Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2005, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 05.02.2005, Blaðsíða 15
Lesbók Morgunblaðsins ˜ 5. febrúar 2005 | 15 Kvikmyndir Borgarbíó, Akureyri: Meet the Fockers The Aviator  (HJ) Elektra  (SV) Sjóræningjar á Saltkráku Háskólabíó Meet the Fockers Million dollar baby The Aviator  (HJ) Alexander  (HJ) Ocean’s Twelve  (SV) Laugarásbíó Meet the fockers The Aviator  (HJ) Sjóræningjar á Saltkráku Regnboginn The sea inside Assault on Precinct 13 Sideways  (SV) Finding Neverland  (SV) Sambíóin Reykjavík, Keflavík, Akureyri Meet the Fockers Million dollar Baby Assault on Precinct 13 Alexander  (HJ) Team America World Police A series of unfortunate events  (SV) National Treasure  (HJ) Alfie  (HL) The Polar Express  (HJ) The Incredibles  (HL) Smárabíó Assault on Presinct 13 Elektra  (SV) Sideways  (SV) Finding Neverland  (SV) TAXI  (SV) Í takt við tímann  (SV) Myndlist Anddyri Suðurlandsbrautar 4: Rafn Sigurbjörnsson – Fjölskyldan. Tíu olíumálverk. Árbæjarsafn: Í hlutanna eðli – stefnumót lista og minja. Til 5. júní Gallerí Dvergur: Efrat Zehavi – Fireland. Stendur til 13. febrúar Gallerí Humar eða frægð!: Ásdís Sif Gunnarsdóttir sýnir myndbandsverk. Stendur til 18. febrúar. Gallerí i8: Finnur Arnar sýn- ir til 26. febr. Gallerí Sævars Karls: Hulda Vilhjálmsdóttir – Hver bank- ar á hurðina? Kannski barnið í landslaginu? Gerðuberg: Þýska listakonan Rosemary Trockel sýnir til 27. febr. Sigríður Salvars- dóttir í Vigur sýnir listaverk úr mannshári í Boganum. Stendur til 13. mars. Grafíksafn Íslands: Rut Rebekka sýnir vatnslita- og olíumálverk. Hafnarborg: Rafmagn í 100 ár – sýning í tilefni af 100 ára afmæli fyrstu almenningsraf- veitunnar. Bjarni Sigur- björnsson og Haraldur Karls- son – Innsetning. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson er myndhöggvari febr- úarmánaðar. Hallgrímskirkja: Jón Reyk- dal – 6 ný olíumálverk í forkirkju. Hólmaröst: Jón Ingi Sigur- mundsson – olíu- og vatns- litamyndir. Hrafnista Hafnarfirði: Tryggvi Ingvarsson, raf- virkjameistari og heimilis- maður á Hrafnistu, sýnir út- saum og málaða dúka í Menn- ingarsalnum á fyrstu hæð. Hönnunarsafn Íslands, Garðatorgi: Sænskt listgler, þjóðargjöf. Iðntæknistofnun: Nýsköpun í ný sköpun. Átta listamenn úr Klink og Bank. Kaffi Espresso: Guðrún Egg- ertsdóttir – skúlptúrar og myndir. Kaffi Sólon: Óli G. Jóhanns- son sýnir óhlutbundin lista- verk. Stendur til 5. mars. Kubburinn – LHÍ: Þóra Gunnarsdóttir sýnir verk sín. Listasafn Akureyrar: Ashk- an Sahihi – Stríðsmenn hjart- ans. Stendur til 6. mars. Listasafn ASÍ: Valgerður Guðlaugsdóttir – Á skurðar- borði Augans. Lýkur um helgina. Listasafn Kópavogs – Gerð- arsafn: Birgir Snæbjörn Birgisson – verk úr tveimur myndröðum, Snertingar og Ljóshærðar starfstéttir. Elías B. Halldórsson – Olíu- ljós. Verk úr einkasafni Þor- valdar Guðmundssonar og Ingibjargar Guðmundsdóttur á neðri hæð. Listasafn Reykjanesbæjar: Kristín Gunnlaugsdóttir – mátturinn og dýrðin, að ei- lífu. Listasafn Reykjavíkur – Jónssonar. Slunkaríki: Ívar Brynjólfs- son – Bardagavellir. Suðsuðvestur, Reykjanesbæ: Magnús Pálsson sýnir inn- setningu. Thorvaldsen: Kristín Tryggvadóttir – Leikur að steinum. Til 19. feb. Tjarnarsalur Ráðhúss Reykjavíkur: Sören Solsker Starbird – Er sálin sýnileg? Ljósmyndasýning. Þjóðminjasafnið: Hér stóð bær … og Átján vóru synir mínir í Álfheimum. – Ljós- myndasýningar. Leiklist Borgarleikhúsið: Ausa og stólarnir, Sun. Belgíska Kongó, Lau. Híbýli vindanna, lau, sun. Lína Langsokkur, sun. Saumastofan, 30 árum síðar, lau. Við erum öll Marlene Dietrich FOR, Sun. Iðnó: Faðir vor, sun. Leikfélag Akureyrar: Óliver, lau, sun. Loftkastalinn: Ég er ekki hommi, lau. Þjóðleikhúsið: Dýrin í Hálsa- skógi, sun. Öxin og jörðin, lau. Ásmundarsafn: Maðurinn og efnið. Yfirlitssýning. Til 2006. Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús: Erró, Víðáttur. Þórður Ben Sveinsson – Borg náttúrunnar. Bjargey Ólafs- dóttir – Láttu viðkvæmt útlit mitt ekki blekkja þig. Brian Griffin – Áhrifavaldar. Til 27. febr. Listasafn Reykjavíkur, Kjar- valsstaðir: Hörður Ágústsson – Yfirlitssýning í Vestursal. Helgi Hjaltalín Eyjólfsson og Pétur Örn Friðriksson – Markmið XI í miðrými. Kjar- val í Kjarvalssal. Ljósmyndasafn Reykjavíkur: Fyrir og eftir. Lýkur um helgina. Náttúrugripasafnið Hlemmi: Tuttugu og sex mynd- listarnemar sýna. Safn: Stephan Stephensen – AirCondition. Jóhann Jó- hannsson – Innsetning tengd tónverkinu Virðulegu forset- ar. Á hæðunum þremur eru að auki ýmis verk úr safn- eigninni, þ. á m. ný verk eftir Roni Horn, Pipilotti Rist og Karin Sander. Safn Ásgríms Jónssonar: Þjóðsagnamyndir Ásgríms TÓNLEIKAR Lúðrasveitar Reykjavíkur voru haldnir í Borgarleikhúsinu á miðvikudagskvöldið. Lárus Grímsson stjórnaði og var efnisskráin fjölbreytt. Frammistaða Báru Sig- urjónsdóttur (f. 1979) var at- hyglisverð, bæði tónsmíð eft- ir hana sem bar nafnið Hver tók ostinn minn, og einnig saxófóneinleikur hennar í Concerto del Simún eftir spænska tónskáldið Ferrer Ferran. Leiktæknin var að vísu af skornum skammti en hún sýndi víða ágætis tilþrif í túlkuninni og er auðheyri- lega efnilegur nemandi. Verkið hennar bar líka vott um tónsmíðahæfileika, tíðar endurtekningarnar voru reyndar dálítið ómarkvissar en heildarsvipurinn var engu að síður litríkur; það var kraftur í tónlistinni og hann lofar góðu um framtíð Báru á tónlistarsviðinu. Eins og málglaður kynnir tónleikanna, Friðrik Teó- dórsson, benti á þá er sjaldan ein báran stök og á efnis- skránni var tónsmíð eftir aðra Báru, í þetta sinn Grímsdóttur. Það var Skinn- pilsa, ekki pylsa eins og ein- hverjir hafa væntanlega tal- ið, heldur fjallaði tónlistin um draug, afturgengna stúlku í skinnklæðum. Eftir því var músíkin myrk og með spennuþrunginni undiröldu; satt best að segja minnti hún mig eilítið á tónlist Johns Barry í gömlum James Bond myndum – og það er hrós! Verkið er ágætlega skrifað, sannkölluð drauga- saga í tónum; greinilegt er að Bára kann að semja myndræna tónlist. Ekki síðri var Óður II eftir fyrrnefndan Lárus Grímsson, en hann var skemmtilega poppaður á köflum, afar þróttmikill og líflegur. Berglind María Tómasdóttir lék þar einleik og gerði það af glæsibrag; flutningur hennar einkenndist af hrynrænni skerpu, tæknilegu öryggi, djúpri inn- lifun og næmri tilfinningu fyrir fíngerðari blæ- brigðum tónsmíðarinnar. Ljóst er að Berglind María er frábær flautuleikari. Að lokum verður að nefna Eldljóð I og II eftir Idu Gotkovsky, en þar var lúðrasveitin í bana- stuði. Þó tæknilegar hliðar flutningsins væru ekki alltaf eins og best verður á kosið var flutn- ingurinn einlægur, með magnaðri stígandi og ofsafenginn á köflum, en þannig átti hann einmitt að vera. Stúlka afturgengin TÓNLIST Borgarleikhúsið Tónlist eftir Elizabeth Raum, Ferrer Ferran, Báru Sig- urjónsdóttur, Báru Grímsdóttur, Idu Gotkovsky og Lár- us Grímsson. Einleikarar: Berglind María Tómasdóttir flautuleikari og Bára Sigurjónsdóttir saxófónleikari. Stjórnandi: Lárus Grímsson. Miðvikudagur 2. febrúar. Myrkir músíkdagar Jónas Sen Bára Sigurjónsdóttir Lárus Grímsson Berglind María Tómasdóttir NÚ stendur yfir sýning ísraelsku listakon- unnar Efrat Zehavi í gallerí Dvergi. Zehavi, sem er rétt um þrítugt, á að baki myndlist- arnám og nám í leikmyndagerð, í heimalandi sínu og í Hollandi. Hún hefur sýnt verk sín í ýmsum löndum og mun brátt sýna á virtum sýningarstað í Hollandi, Witte de With í Rott- erdam. Í sýningarrými Gallerí Dvergs sýnir hún ljósmyndir og litlar leirmyndir undir gleri. Zehavi segir verkið innblásið af afdrifum borg- arinnar Pompei, en nýlega var einmitt sýnd áhrifamikil heimildarmynd um hana í RÚV. Í texta með sýningunni veltir Efrat fyrir sér við- brögðum mannsins við náttúruhamförum, vissulega efni sem er ofarlega á baugi eftir at- burðina í desember sem skóku jörðina alla. Verk Efrat er þó að öllum líkindum unnið áður en flóðbylgjan skall á. Efrat vinnur í leir og ljósmyndir af leirskúlptúr eru miðja sýningar hennar. Myndirnar fylgja formi skúlptúrsins og ná upp undir loft í rýminu, enda þarf ekki mikið til. Það er samræmi í litlu fígúrunum sem hún sýnir undir gleri og ljósmyndaskúlpt- úrnum sem sýnir bæði sköpunarkraftinn við mótun leirsins og vísar til krafta náttúrunnar. Litlu fígúrurnar bera einnig fingrum skapara síns merki. Að mínu mati eru þær öllu áhrifa- ríkari en ljósmyndaverkið þó að litlar séu en framsetning þeirra vakti eiginlega fleiri spurn- ingar en hún svaraði, hér er um eins konar tví- tekningu á ringulreið að ræða sem eykur ekki á innri áhrifamátt verkanna. Sýning Efrat er eftirminnileg engu að síður og vinnuaðferð hennar og efniviður ná að miðla hugmyndum listakonunnar til áhorfandans vandræðalaust. Nú þegar tæknin er orðin svo góð og býður upp á marga möguleika er það hressandi að sjá verk sem unnin eru með berum höndum – án þess að hugmyndin að baki gleymist. Það er ekki laust við að fígúrur Efrat minni mig á deigfígúrur Gabríelu Friðriksdóttur, ef til vill liggur þetta í loftinu. Stórar siðferðilegar spurningar eru einnig afar kærkomnar í dag. Eins og jafnan í Gallerí Dvergi skapar hús- næðið sérstakt andrúmsloft á sýningunni og ég gæti trúað að hér kæmust þegar færri sýn- endur að en vildu, þrátt fyrir að Galleríið hafi ekki starfað mjög lengi samfleytt. Varðveisla þjáningarinnar MYNDLIST Gallerí Dvergur Til 13. febrúar. Gallerí Dvergur er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 17–19. Fireland. Blönduð tækni, Efrat Zehavi Ragna Sigurðardóttir Morgunblaðið/Golli Með berum höndum „Nú þegar tæknin er orðin svo góð og býður upp á marga möguleika er það hress- andi að sjá verk sem unnin eru með berum höndum – án þess að hugmyndin að baki gleymist.“ HELDUR var dræm aðsókn að hádegistón- leikum Háskólans á miðvikudag, og ekki bætti hryssingslegur hraglandi veðurguða úr, þrátt fyrir næsta óvenjulega áhöfn í boði. Kónískur reyrlúður Adolphes Sax, er upphaflega var hannaður fyrir herlúðrasveitir og átti eftir að reynast ómissandi í djassi, heyrist mun sjaldn- ar í svokallaðri fagurtónlist; sumpart eflaust vegna verkaskorts. Fannst mér sá hörgull hins vegar ekki réttlæta nægilega spilun söng- raddar í ljóðasöngvum Mahlers, og varla held- ur þýzku söngtextarnir, er fylgdu tónleika- skránni líkt og í yfirbótarskyni. Þótti manni öllu líklegra að ljóðrænir Rück- ert-söngvar Mahlers og Der Tambourgesell’ (úr Des Knaben Wunderhorn) hafi einkum gegnt upphitunarhlutverki fyrir lokaátökin í Denisov-sónötunni, enda málmhvass tónn Bäumers t.d. talsvert ólíkur dúnmjúkum djassblæstri Pauls Desmonds heitins. Þó mátti víða hafa ánægju af óvefengjanlegri lagasnilld Mahlers í téðri umritun, þökk sé ekki sízt litríkum píanóleik Aladárs er málaði trú- verðugt marcia funèbre „trommuþyrl“ með bassanótum píanósins í síðastnefnda lagi. Dúóið frumflutti á Íslandi þríþætta Sónötu eftir síberska tónskáldið Edison Denisov (1929–96) við þetta tækifæri. Um 13 mín. löng sónatan var samin 1970 og gerði óvægnar kröfur í hröðu útþáttunum, einkum til hryn- skerpu og samstillingar. Sá fyrri mótaðist af ertnislega dyntóttu stakkatói er minnti stund- um á ofbeldisgrikki Tomma og Jenna. Líðandi miðþátturinn var nánast undirleikslaust sax- sóló, nema hvað látið var enduróma úr flygl- inum með forte-fetilinn niðri. Fínallinn, er byggði á tilbrugðnu þrábassastefi, spannaði allt frá krassandi impressjónisma til be-bops og þaðan yfir í frjálsa djassinn, þar sem gefið var hressilega í undir lokin. Hér fór ærslafull músík þar sem hamslaus spilagleði flytjenda fleytti marga skondna kerlingu í kostulegum samleik. Funheitar undirtektir áheyrenda kölluðu óhjákvæmilega á aukalag, og lauk tón- leikunum með þjóskvettandi latneskri sveiflu Brazileirunnar úr Scaramouche Milhauds. Alt-sax á útopnu TÓNLIST Norræna húsið Mahler: 4 sönglög. Denisov: Sónata. Guido Bäumer altsaxófónn, Aladár Racz píanó. Miðvikudaginn 2. febrúar kl. 12:30. Kammertónleikar Ríkarður Ö. Pálsson Aladár Rácz Guido Bäumer

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.