Vikublaðið


Vikublaðið - 22.07.1994, Side 5

Vikublaðið - 22.07.1994, Side 5
VIKUBLAÐIÐ 22. JULI 1994 Trúnaour til sölu Á liðnurn vetri birti tímaritið Nýtt líf umfjöllun um nýja þjónustu Búnaðar- bankans sem bank- inn greiddi fyrir en greinin um bank- ann var sett upp á sama hátt og ann- að ritstjórnarefni og ekki merkt sem auglýsing. Morgun- blaðið birtir reglu- lega lofgreinar um iðnfyrirtœki sem valin eru af lista sem Samtök iðnað- arins láta blaðinu í té. Dæmin hér að ofan eru brot á venjum og siðum heiðarlegr- ar blaðamennsku eins og hún er skilin víðast hvar á Vesturlöndum. Viðskipti Nýs lífs eru handan alls vel- sæmis en „samstarfsverkefhi Samtaka iðnaðarins og Morgunblaðsins,“ eins og það heitir í ársskýrslu Samtaka iðn- aðarins, ber ffemur vitni um dóm- greindarleysi en spillingu. I báðum tilvikum er farið á bakvið lesendur sem standa í þeirri trú að textinn sé skrifaður milliliðalaust af blaðamönnum og án utanaðkomandi forskriftar. Nýtt líf býður auglýsend- um til sölu þann trúnað sem tímaritið hefur hjá lesendum sínum en Morg- unblaðið sýnir af sér hirðuleysi í um- gengni við lesendur. Gullveig Sæ- mundsdóttir ritstjóri Nýs lífs kallar sölumennskuna „kynningu" og vill ekki kannast við að lesendur séu blekktir. Fæstir íslenskir fjölmiðlar ganga jafn langt í sölumennsku og Nýtt líf en flestir skemur en Morgunblaðið sem gerir sér far uin að aðskilja rit- stjórn og auglýsingadeild. Sá aðskiln- aður er ein mikilvægasta forsendan fýrir sjálfstæði ritstjórnar. Eitt og sér er það ekki nóg og með samstarfmu við Samtök iðnaðarins, sem ekki er auglýsingaaðili, er Morgunblaðið að ffamselja ritstjórnarvald til utanað- komandi þó í óverulegum mæli sé. Ljósvakamiðlarnir eru undirlagðir hverskyns dagskrárliðum sem aug- lýsendur kosta. Dagskrárliðurinn tek- ur gjarnan mið af þörfum auglýsand- ans en ekki áhorfenda eða hlustenda. A Aðalstöðinni er þáttur í hádeginu á virkum dögum um ferðalög innan- lands „í boði Edduhótelanna.“ I öðr- um tilfellum kaupa auglýsendur nöfn þátta til að ffíkka ímynd sína með því að kenna sig við dagskrána, samanber Visa-sport á Stöð 2. Fréttastofa Stöðvar 2 hefur uppi viðleitni til að aðgreina sig frá þeirri venju fyrirtækisins að gera ekki grein- armun á dagskrárefhi og auglýsing- um. Þegar Jón Arsæll Þórðarson var ráðinn á fféttastofuna varð hann að gangast undir það skilyrði að hætta að lesa inná sjónvarpsauglýsingar. (Aug- lýsingar sem birst hafa undanfarið með rödd Jóns Arsæls eru dubbaðar með gömlum upptökum.) Siðvæðing Stöðvar 2 hefst kl. 19:19 og lýkur fljótlega eftir klukkan átta með F.iríki Jónssyni. Eiríkur stýrir viðtalsþætti og les sjónvarpsauglýs- ingar í aukavinnu enda ekki undir aga siðareglna fréttastofunnar. Ahorfend- um er látið það eftir að átta sig á því að ekki eru gerðar sömu kröfur um sið- vendni öl Eiríks og fréttamanna. En hvers vegna skiptir það máli að greina á milli auglýsinga og utanað- komandi áhrifa annarsvegar og rit- stjórnarefnis hinsvegar? Kaupskapur og blaða- mennska Fyrir 20 árum hugðist bandaríska fyrirtækið Xerox Corporation kosta tfmaritsgreinar. Fyrirtækið dró ekki fjöður yfir endanlegt markið kostun- arinnar, að bæta ímynd þess, en vildi engu að 'síður standa eins heiðarlega að verki og mögulegt var. Það gerði kröfu um óflekkað mannorð blaða- mannsins sem tæki verkið að sér og gott orðspor tímaritsins. Lesendum yrði gerð skýr grein fyrir kostuninni og blaðamanni greitt fyrirffain og hann látinn vita að aðeins væri um að ræða eitt verkefni og Xerox myndi ekki eiga ffekari viðskipti við hann, burtséð frá því hvaða álit fyrirtækið hefði á greininni. Einnig var ö'marit- inu tryggt óskilyrt ritstjórnarvald yfir verkefiiinu. A þessum forsendum ætlaði Xerox að kosta blaðamann og ö'marit til að skrifa og birta áhugaverðar greinar fyrir almenna lesendur. En það kom hik á yfirmenn almannatengsla fyrir- tækisins þegar gamall maður í smá- bænum Ellsworth í Maine skrifaði les- endabréf í staðarblaðið og gagnrýndi verkefhið. Maðurinn hét E.B. W'hite og var alla sína starfsævi rithöfundur á tímaritinu New Yorker; skrifandi menn og konur voru kallaðir rithöf- undar á New Yorker en ekki blaða- menn. White er jafnffamt meðhöf- undur að útbreiddasta kennslukveri um sö'l á enskri tungu, The Elements of Style. Xerox var nógu stórmannlegt til að bjóða White að útskýra í ítar- legra máli sjónarmið sín og þannig varð til texti sem Bandaríkjamenn telja sígilda vörn fýrir frjálsa og heið- arlega blaðainennsku. White segir bandarísk dagblöð og n'marit vera nýt og áreiðanleg vegna fjölbreytileika þeirra en ekki af þeirri ástæðu að þau séu góð í eðli sínu. Annað býr að baki. „Svo lengi sem eigendur eru margir og leggja sig hver eftir sínum sanninduin á almenningur kost á að nálgast sannleikann. Dreift eignarhald skiptir sköpum. Það eru forréttindi í okkar frjálsa þjóðfélagi að hafa aðgang að hundruðum prent- miðla sem hver um sig heldur í eigin sannfæringu. Titlafjöldinn er trygg- ing: Blöðin afhjúpa glópsku og sér- visku hvers annars, leiðrétta mistök hvers annars og rétta af fordóma hvers annars,“ skrifar.White. Hann ræðir síðan áhrif þess að fyr- irtæki eða efnaðir einstaklingar kosti greinar í blöð. Eignarhaldið verði tví- ræðara, blaðið hafi þegið ölmusu og í vissum skilningi sagt sig til sveitar. Þótt ritstjóri mótmæli og segist bera fulla ábyrgð sé það staðreynd að reikningurinn sé greiddur af öðrum. Og af þeim gjörningi fljóti meira. „A- vallt þegar peningar skipta um hendur fylgir eitthvað annað ineð, eitthvað ó- áþreifanlegt sem er breytilegt efdr að- stæðum." White segir kostun bjóði upp á spillingu og þó að Xerox reyni að gera sitt til að draga úr þeirri hættu verði ekki á móti því mælt að þegar búið sé að setja fórdæmið muni aðrir og ó- vandaðri aðilar koma í kjölfarið og gera sér mat úr kostun. Stórfelld kost- un á ritstjórnarefni dagblaða og ö'ma- rita gæti eyðilagt frjálsa pressu. Dag- blöð og tímarit verði að halda ffelsi og sjálfstæði til að þau geti þjónað hlut- verki sínu. Kostun vegi að hvorttveggja. Til að gera langa sögu stutta: White sannfærði yfirmenn almanna- tengsla Xerox um að þeir gerðu al- menningi ógagn með fyrirætlunum sínum um að kosta n'maritsgreinar og þeir hættu við þó að það hefði í för með sér nokkur óþægindi. Lögmál auglýsinga- sjónvarps E.B. Wltite einskorðaði sig við prenöniðla þegar hann greip til varn- ar gegn áhlaupi kostunaraðila. White, sem lést nýlega háaldraður, þekkti lít- ið til ljósvakamiðla. Arið 1975, þegar bréfaskipti White og Xerox stóðu yfir, var líka fullseint að andmæla kostun í sjónvarpi. Aratugahefð var komin íyr- ir kostun í bandarísku sjónvarpi. Sjónvarp er afurð bandarískrar fjöldamenningar og skiljanlega, eða illu heilli eftir því hvernig á það er lit- ið, hafa menningarvitar eins og White ekki haft mikinn áhuga á að ræða fyr- irbærið. í Bandaríkjunum er talað um gullöld sjónvarpsins þegar það hafði á dagskrá efni sem einhver alvara var á bakvið, til að mynda uppfærslu á leik- ritum og vandaða heimildarþætti. Gullöldin stóð stutt og leið undir lok fljótlega eftir seinni heimsstyrjöld þegar sjónvarpið var innlimað í neysluþjóðfélagið. Einkenni þeirra tiltölulega fáu menningarrýna sem ómaka sig við að hugsa um sjónvarp er að þeir fyllast svartsýni. Einn slíkur er Neil Postman og ástæða er til að rifja upp og endur- segja fáein orð sem hann lét falla fyrir nokkrum árum um auglýsingasjón- varp: Hvað gerist þegar auglýsingasjón- varp heldur innreið í samfélag þar sem áður var aðeins opinber sjónvarps- stöð? I fýrsta lagi verður þrýstingur á að lengja daglegan útsendingaro'ma. Það eru einfaldlega of inikilir peningar í spilinu til að láta bróðurpart dagsins ónýttan. Efrir að ein stöð er komin í rekstur verður þess krafist að aðrar stöðvar verði settar á laggirnar. Til að halda á- horfendum mun ríkisrekna sjónvarps- stöðin keppa við þær einkareknu með svipaðri dagskrá sem byggir á hröðurn og spennandi dagskrárliðum með á- herslu á skemmtilegum ímyndum en síður á alvarlegu innihaldi. Þetta þýðir að skemmtiþáttum fjölgar og efni með ofbeldj, bílaelting- arleik og kynlífi verður meira áber- andi. Auglýsingar sem í ríkisreknu sjónvarpsstöðinni voru birtar í klasa á milli dagskrárliða munu þrengja sér inn í sjálft dagskrárefnið. Auglýsinga- sjónvarp gengur út á það að blanda auglýsingum saman við aðra dagskrá. Það merkilega við þessi orð Post- mans er að þau voru sögð um það bil sem Stöð 2 var að slíta barnsskónum á íslandi, á fundi sem hann átti með austurrískum íhaldsmönnum árið 1987. Og ekki verður betur séð en forspá Postmans fýrir Austurríki hafi gengið efrir á Islandi. % Þegjandi samkomulag um lögbrot Starfshópur Neytendasamtakanna skilaði nýlega af sér skýrslu um skörun auglýsinga og annars efnis fjölmiðla. Starfshópurinn einbeitti sér að ljós- vakamiðlunum og komst að þeirri niðurstöðu að „alltof algengt sé að auglýsingar skarist við annað efni, bæði löglega og í blóra við lög og reglur." Þá keinur eftirfarandi ffam í niður- stöðu skýrslunnar: „Algengt er að útsending dagskrár- liða sé rofin vegna auglýsinga án þess að heimild til þess finnist í út\'arpslög- um. Akvæði útvarpslaga um bann við duldum auglýsingum er brotið með ýmsum hætti. Algengt er að auglýsendur öðlist aðgang að notendum fjölmiðla í miðj- um dagskrárliðum með gjafir, verð- launum og þess háttar." Um skoðun starfshóps Neytenda- samtakanna á kostuns segir í skýrsl- unni: „Bein þátttaka utanaðkomandi aðila í kostnaði vegna dagskrárgerðar er afar vandmeðfarin og gemr haft ó- æskilegar afleiðingar. Hún er heimil samkvæmt útvarpslögum en hefur ítr- ekað birst í myndum sem hvorki sam- rýmast vilja Alþingis eins og hann birtist í útvarpslögum [...] né hugsun- inni sem að er að baki þeim reglum sem gilda í þessum efhum á evrópska efnahagssvæðinu [...] Sömuleiðis stangast ýmislegt í framkvæmd kost- unar á við reglur Rílrisútvarpsins um kostun dagskrárefnis.“ Skýrsla Neytendasamtakanna dreg- ur upp dökka mynd af samkrulli aug- lýsenda og ljósvakamiðlanna. I sam- keppni um auglýsingafé hefur mynd- ast þegjandi samkomulag á milli Stöðvar 2 og Ríkissjónvarpsins um að sjálfsagt sé að brjóta lög og reglur sem settar eru til að vernda almenning fýr- ir auglýsingaöfgum. Þegjandi samkomulag um þögn Eignarhald fjölmiðla hér á landi er nógu dreift til að uppfýlla þau skilyrði sem E.B. White nefhdi, að fjölmiðlar bæti hvern annan upp með aðhaldi. En það hefur ekki gengið eftir á Is- landi að fjölmiðlar fjalli um störf hvers annars á gagnrýninn hátt. Fjölmiðlar segja fféttir um allt milli himins og jarðar en undanskilja sjálfa sig, sem er kyndugt þar eð fjölmiðlar eru með mikilvægari stofnunum samfélagsins. Morgunblaðið hélt úti síðu um fjöl- miðla í sunnudagsútgáfu sinni fýrir nokkrum misserum. A síðunni var gagnrýnu ljósi annað slagið beint að starfsháttum fjölmiðla og meira að segja var fréttaskrifum í Morgunblað- inu brugðið undir sama ljósker við lít- inn fögnuð ritstjóra. Fjölmiðlasíðan var lögð niður og þess vegna er það tvískinnungur hjá leiðarahöfundi Morgunblaðsins sem skrifar þann 17. júlí síðastliðinn um nauðsyn þess að „fjallað sé um vinnubrögð fjölmiðla almennt." Vettvangur þeirrar umfjöll- unar hlýtur að vera fjölmiðlarnir sjálf- ir, annars verður hún óburðug skúma- skotaumræða. Litlar útgáfur taka ekki þátt í þegj- andi samkomulagi stóru fjölmiðlanna. Uppeldi, tímarit um börn og fleira fólk, birti í 3. tölublaði 1992 yfirlýs- ingu þar sem segir að einn þáttur rit- stjórnarstefnu blaðsins sé „að hafna samningum um að hrósa vörum eða þjónustu fýrir greiðslu. Það er því miður ekki óalgengt á íslenskum aug- lýsingamarkaði að fjöliniðlum séu boðin veruleg auglýsingaviðskipti ef þeir sýna auglýsendum sérstaka vel- vild í umfjöllun. Slíka samninga gerir ritstjórn Uppeldis ekki.“ Vilmundur heitinn Gylfason þing- maður og áhugamaður um siðbót blaðamennskunnar kom með þá skýr- ingu að blaðamenn væru lítill hópur sem tengdist vina- og kunningjabönd- um og það væri ástæða þess að þeir veittu ekki hverjir öðrum aðhald. Fleira kemur til. Blaðainenn sem stétt taka þátt í því vafasama athæfi að þiggja veglegar gjafir frá fjársterkum aðilum. Þekktastar eru utanlandsferð- ir Flugleiða og á sumum fjölmiðlum er litið á þær sem kaupauka. Og svo geta inenn spurt sig hvaða áhrif það hefur á umfjöllun um Flugleiðir að stór hluti íslenskra blaðamanna hefur þegið gjafir fýrir tugþúsundir króna frá fýrirtækinu. Páll Vilhjálnisson

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.