Vikublaðið


Vikublaðið - 22.07.1994, Side 11

Vikublaðið - 22.07.1994, Side 11
VIKUBLAÐIÐ 22.JÚLI 1994 11 Greedy ★★ V2 Sýnd í Háskólabíó Leikstjóri: Jonathan Lynn Aðalhlutverk: Michael J. Fox, Kirk Douglas, Olivia D'Abo, Nancy Travis Heiðursmennirnir Lowell Ganz og Babaloo Mandel (Parent- hood, City Slickers) eru handritshöf- undar sem hvað mest hafa stundað að skrifa mannlegar grínmymdir sem eru þeim eiginleikum gæddar að sannfæra jafnvel þá þunglyndustu um ágæti lífs- ins og tilverunnar. Það kann því að stinga í stúf þegar félagarnir senda ífá sér farsa sem íjall- ar um einn af breyskleikum mann- kyns, græðgina. Þessari frumhvöt mannsins eru gerð ágæt skil í mynd- inni, enda túlkar leikhópurinn ein- hvern gráðugasta flokk af persónum sem prýtt hefur hvíta tjaldið. Reyndar eru margar af persónunum það gráðugar að það kemst ekkert annað að og eru þær því einnar víddar en íyrst um farsa er að ræða sleppur það svosem fyrir horn. Michael J. Fox er orðin ansi vanur því að leika miskunnsama Samverjann (sbr. Casualties of War) og til að byrja ineð er eins og hlutverk hans í þessari mynd sé að stemina stigu við græðginni í hinum persónunum. Sem betur fer kernur fljótt í ljós að hann er sami gróðapúkinn inn við beinið og allir hinir. Myndin hefði orðið all óbærileg ef hann hefði lent í hlutverki einhvers sáttasemjara. Leikstjórinn Jonathan Lynn kemst skammlaust frá sínum hluta þó svo að síðasta mynd hans, My Cousin Vinny, hafi verið betur heppnuð. Leik- hópurinn ofleikur af kappi eins og vaninn er í försum sem þessum og þjónar sínum tilgangi bara vel. Þó svo að yrkisefhi Mandel og Ganz Sé ill- skilgreinanlegt seni mannlegar dyggðir hafa þeir greinilega ekki getað slitið sig ffá góðmennskunni. Þau atriði þar sem þeir reyna að höfða til hjartarótanna í fólki eru einmitt veikustu hlekkir myndarinnar. Betra hefði verið að halda sig alfarið við græðgina og sjálfselskuna sem er skemmtilega túlkuð á köflum og sleppa allri annarri tilfinningasemi. Myndin flýgur best áffam þegar per- sónurnar eru sem gráðugastar og skrikar bara fætur þegar einhverjir aðrir straumar eru í gangi. Eins og Ganz og Mandel er von og vísa endar myndin á farsælan hátt og verður þar hálfgerð kúvending á persónu Fox sem virkar frekar ótrúverðugt. En ffarn að sykursætum endinum er myndin ágæt skemmtun og ágætt að horfa á hrægamma og skíthæla á hvíta tjaldinu svona til tilbreytingar. Reality Bites ★★ V2 Sýnd í Bíóborginni Leikstjóri: Ben Stiller Aðalhlutverk: Winona Ryder, Ethan Hawke, Ben Stiller að er augljóst að ffá upphafi er myndinni „Reality Bites“ ætlað að ná einhvers konar „kúltmyndastaðli", þ.e. henni er miðað á þann hóp sem sækir myndir á borð við „Heathers" og „Trust“. Það er auðvitað svo sein ágætt út af fyrir sig en í þessu tilviki er inyndin svolítið meðvituð um það og verður því helst til útreiknanleg og augljós þótt vissulega sé sniðuga hluti að finna í henni. Eins og nafhið bendir til fjallar myndin um blákaldan raunveruleik- ann og gerir það á þokkalega raunsæj- an hátt jafnvel þótt hún taki sig ekki alvarlegar en nauðsyn krefur. I flesta staði eru persónurnar frekar heil- steyptar en þó er einn kynhverfur karakter á vappi sem gerð eru lítil skil og virðist eiginlega bara vera til skrauts, annað hvort það eða þá að myndin er að gera sér helst til augljóst far um að höfða til vissra minnihluta- hópa. Þetta hálfkák í persónusköpun er einnig að finna í persónunni sent leikstjórinn, Ben Stiller, leikur. Persóna hans er trúverðug til að byrja með en umhverfist svo í einhvers kon- ar trúð og fjarar loks út og hverfur. Aðalpersónurnar sem Winona og Ethan leika eru sem betur fer fremur steinsteyptar, þó vantar nokkuð á að þær séu sjálfum sér samkvæmar. Þessi tvö koma einnig áberandi best út hvað leik varðar, þau eru vaxandi leikarar og vís til að gera stóra hluti í fram- tíðinni. Myndin inniheldur allt sem mynd sem þessa skal prýða: Eilítið svart- sýnar vangaveltur um lífið og tilver- una, smá kjaftshögg á MT\’-kyn- slóðina og annað sem fellur hinum kröfuharða markhóp í geð. En þessi ákveðni markhópur er gjarn á að láta það fara í taúgarnar á sér ef reynt er að höfða til þeirra á of augljósann hátt og er því uindeilanlegt hvort myndin hittir í mark á þeini grundvelli sem hún setur sér. En víst er að fáum ætti að leiðast. Myndin inniheldur dágóðan skammt af skondnum atriðum og hnyttyrðum, þó svo að stundum séu þau dýrt keypt á kostnað heilsteypingar. En þrátt fyr- ir hnökra í uppbyggingu og almennri heimspeki verður myndin aldrei hreint og beint leiðinleg, maður á bara ekki að búast við of miklu. Gráðugur frændsystkinahópurinn sem fer á kostum við að reyna að hafa fé út úr ríka gamla frændanum. Sagt mei mytid Höfundar: Hjörtur Gunnarsson og Puríður Hjartardóttir

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.