Vikublaðið - 22.07.1994, Page 1
Trúnaður fjölmiðla
Tímarit selur auglýsendum
þann trúnað sem það hefur hjá
lesendum. Ljósvakamiðlar
brjóta lög í samkeppninni um
auglýsingafé.
Bls. 5
13.000 fá aðstoð
Um 12.700 borgarbúar munu í
ár þurfa á fjárhagsaðstoð „Féló“
að halda. Það er um 12,4%
borgarbúa eða áttundi hver
Reykvíkingur.
Bls. 3
Angst
um den áob > J 5
' m£ lÉi
HagfraBðingaþræta
Umræða hagffæðinga um
ástæður atvinnuleysis hefur leitt
til endurskoðunar á hugmynd-
inni um samkeppni milli þjóða
og að hún ráði afkomu þeirra.
Bls. 9
28. tbl. 3. árg.
22. júlí 1994
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Embættismenn borgarinnar
klekkja á námsmönnum
Borgarhagfræðingur dylgjar um óeðlilegan kostnað og segir óánægju ríkja
með starf Nýsköpunarsjoðs. Borgarfulltrúar kannast ekki við neina óánægju.
Fiyrr í sumar neitaði Eggert
Jónsson borgarhagífæðingur
að taka við erindi Stúdenta-
ráðs til atvinnumálanefndar borg-
arinnar og er hann þó starfsmaður
nefndarinnar. Borgarhagfraeðingur
hefur sagt Stúdentaráði að óánægja
sé með störf Nýsköpunarsjóðs
námsmanna en borgarfulltrúar í at-
vinnumálanefnd kannast ekki við
það að borgaryfirvöld séu óánægð
með starf sjóðsins. Eggert og und-
irmenn hans hafa undanfamar vik-
ur gert sér far um að leggja stein í
götu Nýsköpunarsjóðs námsmanna
en fram að borgarstjómarkosning-
um var samstarfið hnökralaust
milli Reykjavíkurborgar og náms-
manna.
Um miðjan júní sendi starfsmaður
Nýsköpunarsjóðs atvinnumálanelhd
Reykjavíkurborgar erindi þar sem
óskað var eftir aukafjárveitingu fyrir
sjóðinn sem stofhaður var til að veita
námsmönnum sumarvinnu. Eggert
Jónsson borgarhagffæðingur er
starfsmaður atvinnumálanefndar og
sem slíkur neitaði hann að taka við er-
indinu. Rök Eggerts vom þau að at-
vinnumálanefnd hefði enn ekki verið
skipuð og þar af leiðandi væri engin á-
stæða til þess að taka á móti erindum
til hennar. Þetta segir Nikulás Einars-
son deildarhagfræðingur, en Eggert
lætur hann svara fyrir embættíð.
Pétur Jónsson borgarfulltrúi og
formaður atvinnumálanefndar furðar
sig á afgreiðslu borgarhagfræðings og
segir hana slæma embættisfærslu.
Erindi Nýsköpunarsjóðs fór fyrir
borgarráð sem vísaði því til atvinnu-
málanefhdar. Þar tóku borgarhag-
ffæðingur og hans undirmenn við er-
indinu og fettu fingur út í ýmis atriði
þess. I kjölfarið komu bréfaskipti og
símtöl milli borgarhagfræðings og
starfsmanns Nýsköpunarsjóðs þar
sem embættið lýstí yfir óánægju borg-
aryfirvalda með starf sjóðsins.
Oánægja embættismanna kom flatt
upp á námsmenn sém höfðu staðið í
þeirri trú að sátt ríkti um sjóðinn sem
var stofnaður fyrir þrem árum. Engin
formleg kvörtun hafði borist frá borg-
aryfirvöldum vegna fyrri styrkja en
borgin lagði fram til sjóðsins 6 millj-
ónir króna vorið 1993 og aðrar 6
milljónir í apríl í vor.
Nikulás Einarsson deildarhagfræð-
ingur segir að embættið hafi ekki ver-
ið ánægt með þær upplýsingar sem
námsmenn gáfu um það hvernig
styrkfé borgarinnar hefði verið notað
á liðnu ári en ekkert gert í rnálinu fyrr
en í sumar. Nikulás hefur engar skýr-
ingar á því hvers vegna embættíð hafi
ekki gripið í taumana fyrr og krafið
Nýsköpunarsjóðinn um skýringar.
- Það þýðir ekki að láta vitleysuna
halda áffam endalaust, segir Nikulás
og telur hugsunarleysi og vankunn-.
áttu þeirra sem fara með sjóðinn vera
ástæðu þess að upplýsingar um starf-
semi hans séu ógreinilegar og mis-
vísandi.
Pétur Jónsson, formaður atvinnu-
Hæstaréttarhúsi mótmælt
I „Það er ekki of seint að stöðva bygginguna þótt byrjað sé að grafa. Ég minni á
I* kirkjuna í Kópavogi. Það sem máli skiptir er að það verður að koma í veg fyrir
menningar- og skipulagsslys og leita fyrir alvöru að nýjum stað fyrir Hæstarétt.
Við erum mjög óánægð með framgöngu dómsmálaráðherra í þessu máli. Hann
hunsaði viðræðunefnd borgarinnar og hunsar vilja mikils meirihluta Reykvík-
inga. Það er óþolandi", segir Kristín Ástgeirsdóttir.
Jón Baldvin Hannibalsson utan-
ríkisráðherra hefur farið offari í
Evrópumálum og þverbrotið gegn
samþykktri stefhu Alþingis og rík-
isstjómarinnar. Talsmenn Alþýðu-
bandalagsins krefjast þess að Al-
þingi verði kallað saman til að fá úr
því skorið hvort sú stefha sé ekki
lengur í gildi sem mörkuð var fyrir
rúmu ári um tvíhliða viðræður við
Evrópusambandið.
Jón Baldvin Hannibalsson hefur
síðustu daga og vikur boðað aðildar-
umsókn Islendinga að Evrópusam-
bandinu í erlendum fjölmiðlum. Hér
heima hefur Jón Baldvin heldur dreg-
ið úr og ekki viljað kannst við það sem
effir honum er haft í evrópskum dag-
blöðum. Þó sagði utanríkisráðherra í
fréttatíma Stöðvar 2 á mánudag að
hann teldi að íslendingar ættu að
sækja um aðild að Evrópusambandinu
jafnvel þó að Norðmenn myndu fella
aðild í þjóðaratkvæðagreiðslu í nóv-
ember.
- Utanríkisráðherra í þingbundinni
ríkisstjórn getur ekki hagað sér eins
og Jón Baldvin hefur gert án þess að
Alþingi bregðist við. Það er nauðsyn-
legt að þingið verði kallað saman til að
fá það á hreint hvort stefnan sem var
mörkuð vorið 1993 sé áffam í gildi. Þá
var samþykkt að ef Norðurlönd
myndu ganga inn í Evrópusambandið
rnyndu íslensk stjórnvöld leita eftír
tvíhliða samningum við sambandið,
segir Steingrímur J. Sigfússon vara-
formaður Alþýðubandalagsins.
Iljörleifur Guttormsson þingmað-
ur segir framgöngu utanríkisráðherra
vera feigðarflan og málflutning hans
illa undirbyggðan.
- Jón Baldvin vísar tíl fiskveiði-
samnings Evrópusambandsins við
Norðmenn en hann er ekki gott for-
dæmi fyrir Islendinga. Við gætum
aldrei samþykkt viðlíka samning og
raunar er það svo að Jón Baldvin er
orðinn skeleggri talsmaður samnings-
ins en norskir ráðherrar, segir Hjör-
leifur Guttormsson.
I norskum sjávarútvegi er bullandi
óánægja með fiskveiðisamninginn
enda eru ákvæði um yfirráð Norð-
manna yfir fiskimiðum sínum aðeins
tímabundin. Um aldamót gætu Norð-
menn staðið ffammi fyrir því að evr-
ópsk fiskiskip geri út á hefðbundin
mið norskra sjómanna.
Hjörleifur Guttormsson: Feigðarflan hjá
utanrikisráðherra.
Alþingi komi böndum
á Jón Baldvin
málanefhdar, kannst ekki við að borg-
aryfirvöld séu óánægð með starfsenii
Nýsköpunarsjóðs. Annar nefndar-
maður, Arthur Morthens, kannst
heldur ekki við neina óánægju.
I bréfi sem Eggert Jónsson skrifaði
borgarráði lætur hann að því liggja að
kostnaður við sumarstörf námsmanna
sé óeðlilega hár. Frá Nýsköpunarsjóði
fást hinsvegar þær upplýsingar að tæp
98 próserit af því fé sem sjóðurinn
hefur til ráðstöfunar renni tíl náms-
manna í formi launa.
Nýsköpunarsjóður námsmanna
hefur fengið styrki frá ráðuneytum og
öðrum sveitarfélögum. Engar athuga-
semdir hafa borist frá þessum aðilum.
Eftir tafir og óþægindi fékk Ný-
sköpunarsjóður fyrir nokkrum dögum
800 þúsund króna aukafjárveitingu frá
Reykjavíkurborg og gat notað fjár-
hæðina til að styrkja sumarverkefhi
námsmanna.
Samkvæmt upplýsingum frá Stúd-
entaráði munu um 100 námsmenn fá
sumarvinnu á vegum Nýsköpunar-
sjóðs. Talsmenn námsmanna vildu
ekki ræða samskiptí sín við embætti
borgarhagfræðings.
Friðrik gegn
íþróttahúsi
„Ég vil ekki tala um óánægju
og það hefur lítið upp á sig að
kalla ráðherrana í ríkisstjóm-
inni vonda karla. Þetta er mikið
hagsmunamál og spuming um
að finna lausn með góðu sam-
komulagi“. Þetta segir Þor-
bergur Aðalsteinsson landsliðs-
þjálfari í handbolta, HSÍ-maður
og varaborgarfulltrúi Sjálfstæð-
isflokksins, aðspurður um nei-
kvæða afstöðu fjármálaráðherra
gagnvart því að leggja fjármagn
á móti borgarsjóði í byggingu
nýs íþróttahúss.
Borgarráð hefur samþykkt fyrir
sitt leyti að leggja allt að 270 millj-
ónir króna í nýtt íþróttahús sem
yrði tílbúið fyrir heimsmeistara-
keppnina í handbolta hér á landi á
næsta ári, en Friðrik Sophusson
fjármálaráðherra segir ríkissjóð
lausan allra rnála og segir einfald-
lega að borgin hafi samþykkt að
byggja hálft hús.
Þorbergur bendir á að nýtt til-
boð um vel viðsættanlegt hús sé
væntanlegt og að kostnaðurinn
yrði innan ranuna þess sem borg-
arsjóður hefur samþykkt. „Þá
þurfúm við ekki á ríkinu að halda“.