Vikublaðið


Vikublaðið - 22.07.1994, Page 10

Vikublaðið - 22.07.1994, Page 10
10 VIKUBLAÐIÐ 22. JULI 1994 Á tlaldngi Það er ýmislegt greipt í minnið eftir heimsmeistarkeppnina í fótbolta, þar sem allir milljóna- mæringarnir voru að leika sér. Sá sem þetta skrifar fylgdist með hverjum einasta leik sem sýndur var. Hann hefur líka stdgið á stokk og strengt nokkur heit. Hér eru nokkur þeirra: 1. Hann ædar aldrei að drekka Pepsi Max. 2. Hann ædar aldrei að panta sér pepperoni pizzu frá Pizza Hut. 3. Hann ædar aldrei að kaupa máln- ingu frá Sjöfn eða Málningu. 4. Hann ætlar aldrei að fá sér Motorola farsíma. 5. Hann ædar aldrei að kaupa Reach munnskol. 6. Hann ædar aldrei að kaupa Dubbel Dusch. 7. Hann ædar aldrei að kaupa John- sons P.H. 5.5 8. Hann ædar aldrei að kaupa Sega tölvuleik. 9. Hann ædar aldrei að fá sér Trópí, Snickers, Gillette rakdót, Steni húsaklæðningu, Timotei sjampó, MacFranskar, Pál Oskar og Millj- ónamæringana. lO.Einkum ædar hann aldrei að kaupa Kodak vegna auglýsingar- innar um hugljúfar minningar þar sem Björgvin Halldórsson setur heimsmet í ömurlegu væli. Hann var einnig hálfnaður með að heita því að kaupa aldrei bensín og olíu ffá Olís, Esso og Skeljungi, en mundi þá eftír því að séríslenskur kap- ítalismi gerir eldd ráð fýrir því að þú getir keypt bensín og olíu frá öðrum aðilum. Olíufélögin þrjú eiga markað- inn og skipta kökunni bróðurlega á milli sín. Essó fær rúm 40 prósent, Skeljungur um 30 prósent og Olís rúm 25 prósent. Svona er það og svona verður það. Gildir einu hvað þér finnst um samspil skógrækt- ar/náttúruverndar og mengunarvald- andi afurða olíufélaga. Og það þýddi lítið að heita því að fara aldrei vestur til Bandaríkjanna eða austur tíl Evrópu með Flugleið- um. Séríslenskur kapítalismi sér fýrir því að í fæstum tilfellum getur maður valið um flugfélag. Nokkrir áfanga- staðir bjóðast hjá SAS, en eins og allir vita stendur það í lögum og reglu- gerðum að landsmenn eigi að versla við Flugleiðir. í hálfleik úrslitaleiksins voru met slegin og 37 auglýsingar sýndar, sem flestar virðast hafa tílheyrt „HM- pakka“, sem tryggði sýningu á auglýs- ingu í hverjum einasta leik. Þegar maður sest niður og hugsar málið svona eftir á þá uppgötvar maður að nokkrar auglýsingar sárvantaði í pakk- ann. 1. Það vantaði alveg dömubindaaug- lýsingarnar ffábæru. 2. Það sárvantaði hinar yndislegu Ariel Ultra auglýsingar. Sjálf heimsmeistarakeppnin var svona la la. Urslitaleikurinn olli tölu- verðum vonbrigðum, það lá við að maðtðLsofnaði á köflum. Það sem mestilíkiptir er að álögunum var létt af Brásilíumönnum, sem voru búnir að bíða eftír meistaratigninni í aldar- fjórðung. Hér á Islandi er tíl fótbolta- félag sem hefur verið í álögum í aldar- fjórðung eins og Brassararnir. Það er KR. Brasilíumenn unnu úrslitalcikinn fýrst og fremst vegna þess að allir þeir liðsmenn sem ekki tóku vítaspyrnur hópuðu sig saman á hliðarlínunni og fóru með galdraþuiu. KR-ingar ættu að taka upp á því að signa sig. Eða fá ásatrúarsöfhuðinn á hliðarlínuna. f lins önn Rithöndin Mannelskur og gj öfull fagurkeri Góð sjálfstjórn og öguð framkoma sést í skriftínni þinni. Þú munt vera fagurkeri og hafa góðan smekk. Fíngerð list hrífur huga þinn. Þú ert mannvinur og tilfinningamaður og á- kaflega gjöfull. Þrátt fýrir þetta eða kannski vegna þess virðistu láta smá- muni hafa óþarflega sterk áhrif á þig. Aðalatriðin geta týnst í aukaatriðun- um. Þú hefur yndi af söng og rómantík. Það mun liggja í ættum þínum. Þér fellur vel að umgangast margt fólk, hefur áhuga á öllum og umgengst alla eins. Þú heldur ekki hlutum tíl streitu ef það kostar illindi. Þá brosir þú bara, minnugur þess að „vægir sá sem vitið hefúr meira.“ Verkefni þín mega ekki taka of langan tírna, þá finnst þér ekld varið í þau lengur. Þú lýlcur þeim þó, en ekki með glöðu geði. Þú berð virðingu fýr- ir fortíðinni, gerir þér ljóst að hún er undirstaða nútímans og vitnar oft í hana. Þú ert líklegur tíl að ná góðum ár- angri og koma miklu í verk. Þú vinnur skipulega og markvisst. Helst ættirðu að vinna að listum, menningarmálum eða skipulagsmálum að öðrum kosti. Ef þú átt böm muntu láta þau að mestu sjálfráð. r, Gangi þér vel. R.S.E. Arni isleifsson, tónlistarkennari og jazzari. A Clockwork Orange frumsýnt í Sumarleikhúsinu í kvöld Sumarleikhúsið við Hlemm frumsýnir í kvöld, 22. júlí, A Clockwork Orange/Vélgengt Glóaldin eftir Anthony Burgess. Verldð fjallar í stuttu máli um bemskubrek, barsmíðar og Beethoven. Leikritið segir frá Alex, fimmtán ára ung- lingi sem hlustar á Beethoven og talar rússneskuskotið unglingaslangur milli þess sem hann nauðgar og misþyrm- ir samborgurum sínum. Hann lendir í fangelsi eftir að hafa verið svikinn af vinum sínum. Þar undirgengst hann með- ferð sem gerir honum ókleift að beita nokkurn ofbeldi. Höfundurinn varpar ffam hugleiðingum um eðli manns- ins, hvort það sé ekki einmitt ófullkomleikinn sem gerir mann að skyni borinni'veru. Hann spyr spurninga um firelsi mannsins og rétt hans til að velja og lætur áhorfendum eftír að hugsa um að svara þeim. Leikritið drepur á mörgum málefnum sem brenna á fólki, svo sem ofbeldi, atvinnuleysi og auknu rótleysi í þjóðfélaginu. Leikstjóri er Þór Tulinius og þýðandi verksins er Vetur- liði Guðnason. Ljósahönnuður er Sigurður Guðmunds- son, Linda Björg Amadóttir hannar búninga og Ólafúr Ami Olafsson og Auður Jónsdóttir sjá um leikmynd. Aðal- hlutverk er í höndum Gottskálks Dags Sigurðarsonar og Atriði úr verkinu, sem Sumarleikhúsið frumsýnir í kvöld. F.v. Sigurður Guðmundsson, Soffia Bjarnadóttir, Gottskálk Dagur Sigurðarson og Guðmundur Andrós Erlingsson. Þorláks Lúðvíkssonar. Forsaga Sumarleikhússins er að Sigurður Guðmundsson og Gotsskálk Dagur Sigurðarson sóttu um styrk tíl Borgar- ráðs tíl leiklistarstarfs fýrir ungt atvinnulaust skólafólk í Reykjavík og em nú um 30 manns starfandi á vegum Sum- arleikhússins. Hjar Setjið rét síðasta bl tagá ta stafi aði er A itan reitina tómstöf neðan við krossgátuna. Þeir mvnda þá nafn á veðurathugunarstöð. Lausnarorð krosseátunnar í ðin. Tm 2 5 (ú 7- 2 S 2 lo )o 6L" I/ /3 ¥ /¥ /8 5 7- llo 17 13 T~ 18 /9 ‘10 f n ¥— 22— ¥ 7T~ 2V 4 V 3 20 7T T~ 25 23 3 JT~ 9 V /¥ ? ¥ 10 <3 3 Zí 8 15 l'é V 22 27 27 3 8 5 W~ 15 ■77 17- lf * ÍÉ 17 15 15 V 3 12 20- 7 T L J(ú 3 17 8 T~ T~ s^ 24 ?z— 10 10 S? 21 /7 )5 % JT~ w~ l'i T~~ 8 6" 7¥— W~~ 3 S? w 7 |7J II 73 ¥ 1J W~ 13 JT~ 7¥— T~ 7— 2T~ JS~ 5 7 77" 13 /■ 7’ 'Í 3 ¥ 8 10 13 12— 7¥ 10 25 25 /3 23 3 12 JO ir~ 3 V 7T~ 2f 8 s? 3 S^ 'f 13 Z'i T~ 22 T~ 2É 3 s? 13 n 3 22 Y 5 T~ 20 kr~ T. 30 Tl '°K 2 32 % '3 r )*> ? 8 *> / Eg rakst á gamlan og góðan kunningja í laugunum hér um daginn. Hann lá afvelta í heitum potti þegar ég kom að og lét þotustrauma leika um hrygginn á sér. Eg spurði hvort hann væri eitt- hvað dasaður eftir sundið. - Sundið! svaraði hann með fýrir- litningu. Ég ætti nú ekki annað eftir en fara að þvælast erindisleysu yfir þessa laug. - Jæja, þú verður að afsaka, þú virtíst eitthvað dasaður. - Dasaður er ekki rétta orðið. Ég þurfti aðstoð til að komast hingað og ég á von á að þurfa aðstoð til að komast héðan ef ég þá á annað borð þrauka mikið lengur í þessum tára- dal. - Hvaða dramatik er þetta eigin- lega, varstu settur í að umstafla pottaplöntum um helgina. - Já, það er svo sem þér líkt að gera gys að deyjandi vini þínum. En svarið er nei, ég var ekki í potta- plöntunum. Hins vegar ertu ekki ýkja fjarri réttu lagi því konan dró mig með í helgarheimsókn tíl nokk- urra kexruglaðra ættíngja sinna sem búa útí í sveit. Hún sagði að við hefðum gott af því að breyta aðeins til. Þú veist nú hvað ég er hrifinn af því að fara út á meðal frumbyggj- anna, ómögulegur maður ef ég sé ekki blokk einhvers staðar, svo ég svaraði boðinu kurteislega neitandi. Ég sagðist ekki hafa hugsað mér að nota mínar fáu ffístundir til að þvælast í illalyktandi húsakynnum, innan um torkennileg hljóð í verð- andi umframframleiðslu. Auk þess væri svo langt síðan ég hefði lesið Tímann og Urval að ég væri ekki samræðuhæfur á menningarbýlum landsins. Þetta fannst mér nú nokkuð gott hjá mér en konan var á öðru máli. Hún sagði að ég væri uppblásin snobbari og ég hefði gott af að kynnast fólki sem ynni fýrir sér á heiðarlegan hátt. Og þetta jókst orð ffá orði þar til ég var búinn að lofa því að fara með. En þvílík martröð. Vissirðu að þetta lið er byrjað að heyja? Ég hélt að það væri eitthvað sem gert væri á haustin. En nei, nei, bullandi heyskapur og hvað held- urðu að þessir skrattakollar geri. Ég ætlaði í rólegheitum að leggjast í sólstól við íbúðarhúsið og „njóta náttúrunnar" þegar mér er í mestu vinsemd boðið að taka þátt í hey- skapnum. Og andmæli mín voru ekki tekin alvarlega, þau héldu að ég væri feiminn þegar ég baðst undan þátttöku. Hvernig heldurðu að þínum gest- um yrði við ef þeir væru varla komnir inn fýrir dyr þegar þeir væru settir í að þrífa klósettið eða laga perustæðið eða spurðir hvort þeir hefðu ekki nokkra skennntun af því að bóna bílinn þinn? Ætli vin- unum fækkaði ekki snarlega. En þetta var greinilega siður þarna í kýrlandi. Ég held að ég hafi sjaldan komist í hann jafn krappan. Við komum á föstudagssíðdegi og fórum á sunnu- dagskvöldi. Og það var stíf vinna allan tímann. Nema rétt yfir blánóttina, einn til tvo tíma. Og þá var hvort eð er ekkert hægt að sofa fýrir lóugargi. Eg gat ekki rnætt í vinnu í morgun. Gott ef ég kemst nokkurn tíma aftur til heilsu. Jón Baldvin fær sko mitt atkvæði næst. Þær eru þjóðhættulegar þessar sveitir. _

x

Vikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.