Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 19.02.2005, Blaðsíða 12
12 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 19. febrúar 2005 Núna þegar Will Smith er á nýorðinn heitasti leikarinn í Hollywood með velgengni gam- anmyndarinnar Hitch hefur Col- umbia Pictures haft snarar hendur og hraðað fram- leiðslu á næstu mynd hans. Er þar um að ræða ofurhetjumynd sem á að heita Tonight, He Comes. Þar mun Smith leika ofur- hetju sem brot- lendir í bænum Sheepshead Bay og veldur usla í bænum þegar hann fellur fyrir venjulegri húsmóður og reynir með því að endurnæra sig. Sagan segir að hér sé á ferð eitt af betri handritum sem verið hafa á vafri í Hollywood síðustu árin. Samt hefur það gengið manna á milli. Michael Mann ætlaði fyrst að gera mynd eftir því en nú ætlar hann að framleiða og hefur fengið Jonathan Mostow (Terminator 3) til að leik- stýra. Gert er ráð fyrir að myndin verði tilbúin fyr- ir vorið 2006. Mostow er einnig að undirbúa fjórðu Terminator-myndina.    Næsta mynd Robin Williamsverður kvikmyndagerð á skáldsögunni The Night Listener eftir Armistead Maupin. Mótleik- arar Williams í myndinni verða ástr- alska leikkonan Toni Collette (Muriel’s Wedd- ing, Sixth Sense, About A Boy) og Rory Culkin. Fjallar sagan um vinsælan út- varpsmann sem á í erfiðleikum í einkalífinu. Hann myndar sterkt samband við einn dyggasta hlust- anda sinn, ungan dreng, sem hringir reglulega í þáttinn. Tilvera útvarps- mannsins fer hinsvegar í rækilegan kollhnís þegar uppúr kafinu kemur hver þessi ungi aðdáendi er. Leikstjóri myndarinnar verður Patrick Stettner (The Business of Strangers) en handritið skrifaði höf- undurinn Maupin, sem hefur einnig getið sér gott orð fyrir að hafa skrif- að Tales of the City-sögurnar. Söguna byggði Maupin á sannri lífsreynslu vinar síns.    Framleiðslu var skyndilega hætt ívikunni á ástralskri mynd sem átti að skarta þeim góðvinum Russ- ell Crowe og Nicole Kidman í aðal- hlutverkum. Myndin átti að heita Eucalyptus en nú er alls óljóst hvort nokkuð verði úr gerð hennar. Ástæðan fyrir þessari óvæntu u- beygju er ágrein- ingur milli Crowe og leikstjórans ástralska Jocelyn Moorehouse (How to Make an American Quilt) sem einnig skrif- aði handritið að myndinni. Þótt Crowe þyki erfiður maður með af- briguðum vilja framleiðendur meina að sökudólgurinn sé að þessu sinni leikstjórinn Moorehouse og „príma- donnu-stælar“ hennar og sam- skiptaörðugleikar. Þessi ágrein- ingur þeirra þykir merkilegri fyrir þær sakir að þau eiga langt og gott samband að baki og hún átti stóran þátt í að vekja athygli á Crowe með því að gefa honum bitastætt hlut- verk í myndinni Proof frá 1991. Nýjustu fregnir herma að Crowe sé svo mikið í mun að verkið verði klárað að hann hafi boðist til að leik- stýra myndinni sjálfur. Annars stað- ar er fullyrt að Crowe sé að vona að hinir gamalreyndu áströlsku leik- stjórar Bruce Beresford eða Fred Schepisi taki við. Fái Crowe sínu fram þykir hinsvegar fullljóst að Kidman verði ekki með, bæði vegna annarra skuldbindinga og vináttu hennar við Moorehouse. Erlendar kvikmyndir Will Smith Robin Williams Russell Crowe Mitt starf er að meiða fólk,“ sagði sögu-frægur amerískur hnefaleikakappi,Sugar Ray Robinson. Er þetta ekkikjarni málsins, beint úr munni hestsins, eins og kanar segja? Hvað sem öllu tali líður um hina göfugu sjálfsvarnarlist og bla- blabla? Ég hneigist að því – þið fyrirgefið, Bubbi Morthens, Ómar Ragnarsson og aðrir góðir aðdá- endur boxins: Ef menn stunda box eru þeir að stytta sér og fleirum leiðina í annað box, líkkistuna. Nýjasta Óskarstilnefnd mynd Clints Eastwoods, sem af einhverjum fárán- legum ástæðum kallast Million Dollar Baby og er verið að sýna hérlendis núna, fjallar lengi vel, jafnvel of lengi, um draum ungrar konu um að verða hnefaleikakappi. Uppstillingin er ekki frumleg: Tveir gamlir jaxlar í bransanum taka ungu konuna, sem er afburða vel túlkuð af Hilary Swank, upp á sína arma og þjálfa hana smám saman upp í heimsmeistaraflokk. Þessi fyrri hluti myndarinnar er gallaður, þrátt fyrir góðan leik og prýðilega skrifuð samtöl, að því leyti að per- sónusköpunin er of strípuð, skortir undirbygg- ingu í handriti fyrir hlutskipti þessara þriggja persóna og engu líkara en þær eigi sér ekkert einkalíf, hugsanir og tilfinningar, utan þessarar vafasömu íþróttar. Þegar kemur svo að straumhvörfum í sögunni verður þessi fyrri hluti dálítið ankannalegur. Ekki verður betur séð en hann dásami eða veg- sami þessa íþrótt, hnefaleikana, sem líf persón- anna snýst um. Seinni hlutinn – og nú mega þeir lesendur sem ekki hafa séð myndina en hyggjast gera það líta undan – fjallar hins vegar um afleið- ingar hnefaleikaiðkunarinnar fyrir ungu konuna og félaga hennar, og, að lokum, um rétt hennar til að ákveða eigin dauðdaga. Þegar upp er staðið er Million Dollar Baby um líknardauða, rétt okk- ar til að kveðja lífið þegar okkur sjálfum finnst því í raun lokið vegna þess að það er og verður ógerlegt að lifa því með mannlegri reisn, burtséð frá afstöðu lækna, presta eða annarra utan- aðkomandi. Nú er það mín skoðun, sem er óviðkomandi meginefni þessa pistils, að þessi réttur sé ótví- ræður og ætti að fá lagalega staðfestingu, ekki síður en réttur kvenna til að ákveða um annað líf í eigin líkama; barátta fyrir réttinum til líkn- ardauða ætti að komast hispurslaust á dagskrá hérlendis sem mannréttindamál því enginn hefur eðlilega hagsmuni af því að ráða yfir lífi eða dauða manneskjunnar nema hún sjálf. En þótt Million Dollar Baby sé á ýmsan hátt sterk mynd og ekki alveg eins höll undir ódýrar lausnir og einfaldanir og flestar Hollywoodmyndir, þá eru heildaráhrifin blendin. Það er eins og myndin hafi ekki getað gert upp hug sinn um hvað hún vill segja áhorfendum; hún sveiflast á milli yfir- borðslegrar umfjöllunar um „mikilvæg málefni“ og tilfinningadrama um samskipti þriggja mann- eskja. Þetta fer hins vegar ekki milli mála í mun merkilegri mynd um réttinn til líknardauða, sem nú er sýnd hérlendis og hefur verið tilnefnd til Óskarsins sem besta erlenda myndin, Mar adento eða Innri ólgusjór eftir spænska leikstjór- ann Alejandro Amenábar. Hér er þetta alvöru- mál sett upp á skýrum dramatískum forsendum, með heilsteyptri persónusköpun og framvindu. Sú gagnrýni, eins og hér í Morgunblaðinu, er að mínu mati á villigötum sem kallar eftir meiri krafti, meiri hreyfanleika myndvinnslu í sögu af manni sem liggur kraftlaus í kör og getur sig hvergi hreyft. Þegar hugur hans losnar úr viðjum líkamans, í svefni og dagdraumum, fer myndin á flug með honum. Þetta myndmál er einfalt en áhrifaríkt; í Mar adento haldast efni og form í hendur á tjaldinu. Það er svo áhorfandans að leyfa því samspili að efla kraft í huganum og koma hreyfingu á tilfinningarnar. Stjórnmálamenn virðast hliðra sér hjá að vekja máls á rétti þeirra til líknardauða sem ekki eiga von um lækningu. Hér eru tvær ólíkar kvikmynd- ir sem gera það. Sjáið þær. Öfugt við hnefaleika meiða þær engan, heldur bæta. Að velja eigin kveðjustund ’Í mynd Amenábars er rétturinn til líknardauða setturfram á skýrum dramatískum forsendum.‘ Sjónarhorn Eftir Árna Þórarinsson ath@mbl.is Þ að telst víst ekki lengur til tíðinda að líkja kvikmyndagerð við iðn- vædda verksmiðjuframleiðslu. Hefðbundin verkaskipting og efna- hagsleg undirbygging starfsem- innar gerir samanburðinn freist- andi og bandaríska draumaverksmiðjan stendur þar einkanlega berskjölduð fyrir gagnrýnni um- fjöllun sem beinir kastljósinu að listamannsfjand- samlegum eiginleikum slíkra framleiðsluhátta. En um leið og takmarkanir fjárfreks listforms eru augljósar vakna aðrar spurningar. Er kvik- myndaframleiðsla ekki einmitt samstarfsvett- vangur og tilhneiging okkar til að leita alltaf að „höfundi“ kvikmynda, lista- manninum sem berst gegn „kerfinu“, óeðlileg í því ljósi? Önnur hlýtur að vera hvaðan þeir einstaklingar komi sem treyst er fyr- ir þeim umtalsverðu fjármunum sem jafnan eru nauðsynlegir til að framleiða verk sem eðlis síns vegna þurfa að vega salt milli listræns metnaðar aðstandenda og fjárhagslegs veruleika eigin framleiðsluferlis. Vitanlega er erfitt að alhæfa um nokkuð í þessu samhengi en þekktust er væntanlega sú aðferð að fólk vinni sig upp, sanni sig með einum eða öðrum hætti. Stuttmynd sem lokaverkefni í háskóla er algeng aðferð til að gera sig gjald- gengan, sömuleiðis auglýsinga- og mynd- bandagerð. Enda þótt framleiðslukerfið sem kennt er við Hollywood hafi náð þeim óvenjulega árangri að gera hrollvekjandi framleiðslukostnað að nánast eðlilegum hlut er vafalaust sjálfsagt að milljarðafjárfestingu fylgi ákveðnar kröfur um ábyrga meðhöndlun. Tarantino-draumar Engu síður er eitthvað sérlega heillandi við æv- intýri á borð við velgengnissögu Quentins Tar- antino, en hún getur nú talist heimsþekkt. Al- máttug hönd Miramax-bræðra, þeirra Harvey og Bob, lyfti ofurnördinu Quentin úr vonlitlu starfi í myndbandaleigu upp í undursamlegar hæðir al- þjóðlegrar frægðar og velgengni, líkt og guðinn í vélinni sem í grískum harmleikjum sveif alltaf til jarðar á réttum tíma. Quentin slapp þannig við lýjandi klifur upp metorðastiga; í sögum sem þessum er prílinu sleppt, einn daginn ertu nörd, daginn eftir ertu á hvers manns vörum. Grunnfrásögn óteljandi kvikmynda er þannig framreidd sem hluti af veruleikanum, ferðalagið frá engu til allsnægta á sér ekki aðeins stað á hvíta tjaldinu heldur líka í grámóskulegum hvunndeginum. Og sú staðreynd að saga þessi var marg- og ofnýtt í fjölmiðlum af Weinstein- bræðrum er engin tilviljun. Auglýsingagildi hennar er augljóst og hugmyndafræðin er ein- föld: þetta gæti komið fyrir þig líka. Ameríski draumurinn hefur uppi á þér, jafnvel þótt lítið fari fyrir þér bakvið afgreiðsluborð í vídeóleigu. Útkjálkadýrlingar barþjónsins Þannig átti sagan af Troy Duffy að vera. Það að öðruvísi fór en ætlað var er efniviður nýrrar heimildarmyndar Tony Montana og Marks Smith sem nefnist Á einni nóttu (Overnight) og lýsir því sem í fyrstu virðist ætla að verða velgengnissaga samkvæmt Tarantino-forminu. Hún hefst á of- anverðum tíunda áratugnum þar sem Duffy situr á tilbúnu kvikmyndahandriti, en þar sem hann starfar sem barþjónn á heldur skuggalegu öld- urhúsi á Melrose-götu í Los Angeles mátti gera því skóna að hann hafi átt langt í land með að koma sér og handritinu, sem heitir Útkjálka- dýrlingarnir (The Boondock Saints), á framfæri. En einhvernveginn fær Harvey Weinstein veður af kauða, og á einu augnabliki tekur líf Duffy stakkaskiptum. Harvey kaupir handritið, hann ræður Troy til að leikstýra ásamt því að útbúa tónlist fyrir myndina með sinni gömlu hljómsveit, The Brood. Harvey kaupir líka barinn og gefur Troy. Fyrir skemmstu var Duffy húðflúraður og drykkfelldur barþjónn, núna er hann ríkur, á samningi við flottasta fyrirtækið í Hollywood og á forsíðu Variety og USA Today. Næst heyrum við af honum suður í Mexíkó þar sem hann og gamla vinagengið fagna plötusamningi við út- gáfufyrirtækið Maverick en eigandi þess er Ma- donna, leikstjóri, handritshöfundur og rokk- stjarna. Ævintýrin gerast enn. Troy langar til að fá DeNiro til að leika í myndinni. Að lokum þarf hann að sætta sig við William Defoe. Ásamt vinum sínum undirbýr hann heimsyfirráð, kvikmynda- og músíkbrans- inn eru ágætis byrjun og ef það tekst er sann- arlega allt hægt. Framtíðin er svo björt að Troy gengur með sólgleraugu innanhúss. Hið óháða er nýja gamla Á einni nóttu lýsir þessum dramatísku umbreyt- ingum á högum Troy og vina hans á afar nær- göngulan hátt. Á sínum tíma fékk hann félaga sinn til að mynda daglegt líf vinahópsins, eigin frægðarför, en efnið sem náðist á filmu næstu fjögur árin lýsir ekki aðeins ótrúlegum tækifær- um heldur líka falli og niðurlægingu. Nægir í því sambandi að benda á að fimm árum eftir útgáfu Útkjálkadýrlinganna, sem á endanum var ekki framleidd af Miramax, fyrirtæki Weinstein- bræðra, hefur Duffy ekki gert aðra mynd. Frægðarför hans lýkur í raun áður en hún hefst, eitt átakanlegasta atriði myndarinnar er sam- klippt röð af senum þar sem Troy, sem sífellt verður örvæntingarfyllri, stendur í einhliða sam- ræðum við símsvara Harveys. Á einni nóttu er stórmerkileg innsýn í það hvernig hin „nýja Hollywood“ sem sögunni sam- kvæmt tók svo miklum breytingum á öndverðum tíunda áratugnum með innkomu „óháðra kvik- myndagerðarmanna“, svipar ansi mikið til gömlu Hollywood, það eru bara nöfnin á mógúlunum sem öllu ráða sem hafa breyst. Á einni nóttu Troy nokkur Duffy virtist hafa allt til að bera til að verða næsti Tarantino og renndi fyrsta mynd hans The Boondock Saints stoðum undir þær getgátur. En öðruvísi fór en ætlað var eins og sýnt er fram á í nýrri heimildarmynd sem heitir Á einni nóttu (Overnight). Eftir Björn Þór Vilhjálmsson vilhjalmsson@wisc.edu Útkjálkadýrlingur Hverjum eða hverju er um að kenna að nafnið Troy Duffy hringir engum bjöllum, ekki einu sinni hjá gallhörðum kvikmyndaunnendum? Hollywood-mógúlunum eða honum sjálfum?

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.