Þjóðvakablaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 1

Þjóðvakablaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 1
Flotinn verður bundinn við bryggju á sjómannadaginn, hvort sem samkomulag hefur tekist í sjómanna- deilunni eða ekki. Tíminn er orðinn of naumur vegna helgarfrís sem hefst á há- degi á morgun, laugardag. Það var þungt hljóðið í Sævari Gunnarssyni, for- manni Sjómannasam- bandsins, þegar Þjóðvaki ræddi við hann í gærkvöldi. Hann sagði ekkert hafa þokast í ágreiningsmálum t.d. varðandi hafnarfrí, upp- sagnarákvæði undirmanna og starfsaldursálag. „Vinnuveitendur drógu lapp- irnar og höfðu í hótunum þær þrjár vikur sem liðu frá verkfallsboðun fram að verk- falli,“ sagði Sævar. „Dýrmætur tími fór þannig í súginn og ég lýsi fulli ábyrgð á hendur vinnuveitendum.“ Lækkum lágmarkstollana Gatt-málið: Ríkisstjórnin bregst neytendum og ofverndar landbúnaðinn. Þjóðvaki vill lœkka tollana á lágmarksinnflutningi Rikisstjómarflokkamir hafa með tollatíllögum sínum í Gatt-málinu sýnt að stefna þeirra snýst fyrst og síðast um að tryggja óbreytt ástand á sem flestum sviðum atvinnu- og efnahagsmála. Samkvæmt tíllögunum hafa neytendur engan hag af þeim breytingum sem leiða af nýja Gatt-sam- komulaginu, og ekki er nýtt það tækifæri til samkeppni sem hér skapaðist fyrir ís- lenskan landbúnað. í Gatt-samkomulaginu um landbúnaðarvörur er kveðið á um að aðildarríkin afnemi inn- flutningsbann og setji í staðinn tolla sem síðan séu lækkaðir á samningstímanum. Þannig er í raun reiknað með að ríkin minnki smám saman vernd við eigin landbúnað og gefi færi á vissri samkeppni á búvöru- markaði, þó án þess að um koll- steypur verði að ræða í at- vinnugreininni. Með nýrri tollastefnu í kjölfar Gatt-samkomulagsins gefst því færi á að móta til frambúðar landbúnaðarstefnu sem stefni bæði að því að styrkja þann hluta landbúnaðarins sem stað- ist getur samkeppni að utan og einnig að því að lækka búvöru- verð í landinu. í frumvarpi ríkis- stjórnarinnar örlar ekki á slíkri stefnumótun, heldur eru toll- arnir settir svo háir að varla verður um nokkurn innflutning að ræða á gildistíma samnings- ins til 2002. í samningnum er í grófum dráttum gert ráð fyrir tvenns- konar tollakerfi. Annarsvegar eru almennir tollar, sem víðast verða hafðir nokkuð háir til að verja innlendan landbúnað. Hinsvegar er svo tiltekið að hafðir skuli lægri tollar á inn- fluttri vöru sem nemi ákveðinni markaðshlutdeild í einstökum vöruflokkum, 3%-5% í lok samningstímans. Hugsunin er sú að þessi 3-5% verði sam- keppnishæf við innlendar bú- vörur í hverju ríki. I tillögum ríkisstjórnarinnar eru tollarnir á þessi 3-5% svo háir að varla verður um nokkurn mnflutning að ræða. Þannig er brotið gegn anda Gatt-samkomulagsins og um leið tekið fyrir að íslenskir neyt- endur hafi nokkurn hag af af- námi innflutningsbannsins. Þingmenn Þjóðvaka hafa í málflutningi sínum um Gatt- frumvarpið lagt mesta áherslu á að lækka tollana á 3-5%-in. í raun er landbúnaðinum enginn greiði gerður með ofvernd af því tagi sem frumvarpið gerir ráð fyrir. Þessi ofvernd seinkar nauðsynlegum breytingum í landbúnaði og minnkar getu hans til að laga sig að nýjum að- stæðum. Framtíðarstefnu fyrir land- búnaðinn Þingmenn Þjóðvaka telja að samfara tollaákvörðunum sé eðlilegt að móta landbúnaðar- stefnu til framtíðar þannig að íslenskur landbúnaður geti keppt við innfluttar búvörur með lágmarksstuðningi af opin- berri hálfu. í samráði við bænd- ur og neytendur þarf einkum að athuga þessa þætti: • Að endurskoða núverandi beingreiðslur til bænda og ná sátt um að afnema þær í áföngum. I staðinn komi í á- kveðinn tíma „grænar" greiðslur sem ekki tengjast framleiðslumagni en miðist m.a. við búháttabreytingar. • Að gera viðunandi verk- lokasamninga við bændur sem vilja hætta störfum. • Að afnema í áföngum nú- verandi kvótakerfi í helstu greinum landbúnaðar þannig að markaðurinn taki í framtíðinni við því eðli- lega hlutverki sínu að á- kveða verð og framleiðslu- magn. • Að tryggja að bændur og sölusamtök þeirra búi ekki við fákeppni eða einokun í versluninni. • Að stuðla að einfaldari og skilvirkari skipan í vinnslu og milliliðakerfi. • Að hefja öfluga markaðs- sókn fyrir útflutning þeirrar landbúnaðarvöru sem á raunhæfa möguleika á gæðamarkaði erlendis. • Að nýta tollaheimildir á innflutta búvöru þannig að íslenskur landbúnaður þró- ist við hæfilega samkeppni á aðlögunartímanum og bú- vöruverð lækki. Með ákvörðunum í þessa veru er hægt að ná fram lægra matarverði til neytenda og eðli- legri framtíðarskipan í landbún- aði. Verði látið sitja við óbreytt á- stand er hinsvegar hætt við að landbúnaðarkerfið hrynji á næstu áratugum með alvarleg- um afleiðingum fyrir bændur, búsetuþróun og þjóðarhag. Sendum sjómönnum bestu hamingjuóskir í tilefni sjómannadagsins!

x

Þjóðvakablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.