Þjóðvakablaðið - 09.06.1995, Side 7

Þjóðvakablaðið - 09.06.1995, Side 7
ÞJÓÐVAKI 7 og hraði bílsins í lok hennar var orðinn 152 km. Vélin var sú sama og í Syclone, það er 4,3 lítra V6 með forþjöppu og vatnsýrðum milli- kæli. Hestöflin sem náðust út úr þessum tilfæringum voru 280 en stimplar voru þeir sömu og prýða L98 5,7 lítra Corvettu-vél- ina. Skiptingin var fjögurra gíra Hydra-Matic 4L60 og kælikerfið var aukið og bætt þannig að hægt væri að halda eðlilegum vinnsluhita á olíum og sjálf- skiptivökva. Ætlun þeirra hjá General Motors var að framleiða 5000 bíla árið 1992, en ekki voru framleiddir nema 2500 bílar vegna Iítillar sölu. Árið 1993 seldust ekki nema 2200 bílar af þessari gerð og 1994 var hætt við frekari framleiðslu, þar sem salan hafði ekki náð því lág- marki sem þeir hjá GM höfðu ætlað að yrði. Ástæða þess að ekki seldust fleiri bílar af þess- ari gerð er líklega sú að verð þeirra var tæplega helmingi hærra en venjulegra GMC Jim- my 4X4 bíla. Þess er þó að vænta að ekki verði langt að bíða að þessi útfærsla verði að dýrmætum söfnunargrip og má þá búast við að fjárfesting sú sem bjartsýnir kaupendur lögðu í margfaldist á fáum árum. 1400 HESTAFLA VÖRUBÍLAR verksmiðjurn- ar eru nú komnar langt með hönnun á nýrri gerð af Fiat Tipo en hann er í næsta stærðarflokki fyrir ofan Punto. Hægt verður að fá Fiat Tipo hvort sem vill sem hlaðbak eða stallbak. Þó verksmiðjurnar séu ekki farnar að dreifa ljósmynd- um af bílnum má sjá teikningar í bílablöðum sem gefa sterklega til kynna hvers er að vænta þeg- ar bíllinn kemur á götuna. Bílinn verður hægt að fá sem hlaðbak eða stallbak. Ekki er kaupendum í kot vísað hvað varðar vélaúr- val en Tipo verður meðal annars fáanlegur með l,4 lítra 12 ventla 75 hestafla vél, l,6 lítra 16 ventla 90 hestafla vél og 1,8 lítra 16 ventla 113 hestafla vél. Er fram líða stundir verður að auki hægt að fá hann með 2,0 lítra 147 hestafla vél og með 90 hestafla turbo díselvél. Þeir hefðu ekki slegið hend- inni á móti 1400 hestafla vöru- bílum, gömlu harðjaxlarnir sem óku á Þrótti í kringum stríðið. Hvað þá ef hægt hefði verið að bjóða upp á þá vegi sem nú eru alla jafna farnir Það er víst að Batti rauði, Örn á öxlinni, Jón snari, Addi ágæti Valur Þor- geirs og Fiffaló hefðu notið þess að láta gamminn geysa ef verk- færin sem þeim stóðu til boða hefðu verið eitthvað í lfkingu við þá eðalsjón sem sjá má á myndinni hér að ofan. Þegar verið er að ræða um 1400 hestafla vörubíl og við- bragð úr kyrrstöðu í 100 km hraða á 6,2 sekúndum má ætla að sumir þeirra hefðu orðið nokkuð þvalir í lófum f akkorðs- keyrslu þeirri sem þá var við lýði. nema 10,6 lítrar á 100 km og er full ástæða til að benda ágætum umhverfisráðherrum nú og í framtíð á að umhverfisvænni fjallabíl ervartað finna í þessum stærð- arflokki. Hráar hestaflatölur í síðasta tölublaði sem sýndu þróun Cosworth-vélanna vöktu nokkur viðbrögð og var rit- ari þessa þáttar beðlnn að birta upplýsingar um við- bragð og/eða hraða hinna ýmsu bíltegunda. Birtist hér fyrsti listinn. Verksmiðjufraraleiddir ðbreyttir bílar. tegund. árgerð 1 O A 1 0- !00 km 1. Lamborghini Diablo 2, Porche 911 Turbo 1991 1993 4,4 sek 4,4 sek 3. Dodge Viper RT/10 4. Lotus Turbo Esprite X18t 5. Ferrari 512 TR 1993 1991 1992 4.5 sek 4.6 sek 4.7 sek 6. Lotus Esprite Turbo S4 7. GMCSyclone 8. Porche Turbo 1993 1991 1991 4.8 sek 4.9 sek 4,9 sek 9. Toyota Supra Turbo 1993 4,9 sek 0. Chevrolet Corvetta ZR-1 1993 5,2 sek 1. Nissan 300 ZX Turbo 1993 5,2 sek Árið 1991 breyttu þeir hjá General Motors pallbíl af gerð- inni GMC Sonoma og kölluðu hann GMC Syclone. Þeir settu bílinn á götuna og skemmtu sér við að velgja eigendum bíla í hraðakstursflokki undir uggum, en bíllinn var rétt tæpar 5 sek- úndur að ná 100 km hraða úr kyrrstöðu. Viðbragðið var betra en hjá nokkrum gerðum af Ferrari og Porche, ásamt all- mörgum kerrum frá hinum ýmsu framleiðendum. Álitið var að pallbíllinn sem slíkur yrði ekki mikill sölubíll og annara leiða yrði því að leita. Sú ákvörðun var tekin að hita upp 2 dyra fjórhjóla drifna GMC jeppann Jimmy og láta reyna á sölumöguleika hans. Að breytingum loknum var hann nefndur GMC Typhoon og var hann tæplega tæplega 100 kílóum þyngri en pallbíllinn (Pic Up). Snerpan varð því sek- úndubrotum slakari en hjá Syclone. Kom það ekki að sök því því þrátt fyrir það var hann sneggri úr kyrrstöðu og upp í 100 km hraða en ofurbílarnir Ferrari 348, BMW M5 og Must- anginn með 5,0 lítra vélinni. Viðbragðið frá 0-100 km hraða var ekki nema 5,3 sekúndur, 1/4 míluna fór hann á 14,1 sekúndu Opel Vectra Ný og endurbætt gerð af hinum ágæta Opel Vectra er nú að koma á markað, bíllinn er framleiddur með vélar frá 1,6 lítra 75 hest- afla vél upp í 2,5 lítra V6 170 hestafla vél. Fljólega verður hann svo fáanlegur með 90 - 110 hestafla disel- vélum en þær koma sem viðbót við 82 hestafla vél- ina sem nú er fáanleg.

x

Þjóðvakablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.