Vikublaðið - 22.07.1994, Page 7
VIKUBLAÐIÐ 22. JÚLÍ 1994
Kapítalisminn
7
kvæmdastjóri Skífunnar tók í sama
streng og báðir töluðu þeir um að
með þessu verði hægt að koma á meiri
hagræðingu í rekstri beggja fyrirtækj-
anna.
Pétur Kristjánsson sem hefur starf-
að bæði hjá Skífunni og Steinari og
vann einnig um stundarsakir hjá Spori
segir að vissulega sé um samkeppni að
ræða. Hann viti til þess að það hafi
verið samkeppni milli fyrirtækjanna
um að ná til sín til listamönnum og
einnig sé samkeppni milli búðanna.
Pémr bætir því við að fyrirtækin séu
með aðskilið fjárhaldsbókhald og að
auðvitað ákveði Steinar sjálfúr hvað
hann gefi út. „Maður verður að gefa
honuin það að hann ráði einhverju."
Pétur segir einnig að Steinar hafi
ýinislegt það til að bera sem geri það
að verkuin að Jóni Olafssyni sé aklcur í
því að vinna með honum. „Steinar er
mun meiri markaðsmaður, hann er al-
ger „pro“ í útgáfu og innflutningi. Jón
er meiri fjármálaspekúlant og svona
„big boss“. Við þetta bætist að þau
sambönd sem Steinar hefur aflað sér
við erlend útgáfufyrirtæki byggja mik-
ið á persónulegum kynnum.“ Vill Pét-
ur þá meina að Jón Olafsson þarfnist
Steinars? ,Já, ef hann ætlar að halda á-
fram í þessum útgáfubransa."
Maður sem um langan aldur stóð
að útgáfu og innflutningi segir við
okkur að víst sé Steinar Berg titlaður
framkvæmdastjóri, en hann fái aðal-
lega að sjá um listrænu hliðina og ráði
engu í peningamálunum. Þetta passar
vel við þá skoðun Péturs að Steinar sé
markaðsmaðurinn en Jón fjármála-
maðurinn. Þessi heimildarmaður okk-
ar heldur áfram og segist vel geta í-
myndað sér að Steinar hverfi smám
saman í skuggann. ,JVlér heyrist á
starfsmönnum í kringum Jón að bein-
Iínis sé gert ráð fyrir því. Hann sé bara
þarna til þess að byrja með.“
„Þetta þjóðfélag snýst um
peninga"
Bubbi Morthens hefur verið á
samningi hjá Gramminu og Steinari
og er nú hjá Skífunni. Hann segir um
stöðu Steinars Berg í þessarri nýju
samsteypu að víst megi segja að hann
sé orðinn Iaunaður starfsmaður hjá
Jóni Olafssyni.
Eftir því sem ffam hefur komið í
blöðum þá á Jón Olafsson helming í
Sporinu. Heimildarmenn okkar telja
líklegt að hann eigi meira. Að minnsta
kosti er augljóst að það. er honum í
hag að Sporið græði - hann fær a.m.k.
50% af hagnaðinum - og þess vegna
muni hann aldrei gera neitt sem geti
komið því illa. Líklegra er að um sam-
starf sé að ræða þannig að bæði fyrir-
tækin græði sem mest og það er lykil-
atriðið. Minna má á umrnæli hans í
Heimsmynd 1987: „Þetta þjóðfélag
snýst um peninga. Tengsl við valda-
kjarnann eru í gegnum peninga. Því
meiri peninga þvf meiri tengsl." Þessi
ummæli koma mjög vel heim og sam-
an við það sem Jón er nú að gera í
Stöð 2/Bylgjunni.
Helsti samkeppnisaðili Spors/Skíf-
unnar á sviði sölu, innflutnings og
dreifingar á tónlist er Japis. Fram-
kvæmdastjóri Japis sagðist í viðtali við
DV í vor vera sannfærður uin að
Steinar og Skífan hafi lengi haft sam-
ráð uin verð og að yfirtaka Jóns á
Steinari komi þeini hjá Japis ekkert á
óvart.
Hann segir einnig að aldrei inuni
verði samkeppni á milli þessarra fyrir-
tækja. Allt sé nú á hendi Jóns Ólafs-
sonar.
Hvað segir Samkeppnis-
stofnun?
Ilefðu þessi tvö fyrirtæki verið al-
veg sameinuð þá hefði það brotið í
bága við ný samkeppnislög. Þar
stendur m.a. í 18. grein að ef Sam-
keppnisráð telji að sainruni fyrirtækja
eða yfirtaka fyrirtækis á öðru leiði til
markaðsyfirráða þess, dragi verulega
úr samkeppni og sé andstæð mark-
miði laganna, geti ráðið ógilt sainruna
eða yfirtöku sem þegar hefur átt sér
stað. I sömu grein segir einnig:
„Akvörðun um ógildingu skal taka
eigi síðar en tveimur mánuðum eftir
að samkeppnisyfirvöldum varð kunn-
ugt um samrunann eða yfirtökuna.“
Okkur er kunnugt um að Sam-
keppnisstofnun átti ffumkvæði að því
að skoða málið og leitaði meðal ann-
ars álits Japis á því. Mánuðirnir tveir
liðu og ljóst að Samkeppnisstofnun
gaf þar með grænt ljós. Samkeppnis-
stofhun starfar eftir samkeppnisregl-
um EES-samningsins. Sú skilgreining
sem viðurkennd er hjá Evrópu-
sambandinu segir að 60% markaðs-
hlutdeild sé nægileg sönnun fyrir
markaðsráðandi stöðu og að 40%
hlutdeild í markaði geti yfirleitt leitt
til hins sama, sérstaklega ef afgangur
markaðarins skiptdst á mörg smærri
fyrirtæki. I ljósi þessa hlýtur hið
græna ljós Samkeppnisstofnunar að
vekja furðu og virðist Sainkeppnis-
stofnun hafa stungið þessu máli end-
anlega í skúffú. Kannski sýnir þetta
aðeins hve klár Jón Olafsson er og hve
góðan aðgang hann hefur að lögfræð-
ingum.
Jón Olafsson virðist hafa fúndið
stórt gat á samkeppnislögunum.
Flestir viðmælenda okkar vona - rétt-
lætisins og tónlistarinnar vegna - að
bráðum verði saumað í það gat. Þá
hafa menn ekki síst í huga ummæli
Jóns sjálfs: „Að auki held ég að það sé
ekki hollt fyrir neinn að verða alráður
á markaðinum...“
1S
Nesjavallavirkjun
Nesjavallavirkjun er opin til skoðunar alla daga frá
kl. 10:00-12:00 og 13:00-17:00 fram til 1. septem-
ber.
Tímapantanir fyrir hópa í síma 98-22604 eða 985-
41473. Vetrartími auglýstur síðar.
Hitaveita Reykjavíkur
Laxárstöbvar
Kröflustöð
'auneyjafossstöð (
Sigöldustö
■
■
u
A LAUGARDAG
Það er bæði skemmtilegt og fróðlegt
að skoða virkjanir Landsvirkjunar.
Laugardaginn 23. júlí kl. 13-17
verða eftirtaldar stöðvar til sýnis:
Búrfellsstöð, Hrauneyjafossstöð,
Sigöldustöð, Laxárstöðvar og
Kröflustöð.
L
LANDSVIRKJUN
úifellsstöð
Tæplega 2 klst. akstur fra Reykjavik