Þjóðvakablaðið - 18.09.1996, Qupperneq 8

Þjóðvakablaðið - 18.09.1996, Qupperneq 8
Au^lÝsinga- síiiiiiin or 552 «100 Ágúst Einarsson (f. 1952) er sonur Einars ríka sem var bæjar- fulltrúi í Vestmannaeyjum og varaþingmaður fyrir Sjálfstæðis- flokkinn en afar sjálfstæður í við- horfum. Einar setti sterkan svip á atvinnulífssögu íslendinga á þessari öld. Ágúst sonur hans hefur fjallað mjög um atvinnu- og efnahagsmál í stjómmálaaf- skiptum sínum. Áður en hann settist á þing fyrir Þjóðvaka starf- aði hann sem prófessor í við- skiptafræði við Háskóla íslands auk ótal annarra starfa í stjómum fyrirtækja, ráða og stofnana. Ágúst hafði áður setið á þingi fyrir Alþýðuflokkinn 1978-79. Sem jafnaðarmaður úr umhverfi atvinnurekstrar hefur Ágúst stundum verið umdeildur, en hefur hvarvetna notið mikils trúnaðar í stjórnmálasamtökum jafnaðarmanna. Hann var t.d. gjaldkeri Alþýðuflokksins, í stjóm Bandalags jafnaðarmanna og er ritari Þjóðvaka. Ásta R. Jóhannesdóttir (f. 1949). Afi hennar var sá skáld- mælti alþingismaður og ráðherra Bjami Ásgeirsson, þingmaður Vestlendinga. Ásta Ragnheiður var deildarstjóri í Trygginga- stofnun ríkisins og vann að mál- efnum skjólstæðinga stofnunar- innar þannig að aðdáun og eftir- tekt vakti. Ásta Ragnheiður var í mörg ár í forystu framsóknar- manna í Reykjavík og skipaði sér jafnan í sveit frjálslyndra og sam- einingarsinna á þeim bæ. Hún vann mjög að sameiginlegu fram- boði vinstri manna í borgarstjóm- arkosningum og er í stjóm Regn- bogans, félags um Reykjavíkur- lista. Ásta Ragnheiður var kjörin á þing fyrir Þjóðvaka 1995 og hefur vakið sérstaka athygli fyrir góðan málatilbúnað, t.d. í heil- brigðis og tryggingamálum, og glaðbeitta og sterka málafylgju svo á þingi sem í fjölmiðlum. Gísli S. Einarsson (f. 1945) á eins og svo margir þingmenn jafnaðarmanna ættir að rekja vestur á firði, en hann er fæddur í Súðavík. Gísli er vélvirki og starfaði ámm saman sem slíkur hjá Sementsverksmiðjum ríkisins sem og sem yfirverkstjóri. Gísli hefur tekið virkan þátt í félags- málum, hann var kosinn bæjar- fulltrúi á Akranesi 1986, var þar forseti bæjarstjómar 1991-92. Gísli hefur verið alþingismaður síðan árið 1993. Hann er traustur liðsmaður og ósérhlífinn í barátt- unni fyrir betri kjömm launa- fólks. Málatilbúnaður hans um launamun á þinginu í fyrra vakti t.d. veralega athygli. Guðmundur Árni Stefánsson (f. 1955) er úr mikilli þing- mannafjölskyldu. Faðir hans, Stefán Gunnlaugsson, og bræður hans, Finnur Torfi og séra Gunn- laugur, hafa allir setið á þingi. Fyrr á ámm starfaði Guðmundur Ámi við blaðamennsku en var ungur kjörinn til mikils trúnaðar í Hafnarfirði. Hann leiddi Alþýðu- flokkinn til glæstra sigra þar í bæ og var bæjarstjóri þar frá 1986 til 1993. Guðmundur Ámi var heil- brigðisráðherra frá 1993-94 og félagsmálaráðherra frá júní til nóvember 1994 þegar hann sagði af sér eftir mikinn hamagang í fjölmiðlum. Guðmundur Ámi var í traustum sessi sem leiðtogi jafn- aðarmanna í Hafnarfirði, en stóð um hríð veikt sem ráðherra þar til hann sagði af sér. Hann nýtur mikils trúnaðar áfram, hefur ver- ið þingmaður Reyknesinga frá 1993 og varaformaður Alþýðu- flokksins hefur hann verið frá árinu 1994. Jóhanna Sigurðardóttir (f. 1942) er af eðalkrataættum. Faðir hennar var þingmaður Alþýðu- flokksins og forstjóri Trygginga- stofnunar ríkisins. Amma hennar, Jóhanna Egilsdóttir, var áratug- um saman verkalýðsleiðtogi í Reykjavík. Sjálf var Jóhanna í forystu fyrir flugfreyjum á sínum tíma sem og Verslunarmannafé- lag Reykjavíkur. Jóhanna er með einna mesta þingreynslu í þingflokki jafnað- armanna, hefur setið á þingi frá árinu 1978. Hún var félagsmála- ráðherra samfellt frá árinu 1987 til 1994. Þá var hún varaformað- ur Alþýðuflokksins frá 1984-93. Jóhanna hefur löngum verið nefnd einn helsti fulltrúi sígildrar jafnaðarstefnu. Hún er afar stað- föst og fylgin sér. Ágreiningur um útfærslu hinnar sósíaldemó- kratisku stefnu í samstjóm Sjálf- stæðisflokks og Alþýðuflokks átti ríkan þátt í að leiðir skildi með Jóhönnu og félögum hennar í Alþýðuflokki og leiddi einnig að nokkm til stofnunar Þjóðvaka á sínum tíma. Jón Baldvin Hannibalsson (f. 1939) á rætur í verkalýðshreyf- ingu og vinstri armi jafnaðar- mannahreyfingarinnar fyrr á öld- inni. Hannibal faðir hans og Finnbogi Rútur föðurbróðir heyrðu til vinstri armi Alþýðu- flokksins og urðu viðskila við flokkinn svo sem eins og Jóhanna síðar og margir fleiri. Jón Bald- vin hóf stjórnmálaferill sinn sem róttækur sösíalisti, var formaður Félags róttækra stúdenta, for- maður Félags alþýðubandalags- manna en fylgdi föður sínum og frændum úr Alþýðubandalagi til stofnunar Samtaka frjálslyndra vinstri manna. Og síðar lá leiðin í Alþýðuflokkinn. Jón Baldvin hefur í rúman ald- arfjórðung starfað í stjómmála- lífi, var t.d. bæjarfulltrúi á ísa- firði 1971-78, varaþingmaður Vestfirðinga 1975 og 1978, rit- stjóri Alþýðublaðsins 1979-82, og alþingismaður Reykvíkinga samfellt frá árinu 1982. Ráðherra frá 1987-91. Jón Baldvin hefur verið formaður Alþýðuflokksins frá árinu 1984 og hefur enginn verið lengur formaður Alþýðu- flokksins í áttatíu ára sögu hans frá því Jón Baldvinsson frændi hans hélt um stjómvölinn frá 1916 til 1940. Lúðvík Bergvinsson (f. 1964) er af eðalkrataættum. Guðmundur Oddsson bæjarfulltrúi og for- maður framkvæmdastjórmar Al- þýðuflokksins er föðurbróðir hans. Afi Lúðvíks, Oddur Sigur- jónsson skólastjóri var sömuleið- is til framboðs í sveitarstjómar- og þingkosningum. Oddur var ritfær vel og skrifaði m.a. í Al- þýðublaðið. Lúðvík kom nokkuð snaggara- lega inn á svið stjómmálanna með framboði sínu til Alþingis í síðustu kosningum, og er þannig séð nýliði í stjómmálum. Lúðvík er lögfræðingur og starfaði sem slíkur hjá fógeta í Vestmannaeyj- um. Þá var hann deildarstjóri hjá Rannsóknarlögreglunni og síðast en ekki síst yfirlögfræðingur í umhverfisráðuneytinu í ráðherra- tíð Össurar Skarphéðinssonar 1994-95. Rannveig Guðmundsdóttir (f. 1940) er líka fædd á ísafirði eins og svo margir í trúnaðarstörfum fyrir krata og hún hefur lengi ver- ið í forystu Alþýðuflokksmanna í sveitarstjómarmálum. Hún var í bæjarstjórn Kópavogs frá 1978- 88 og í stjómum ráða og nefnda á vegum bæjarins. Rannveig varð alþingismaður árið 1989 og félagsmálaráðherra 1994-95. Á flokksvettvangi hef- ur hún notið hins mesta trúnaðar. Hún var varaformaður Alþýðu- flokksins 1993-94 og formaður þingflokks Alþýðuflokksins frá 1992 með hléi. Hún var einróma kjörin formaður hins nýja þing- flokks jafnaðarmanna. Sighvatur Björgvinsson (f. 1942) er enn einn úr þeim hópi sem á bakgrann sinn í hreyfingu jafnaðarmanna á Isafirði. Þar var faðir hans skólastjóri og bæjar- fulltrúi (eins og t.d. Hannibal fað- ir Jóns Baldvins og Grímur faðir forseta lýðveldisins). Sighvatur hefur frá unglingsaldri starfað að stjómmálum í hreyfingu jafnað- armanna og ljóst að hann stefndi langt. Ferill hans er í samræmi við þessi viðmið. Hann var t.d. formaður FUJ, starfmaður Al- þýðuflokksins, og ritstjóri Al- þýðublaðsins 1969-74. Sighvatur var fyrst kjörinn á þing 1974 og sat þá til 1983. Og aftur var hann kosinn 1987 og hefur setið samfellt frá þeim tíma. Meðan hann sat eldd á þingi var hann framkvæmdastjóri Norræna félagsins á íslandi. Sig- hvatur varð fyrst ráðherra fjár- mála 1979-80, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, iðnaðar- og viðskiptaráðherra 1991-1995. Sighvatur var formaður þing- flokks Alþýðuflokksins 1978-83, en hefur fram að þessu ekki verið í stjóm Alþýðuflokksins sjálfs. Svanfríður Inga Jónasdóttir (f. 1951) var framan af stjómmála- þátttöku sinni í hreyfingu jafnað- armanna í þeim anga sem nefnist Alþýðubandalag og gegndi for- ystustörfum frá upphafi. Hún var fyrst kjörin í bæjarstjóm Dalvík- ur 1982 og var í bæjarstjórn fyrst til 1992 og síðan frá 1994 fyrir sameinaða jafnaðarmenn þar í bæ. Svanfríður tók þátt í stjóm- málaandófi svonefndrar lýðræð- iskynslóðar innan Alþýðubanda- lagsins með baráttu fyrir upp- stokkun og sameiningu jafnaðar- manna og var kjörin varaformað- ur Alþýðubandalagsins 1987. Þeim starfa gegndi hún í tvö ár. Hún var aðstoðarmaður Ólafs Ragnars Grímssonar fjármálaráð- herra 1988-91. Svanfríður Inga tók þátt í myndun Þjóðvaka, var kosin varaformaður á stofnfundi 1995, kjörin á þing í síðustu kosning- um, formaður þingflokks Þjóð- vaka og var einróma kjörin vara- formaður hins nýja þingflokks jafnaðarmanna. Össur Skarphéðinsson (f. 1953) er að vísu sonur hægri sinnaðs valinkunns sjálfstæðismanns, en hneigðist sjálfur til uppreisnar í föðurgarði og gerðist liðsmaður í hreyfingu róttæklinga á unga aldri. Össur var í forystu stúd- entahreyfingarinnar meðan hún lét mjög að sér kveða. Hann var í forystu lýðræðiskynslóðarinnar í Alþýðubandalaginu á sínum tíma sem hefur haft forystu um að sameina hina ýmsu krafta úr hreyfingu jafnaðarmanna á síð- asta áratug. Hann var ritstjóri Þjóðviljans 1984-87 á því tíma- bili sem reynt var að auka blaðinu sjálfstæði frá flokksfor- ystu og hann tók síðar þátt í því að stofna félagið Birtingu til að auka veg frjálslyndis og búa í haginn fyrir frekari uppstokkun og sameiningu jafnaðarmanna. Hann tók einnig þátt í því að mynda Nýjan vettvang, undan- fara Reykjavíkurlistans. Össur hefur verið í miðstjóm Alþýðu- bandalagsins og flokksstjóm Al- þýðuflokksins og hann var um hríð þingflokksformaður Al- þýðuflokks (1991-93). Alþingis- maður var hann kjörinn 1991 og var umhverfisráðherra á ámnum 1993-95.

x

Þjóðvakablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðvakablaðið
https://timarit.is/publication/312

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.