Þjóðvakablaðið - 09.06.1995, Qupperneq 6
6
Þ J Ó Ð V A K I
Reglur um af-
mælishald opin-
berra stofhana
í fyrirspumatíma á Alþingi
beindi Asta R. Jóhannesdóttir
þeirri fyrirspum til forsætis-
ráðherra, hvort einhveijar
reglur væm til um afmælis-
hald opinberra stofnana og ef
ekki, hvort ekki væri rétt að
setja slíkar reglur. Hún visaði
til þess að nú fyrir skömmu
hefði verið haldið upp á 40 ára
afmæli Húsnæðisstofnunar
ríkisins með veisluhöldum í
Borgarleikhúsinu.
Ásta sagði ekkert við það að
athuga að opinberar stofnanir
gerðu sér dagamun á tímamót-
um, gerðu t.d. á einhvern hátt
vel við starfsfólk sitt. „Ég teldi
það auðvelda stjórnendum op-
inberra stofnana að hafa ein-
hverjar reglur um afmælishald,
t.d. hvort halda beri hátíð á 10
ára eða 25 ára fresti," sagði
Ásta.
„Þær ættu einnig að minnka
líkur á bruðli. Á niðurskurðar-
og sparnaðartímum, eins og nú
eru, teldi ég rétt að setja slíkar
reglur, sbr. reglur sem settar
voru á síðasta kjörtímabili um
tækifærisgjcifir hins opinbera."
Forsætisráðherra sagðist
telja svona reglur óþarfar.
Menn notuðu oft tækifærið á
tímamótum í fyrirtækjum og
stofnunum til að kynna starf-
semi sína. Hann lét þess getið
að ríkisstjórnin hefði átt mán-
aðar afmæli fyrir skömmu og
svaraði framíkalli úr salnum um
hvort þá hefði verið terta á
borðum, að svo hefði ekki verið
þar sem einn ráðherra í ríkis-
stjórninni væri enn í megrun.
„Ég hefði haldið að forsætis-
ráðherra tæki undir þörfina fyr-
ir slíkar reglur, því að þær ættu
að auka ráðdeild í ríkisrekstrin-
um, en dagana áður vorum við
einmitt að ræða á þinginu um
hið alvarlega ástand sem sparn-
aður á sjúkrahúsum gæti leitt
til,“ sagði Ásta. „Hann sagði í
stefnuræðu sinni að reka þyrfti
velferðarþjónustuna með ráð-
deild og skilvirkni. Eg vona að
það gildi einnig um aðra þjón-
ustu og rekstur hins opinbera."
S C ®
® ÚTBOÐ
F.h. Borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í fram-
leiðslu á 250.000 skógarplöntum. Um er að ræða 150.000
plöntur af birki, 75.000 plöntur af stafafuru og 25.000 plönt-
ur af sitkagreni.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 15. júní
1995, kl.14:00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
ÚTBOÐ
F.h. Byggingadeildar Borgarverkfræðings er óskað eft-
irtilboðum í 177m2 viðbyggingu við leikskólann Kvistaborg
við Kvistaland.
Verkið nefnist
„Útboð no: 558, leikskólinn Kvistaborg - viðbygging".
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, að Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, frá og með fimmtudeginum 8. júní, gegn
10.000 skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 27. júní
1995, kl. 11.00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800
Vaki, vaki...
Sjaldan er hægt að segja að
röksemdafærsla og málatilbún-
aður flestra þeirra sem til for-
ystu hafa valist í stjórnmála-
flokkum og hagsmunasamtök-
um ýmiskonar ríði feitum hesti.
Þeir birtast okkur landsföður-
legir í sjónvarpinu. Nær kom-
umst við ekki guðdómnum. Þar
vaða þeir moðreykinn af stakri
snilld án þess að blikna. Auðvit-
að vitum við að þeir eru bara að
plata. Vandinn er bara sá að
þeir eru svo fjandi sannfær-
andi.
í álverinu í Straumsvík geysar
vinnudeila. Ég má ekki opna
sjónvarp án þess að þar séu
ekki snillingar af ýmsu tagi að
tala um það hvað svona tiltæki
hjá starfsfólkinu hafi slæm áhrif
á alla þá peningamenn útí heimi
sem bíða í röðum eftir því að fá
að stækka álverið. Ég man ekki
betur en að óskasonur þjóðar-
innar, fyrrum iðnaðar- og við-
skiptaráðherra, hafi staðið á
haus í milljón kokkteilboðum (á
minn kostnað) útum allan heim
til að lokka sömu peningamenn
til að koma og stækka sama ál-
ver. En ó, allt kom fyrir ekki.
Það hafði einfaldlega enginn á-
huga. Samt voru engir leiðinda-
skarfar í starfsmannaskaranum
sem voru að hræða og pirra
peningamennina.
Og ég segi bara fyrir mig, að
ef þeim sem núna eru að vinna
þarna líkar ekki aðbúnaðurinn -
og fá hann ekki bættan, þá ætla
ég ekki að sækja um vinnu
þarna - þó það yrði stækkað.
Það virðist vera að nöldur-
seggjunum í álverinu hafi tekist
það ómögulega, a.m.k. það sem
Jóni Sigurðssyni var alls ó-
mögulegt, að fá útlendinga til
að stækka álverið. Fyrir það
ættu álversáhugamenn að veita
þeim verulegan bónus (úr eigin
vasa).
Þór Öm Víkingsson
Krossgátu- gerðin S: 5527911 Kvenna bósa h-| i R>'k Búk- hljóð Starf- rækti Geisla- H bjúp I Til
Yfir- gefa Slef
Borin
Eins 2 Nef Værð
Ryk
Teikning Halldór Andri eftirprentun bönnuð 1 Berg- mála ♦ Kasta Sevtlar
Kropp- aðar
Tugthús limimir 1 Mynni
Staka
Eftir Ryk Ouml 4 Emir
Skálmai
Huggar Kona Einnig Sker Brölta
Sefi Maður
Saumar 5 Hita- gjafar
Nisti
Gylling Fóstra
Álasa
Háð Skól- aðar Út- vega 7 Titill
Væl Guðir Erði Marr t
Áttund
Lausri 9 Vaft Stafur Ekki neinum And- aðist Doka 10
Tottar Varðandi
8 -► 3 J 52 vikur
Fugl Nafn- bót Utan Eima Blásir
Slæmir Blót
£ielt Mann ílát
Ríki- dæmi Harmijr
Ruml Skálin 6 T Röð Púki t
Hljóm
íþr.fél Pískum Núi 1
Skóli Æði
Sæl- gætið Tamdir
Fugl Tætt- ar 1 Biti
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
VERÐLAUNAKROSSGÁTA NR. 10
Þrenn glæsileg bókaverðlaun
Skrifið lausnarorð í númeruðu reitina neðst í krossgátunni. Færið vandlega inn nafn, heimili og
póstfang og skilið lausnarseðli til Þjóðvaka, Aðalstræti 9,101 Reykjavík, fyrir 5 júní nk. Nöfn vinn-
ingshafa verða birt í 12 tölublaði.
Vinningshafar fyrir krossgátu nr. 6. Lausnarorðið var ÁRANGURSLÍTILL
1. verðlaun: Jón Atli Játvarðsson, Hellisbraut 8 b Rhól, 380 Króksfjarðarnes.
2. verðlaun: Jóna Margrét Júliusdóttir, Hásteinsvegi 56a, 900 Vestmannaeyjar.
3. verðlaun: Kristinn Hraunfjörð, Tjarnarmýri 4, 170 Seltjarnarnes.