Þjóðvakablaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 8

Þjóðvakablaðið - 09.06.1995, Blaðsíða 8
ÞJÓÐVAKI RODD FOLKSINS ARG. 11. TBL. FOSTUDAGUR 9. JUNI 1995 % -r 'mWFILl/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar SAH mm am gmgm 88 55 22 Sumarhátíd Regnboginn, samtök um Ingólfstorg og eftir það tekur Reykjavíkurlista, gengst fyrir við stanslaust fjör fram eftir sumarhátíð í Grófinni á morg- degi. un, laugardaginn 10. júni. A bílastæðinu við hliðina á Hátíðin hefst með skrúð- Kaffi Reykjavík verður tívolí göngu frá Laugavegi 17 kl. fyrir börnin, Kvennakór 13:30. Gengið verður niður á Reykjavíkur syngur, Götuleik- Reykj avíkurlistans húsið skemmtir, leikhópurinn Leyndir draumar kemur fram og margt fleira verður til skemmtunar. Fyrir þá sem þurfa að finna réttu flíkina fyrir sumarið eða bók í sumarleyfið verður hægt að gera góð kaup á flóamarkaði allan daginn. Borgarfulltrúar Reykjavíkur- listans grilla pylsur fyrir gesti og gangandi og Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir borgarstjóri flytur ávarp. Um kvöldið leggja stuðnings- menn Reykjavíkurlistans undir sig Kaffi Reykjavík og kl. 21:00 hefst kvölddagskrá þar með fjöri fram eftir nóttu. Spaðar og Hljómsveit Tómasar R. Einars- sonar syngja og leika við hvern sinn fingur. „Græn“ ferða- mennska í þingsályktunartillögu sem Ásta R. Jóhannesdóttir hef- ur lagt fram er gert ráð fyr- ir að mótuð verði heildar- stefna í ferðamálum með „græna“ ferðamennsku að leiðarljósi, en ýmsir mark- aðsmenn telja að þar felist einn mesti vaxtarbroddur sem íslendingar eiga mögu- leika á í þessaii atvinnu- grein. í greinargerð með tillög- unni segir meðal annars að með „grænni ferða- mennsku“ sé átt við vist- væna eða sjálfbæra ferða- mennsku þar sem lögð er á- hersla á vistvænt umhverfi, að staðir haldi sínu upp- runalega útliti og heima- menn hafðir með í ráðum þegar ferðaþjónustan er skipulögð. „Það hefur einnig verið mikilvægur þáttur í vistvænni ferðaþjónustu að fá ferðamenn til að nota inn- lendar frcimleiðsluvörur, enda vilja ferðamenn sem aðhyllast þessa tegund ferðamennsku gjarnan reyna innlendar vörur. Þeir leggja einnig mikið upp úr að nota almenningssam- göngur og varast að mis- bjóða landinu með ágangi.“ íslendingar hafa meiri möguleika en flestar aðrar þjóðir til að laða til sín ferða- menn sem aðhyllast þessa tegund ferðalaga, en talið er að þeir séu tugir milljóna og fari ört fjölgandi. Markvissa stefnumótun vantar hins- vegar í íslenska ferðaþjón- ustu, segir Ásta í greinar- gerð sinni, „og rannsóknir í greininni eru í lágmarki. Ef við ætlum að byggja ferða- þjónustuna upp til að hún megi verða sem blómlegust um alla framtíð er nauðsyn- legt að huga að heildar- stefnumótun. Ella gætum við lent í sömu sporum og þær ferðamannaþjóðir sem hafa vanrækt stefnumörkun og búa nú við það ástand að búið er að kippa undirstöð- unum undan ferðaþjónustu þeirra.“ Hafðu ávallt einhvem traustan við höndina MOTOROLA 8200 Nýjasti og léttasti GSM síminn frá Motorola vegur aðeins 149 gr með minnstu gerð rafhlöðu. Sendistyrkurinn er 2 W. Flipi er á símanum sem lokar takkaborðinu. Hægt er að stilla á titrara i stað hringingar. Símanum fylgir fullkomið hleðslutæki . og tvær rafhlöður. / MOTOROLA ASSOCIATE 2000 Sterkur og kraftmikill farsími. Einfaldur í notkun. Sendistyrkur 15 W. 10 númera endurvals- minni. Langlínulæsing. Skammvalsminni fyrir 99 númer og nöfn. Öflug rafhlaða. íslenskar leiðbeiningar fylgja. Ýmiss konar aukabúnaður fáanlegur. MOTOROLA 7200 Viðurkennd Motorola gæði. Lítill og léttur GSM farsími sem vegur aðeins 240 gr. Flipi er á símanum sem lokartakkaborðinu. 100 númera skammvalsminni. Símanum fylgir fullkomið hleðslutæki og tvær rafhlöður. Islenskar leiðbeiningar fylgja. Fyrir NMT 450 farsímakerfið BENEFON DELTA 450i Lítill og léttur farsími frá Benefon sem vegur aðeins 350 gr. Skammvalsminni fyrir 99 númer og nöfn. 5 númera endurvalsminni. Sendistyrkurinn er 2 W. Hægt er að stilla hringingar. Ýmiss konar aukabúnaður fáanlegur. BEOCOM 9500 Beocom frá Bang & Olufsen. Úrvals hönnun og gæði. Beocom vegur aðeins um 225 gr og hentar þvi einstaklega vel í vasa og veski. Síminn er einfaldur I notkun og með 10 númera endurvalsminni. Hleðsluspennir fyrir rafhlöður og íslenskar leiðbeiningar fylgja. Fyrir NMT 450 farsímakerfið POSTUR OG SIMI

x

Þjóðvakablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.