Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2005, Síða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2005, Síða 11
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 5. febrúar 2005 | 11 Fimmta bók Hönnu RichardtBeck, er nefnist Gennemtræk eða Gegnumtrekkur, vekur mikla lukku hjá gagnrýnanda danska blaðsins Politiken. Í bókinni er að finna níu smásögur sem rammaðar eru inn í einn og sama stigaganginn þar sem lesendur kynnast þeim ólíku persónum sem þar búa og starfa. Að mati gagnrýnanda eru sögurnar uppfullar af spennandi samskiptum persóna, mikilli stemn- ingu, nokkuð svörtum húmor og kyrrlátum harmi. Allar eigi sög- urnar það sameiginlegt að í þeim er sköpuð spenna milli mismunandi laga sem séu ýmist harðgerð eða fín- leg, sorgleg eða lífleg og kallast á sama tíma á við þá ólíku fleti sem einkenna líf þeirra persóna sem skyggnst er inn í. Hann segir skrif Beck sannfær- andi, þau séu beitt en að sama skapi viðkvæmnisleg.    Nýjasta bók verðlaunaskáldkon-unnar Alice Walker fær ekki góða dóma hjá gagnrýnanda breska blaðsins Telegraph. Bókin sem nefnist Now is the Time to Open Your Heart, eða Nú er tíminn til að opna hjarta sitt eins og kalla mætti hana á íslensku, fjallar um miðaldra konu sem yfirgefur elskhuga sinn í því augnamiði að hefja mikið ferðalag andlegrar hreinsunar. Að mati gagnrýnanda eru persónur Walker allt of einsleit- ar og virðist höfundur hafa glatað hæfileika sínum til þess að skrifa góð og trúverðug samtöl. Walker vann á sínum tíma Pulitzer- verðlaunin fyrir bók sína The Color Purple eða Purpuraliturinn.    Löng seta Jóhannesar Páls páfaannars á páfastóli er til skoð- unar í bók hins virta blaðamanns John Cornwell The Pontiff in Wint- er: Triumph and Conflict in the Reign of John Paul II eða Páfinn að vetri: Sigrar og átök undir stjórn Jó- hannes Páls páfa annars eins og snara mætti titl- inum yfir á ís- lensku. Að mati gagnrýnanda The Washington Post tekst Corn- well einstaklega vel að rekja hin miklu áhrif sem Jóhannes Páll páfi hefur haft á heimsmálin, en Cornwell telur páfa m.a. hafa gegnt lykilhlutverki í því að sundurliðun Sovétríkjanna sálugu skyldi takast án blóðsúthellinga. Hins vegar bendir gagnrýnandi á að engum geti eftir lestur bókarinnar dulist að Cornwell sé á þeirri skoðun að löng seta páfa og bágt heilsuástand hans síðustu misseri muni til lengri tíma hafa afar neikvæð áhrif bæði fyrir heimsbyggðina og kirkjuna sjálfa. Cornwell hefur áður skrifað um páfa en í bók sinni Hitleŕs Pope eða Páfi Hitlers gagnrýndi hann Píus páfa tólfta harkalega fyrir að bregð- ast seint og illa við framferði nasista gagnvart gyðingum í síðari heim- styrjöldinni. Talið er að bókin hafi ráðið miklu um það að hætt var að ræða um að taka Píus páfa í dýr- lingatölu seint á tíunda áratug síð- ustu aldar.    Einelti, rasismi og drykkjuvanda-mál fullorðna fólksins er meðal þess sem tekið er á í norsku barna- bókinni Muffe 2 og Bakom synger hverdagen eða Muffe 2 og í bak- grunni syngur hversdagurinn, eins og nefna mætti hana á íslensku, eftir Arne Garvang. Bókin er framhald af hinni mjög svo vinsælu Muffe tar saken, eða Muffe tekur málið, þar sem unglingurinn Mons Ulrik, betur þekktur sem Muffe, er í aðal- hlutverki. Að mati gagnrýnanda Aftenposten er bókin afar skemmti- leg lesning, enda einstaklega fyndin. Erlendar bækur John Cornwell Alice Walker Í slenski fornleifafræðingurinn Steinunn Kristjánsdóttir stóð fyrir fornleifaupp- grefti á 60 gröfum á Þórarinsstöðum í Seyðisfirðir 1988–1989. Af 60 gröfum eru 59 grafir ýmist frá lokum víkingatímans eða upphafi miðalda. Á grunni mismun- andi aldursgreiningaraðferða má ætla að greftr- anirnar hafi átt sér stað frá því einhvern tímann á 10. öld þar til í byrjun 13. aldar. Grafirnar lágu í stefnuna austur-vestur og höfðu líkin ekki verið brennd heldur lögð í trékistur. En hvorttveggja er dæmigert fyrir kristna greftr- unarsiði. Aftur á móti vekur athygli að í þeim fáu tilvikum þar sem mannabein voru varðveitt, mátti greina í fjórum grafanna að hinn látni hefði ekki verið lagður í útréttri stellingu á bakið, sem er einkennandi fyrir kristna grafsiði, heldur lagður á hægri hliðina með andlitið mót suðri. Þetta túlkar Steinunn sem tákn um að heið- inna áhrifa hafi enn gætt. Yfirleitt fylgdu ekki munir með hinum látnu í gröfina nema í einstaka tilvikum; þ.e. perla, hringur, mynt og tvö lítil met (lóð) sem voru mismunandi að gerð. Uppgröfturinn náði því til kristinna grafa, sem eru eldri en lögtaka kristni á Íslandi, sem átti sér stað árið 1000. Kirkjan á Þórarinsstöðum Grafirnar lágu umhverfis litla timburkirkju með jarðföstum hornstoðum, en kirkjan lá í stefnuna austur–vestur. Gosaska frá eldgosi frá því um 950 lá undir elstu kirkjunni á staðnum, en niðurstöður rannsóknanna benda til að hún hafi verið reist tveimur áratugum síðar. Þar af leiðandi er fyrsta kirkjan á Þórarinsstöðum frá því fyrir tíma kristni- tökunnar á Íslandi. En hvaða hlutverki þjónaði þá kirkjan? Steinunn telur að kirkjan hafi tengst trú- boði og vaxandi áhrifum kristninnar í víkingaald- arsamfélaginu. Kirkjan á Þórarinsstöðum tilheyrir þekktum timburkirkjum af minni gerðinni, sem eru einkenn- andi fyrir upphafstíma kristninnar í Norður- Evrópu. Sú kirkja skilur sig frá öðrum elstu þekktu kirkjum á Íslandi að því leyti, að hún er ein- ungis reist úr timbri en ekki torfi. Steinunn varpar fram þeirri tilgátu, að torfkirkjur og timburkirkjur hafi gegnt mismunandi hlutverki. Torkirkjurnar (sem iðulega voru klæddar innan með timbri) skil- greinir hún sem heimakirkjur (private kirker) við bæi, þar sem menn hafi þegar aðhyllst kristni. Það er að segja, hún lítur á heimakirkjurnar sem dæmi um óskipulagða útbreiðslu kristni í víkingaald- arsamfélaginu – í raun iðkun kristinnar trúar með- al almennra samfélagsþegna. Timburkirkjur af minni gerðinni (sem eru án torfveggja), eins og kirkjan á Þórarinsstöðum, skilgreinir hún sem op- inberar kirkjur að því leyti, að þær standi fyrir til- raunir leiðandi ráðamanna til að tryggja hina skipulögðu útbreiðslu kristninnar – þ.e. opinbera mótun kristni sem stofnunar. Steinunn lítur á timburkirkjurnar sem norður- evrópskt fyrirbæri (Skandinavía þ.m.t.), en torf- kirkjurnar sem vestrænt fyrirbæri í ljósi þess að á Írlandi, Skotlandi, Færeyjum, Íslandi, Norður- Noregi og Grænlandi hafi verið að finna kirkjur með sams konar byggingarlagi og einkenndi torf- kirkjurnar. Og þar sem fyrstu íbúar Íslands voru af ólíku þjóðerni, voru tengsl þeirra við kristni mis- munandi, þar af sumir með rætur í engilsaxnesku kirkjunni og aðrir í þeirri keltnesku. Hvers konar kristni? Með hliðsjón af þessu fornleifafræðilega efni tekst Steinunn á við það að skilgreina og ræða einkenni og þjóðernislegan bakgrunn að baki útbreiðslu kristninnar. Steinunn tiltekur að leggja beri meiri áherslu á hina óskipulögðu útbreiðslu kristninnar en gert hafi verið til þessa samanborið við skipulagt trú- boð. Hvað það varðar bendir hún á að ritheimild- irnar greini einkum frá og leggi áherslu á skipulagt trúboð ásamt uppbyggingu kirkjunnar sem stofn- unar í framhaldi af lögtöku kristninnar. Forn- leifafræðilega efnið (vitnisburður fornleifa) gefi aftur á móti mynd af hinni óskipulögðu útbreiðslu kristni sem hafi haft síst minni áhrif en skipulagt trúboð. Hún bendir einnig á að í ritheimildunum sé lögð meiri áhersla á engilsaxnesku (eða anglo- skandinavísku) grein kristninnar en þá írsk-skosku (keltnesku). Þar með hafi áhrifum keltnesku kirkj- unnar verið haldið í bakgrunninum í umræðunni um upphaf kristni á Íslandi, sem ekki sé réttlæt- anlegt. Hér er um mikilvæg varnarorð að ræða í þá veru að reiða sig einungis á ritheimildir í um- ræðunni um upphafstíma kristninnar. Með framangreint í huga varpar Steinunn fram eftirfarandi mynd af útbreiðslu kristni á Íslandi: Á 9. og 10. öldinni búa á Íslandi bæði heiðnir og kristnir menn frá Noregi, Danmörku, Svíþjóð, Englandi, meginlandi Skotlands og skoskum eyj- um. Í landinu er að finna tvær fylkingar, þ.e. meira og minna heiðna eða kristna íbúa. Kristið trúboð á sér stað á 10. og 11. öld. Helstu höfðingjar standa fyrir trúboðsstarfssemi á eigin vegum og svo er einnig af hálfu kristinna íbúa (hér er átt við anglo- skandinavísku líkt og írsk-skosku kristnihefðina). Opinber og skipulögð trúboðsstarfsemi í anda anglo-skandinavísku kirkjuhefðarinnar er í hönd- um utanaðkomandi trúboða, sem streitast við að hafa áhrif á afstöðu höfðingjaveldisins. Afleiðing- arnar lýsa sér í átökum milli heiðinna og kristinna manna. Íburðarlitlar timburkirkjur með torfveggj- um í anda írsk-skosku hefðarinnar eru reistar á heimajörðum frjálsra bænda, sem tákn um að þeir aðhyllist kristni. Á aldamótaárinu 1000 er svo kom- ið að höfðingjaveldið telur sig knúið til að fylgja kristnitökunni eftir með formlegum hætti (anglo- skandinavíska hefðin). Kristnin er þar með við- urkennd á landsvísu sem lögtekin stofnanaleg trúarbrögð. Höfðingjaveldið velur að ganga kristninni á hönd vegna vaxandi útbreiðslu kristni í Evrópu líkt og meðal almennings á Íslandi. Í fram- haldinu eru stafkirkjur reistar. Árið 1056 er fyrsti íslenski biskupinn valinn [úr höfðingjastétt]. Eftir það ráða höfðingjar í vaxandi mæli yfir kirkjunni. Þegar tíund er komið á undir lok 11. aldar, þjóna kirkjur höfðingja í vaxandi mæli hlutverki sóknar- kirkna á sama tíma og minni heimakirkjur við bæi hafa hverfandi vægi sem guðshús eða sem svo- nefnd „bænhús“. Fyrsta kristni í Færeyjum Lýsing og greining Steinunnar Kristjánsdóttur á upphafi kristninnar á Íslandi er einnig áhugaverð í færeysku samhengi séð. Ritheimildir um Færeyjar eru af skornum skammti framan af samanborið við Ísland, sem ýtir enn frekar undir mikilvægi forn- leifafræðinnar (vitnisburð fornleifa), þegar rann- sóknir á flóknu ferli að baki útbreiðslu kristninnar er annars vegar. Það er með þetta sjónarmið í huga, sem rann- saka ber steinkrossana frá Skúvey, trékrossana frá Tóftanesi frá fyrstu byggðaöldum, og þá ekki síður ófáar rústir bænhúsa. Í Færeyjum er að finna all- nokkrar bænhúsrústir – t.a.m. í Leirvík, Oynd- arfirði og Mykinesi. Fjöldi varðveittra örnefna á Færeyjum benda til, að bænhús hafi víða verið að finna. Eru þessi bænhús, sem eru umkringd hring- laga kirkjugörðum, leifar frá írsk-skoskri kristni- hefð, sem einnig einkenndi upphaf kristni í Fær- eyjum allt frá því menn settust þar fyrst að? Og hvað um elstu kirkjuna og grafirnar á Sandi? Með þær minjar í huga vekur óneitanlega athygli, að það er ófátt líkt með gröfunum á Sandi og gröf- unum á Þórarinsstöðum. Með þeim sem voru greftraðir á Sandi, voru ýmist lagðir fáir munir og smáir eða alls engir – rétt eins og á Þórarins- stöðum. Einnig vekur athygli að nokkrir þeirra sem voru greftraðir á Sandi voru lagðir á hliðina með andlitið mót suðri – líkt og á Þórarinsstöðum. Þessar grafir á Sandi hafa kristið yfirbragð í bland við heiðna greftrunarsiði. Er elsta timburkirkjan á Sandi tákn um skipulagt trúboð af hálfu leiðandi höfðingjaveldis – líkt og kirkjan á Þórarinsstöðum samkvæmt skilgreiningu Steinunnar Kristjáns- dóttur? Ef svo er, er ekki unnt að „tímasetja graf- irnar til þess tíma sem Færeyjar voru kristnaðar – þ.e. til um 1000 “(Arge & Hartmann 1992, bls. 20), heldur öllu heldur til þess tíma, þegar Færeyjum hafði í raun verið snúið til kristni. Jafnframt er ekki heldur ástæða til að ætla, „að fyrstu ein- staklingarnir sem gengu kristninni á hönd, hafi endilega mátt sín mikils, þ.e. að þeir hafi tilheyrt valdamestu ættum þess tíma“ (Arge & Hartmann 1992, bls. 20). En mætti kannski allt eins hugsa sér, að kristnin hefði verið útbreidd meðal almennings í Færeyjum, sem neyddi „valdamestu ættir á þeim tíma“ (yfirstéttina) til að reyna að hafa hemil á og aðlaga kristnina að ríkjandi valdastrúktúr. Var það kannski viðleitni í þá veru sem náði yfirhöndinni árið 997 (?), þegar kristnin var formlega við- urkennd í Færeyjum? Varnaðarorð Steinunnar Kristjánsdóttur að treysta ekki um of á ritheimildir sem fjalla um upp- haf kristni, eiga ekki síður við um Færeyjar en Ís- land. Hvað Færeyjar varðar, þá er Færeyingasaga helsta ritheimildin. Fyrir er vitað, að sú saga var ritfærð löngu eftir að atburðirnir sem hún greinir frá áttu sér stað, og byggir hún auk þess á fyr- irframgefnum forsendum, sem vart getur aukið frekar skilning okkar á útbreiðslu kristninnar í Færeyjum. Aftur á móti eru möguleikar fornleifa- fræðinnar nánast ótæmandi í þeim efnum, og geta þar af leiðandi leitt af sér marktækar niðurstöður – og þar með skapað nýjar forsendur til túlkunar og skilnings okkar á lýsingum Færeyingasögu á því, sem átti sér stað á víkingatímanum. Tilgáturnar í doktorsritgerð Steinunnar eru ekki í andstöðu við þá mynd, sem stofnanatengda kristnin end- urvarpar, heldur leitast þær öllu heldur við að bæta frekari sjónarmiðum við þá sögu. Forn- leifafræðileg túlkun og tilgátur Steinunnar eru opnar fyrir mótrökum og bjóða því upp á umræður. Doktorsritgerð Steinunnar Kristjánsdóttur er hugmyndarík og vekur því upp spurningar, en rit- gerðin byggist á nýju fornleifafræðilegu efni sem Steinunn notar til að varpa fram sjónarhornum fyrir rannsóknir morgundagsins. Það er því óhætt að mæla með ritgerðinni við alla þá, sem hafa áhuga á flóknu landnámsferli víkingaaldar og þeirri margbrotnu undiröldu sem að baki því lá – iðulega á þjóðernislegum grunni. Það var í slíkri deiglu sem innreið kristninnar í eylöndin í Norður- Atlantshafs – þ.m.t. í Færeyjum – þróaðist með tíð og tíma yfir í fastmótaða stofnun. Þýtt af dr. Margréti Hermanns Auðardóttur  Heimildir Arge, S. V. & Hartmann, N. 1992. „The burial site of við Kirkju- garð in the village of Sandur, Sandoy.“ Fróðskaparrit 38.39. bók (1989–1990), 5–21. Tórs- havn. Steinunn Kristjánsdóttir. 2004. The Awakening of Christianity in Iceland: Discovery of a Timber Church and Graveyard at Þórarinsstaðir in Seyðisfjörður. Cotarc Series B. Gothenburg Archaeological Thesis. No. 31. University of Gothenburg: Department of Archaeology. Kristnitaka, bylting að ofan? Hinn 28. september varði Steinunn Kristjáns- dóttir doktorsritgerð sína við Gautaborgarhá- skóla: The Awakening of Christianity in Iceland: Discovery of a Timber Church and Graveyard at Þórarinsstaðir in Seyðisfjörður. Ritgerðin byggist á nýju fornleifafræðilegu efni frá rann- sóknum á kirkjurúst og kirkjugarði á Þórarins- stöðum í Seyðisfirði, sem Steinunn átti frum- kvæðið að og stjórnaði 1988–1989. Eftirfarandi ritdómur um ritgerðina birtist í færeyskum Dimmalætting 6. janúar síðastliðinn en þar segir að áhugaverð sjónarmið sé að finna í ritgerðinni um upphaf og rætur kristni á Íslandi sem einnig skipta töluverðu máli fyrir skilning á kristnisögu Færeyja. Þórarinsstaðir Á Þórarinsstöðum fundust tvö byggingarstig kirkju og grafreitur með 60 gröfum (teikning: Steinunn Kristjánsdóttir og Steingrímur Eyfjörð, 2000; úr Árbók Hins íslenzka fornleifafélags). Höfundur er safnvörður á Fornminjasafni Færeyja. Eftir Steffen Stummann Hansen

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.