. sæti Jón Daníelsson, blaðamaður/bóndi, Tannastöðum
Vestur-Húnavatnssýslu
3. sæti Guðrún Guðmundsdóttir, þroskaþjálfi, Siglufirði
4. sæti Sturla Þórðarson, tannlæknir, Blönduósi
5. sæti Hólmríður Bjarnadóttir, form. verkal.fél. Hvatar
Hvammstanga.
6. sæti Kristín Jóhannesdóttir, bóndi, Páfastöðum,
Skagafírði
7. sæti Guðmundur Davíðsson, verkamaður Siglufirði
8. sæti Gyða Ölvisdóttir, hjúkrunarfræðingur, Blönduósi
9. sæti Erna Sigurbjörnsdóttir, verkakona Skagaströnd
10. sæti Björn Þór Haraldsson, gæðastjóri Hofsósi
ÞJÓÐVAKI
Jákvætt
pólitískt afl