Mánudagsblaðið - 21.03.1949, Page 1
11. tölublað.
Mánudagur 21. marz 1949
2. árgangur.
Því eru ekki vesalings fátæku útgerðarmenn-
irnir gerðir upp?
Við viljui áli ú jseir svetó í hel
Yiísvaiií í ríkisstjóm
Hátt á sjöttu viku, 39 daga, hefur verkfallið nú
staðið yfir hjá togaraflotanum. í tuttugu og fimm
daga deildu útgerðarmenn og yfirmenn skipanna,
áður en samningar náðust um að skerða ekki mik-
ið laun yfirmannanna. Síðan hefur deilan um að
skerða hlut hásetanna staðið. Útgerðarmenn, eig-
endur togaranna, hafa gert ósanngjarnar og ó-
drengilegar kröfur á hendur hásetum, kröfur þess
efnis, að þeir, sem mesta vosbúðina þola og vinna
erfiðustu verkin, skuli nú fá minna fyrir vinnu
sína til þessa. Helmingur ógæfusömu mannanna
í ríkisstjórn er utanlands við störf, sem einn maður,
hefði getað unnið, en hinn helmingurinn situr eft-
ir — ekki auðum höndum — því að þeir hafa báðar
hendur fullar við ýmis störf. Sumir reyna að sanna
fyrir dómstólum landsins, að þeir séu ekki „óvand-
aðir 1 bókhaldi“, aðrir bítast við þingmenn, sem
gagnrýna sölu á höfuðbólum, og einn er nýkominn
frá viðtali við hinn danska drottinn sinn, Hedtoft.
Við höfnina liggur hinn glæsilegi íslenzki floti.
Áður var hann stolt okkar í erlendum höfnum.
Nú er hann dæmi um þjóð, sem stjórnað er af
getulausum mönnum, sem hafa ekki þor til neins
vegna yfirboðara sinna í flokksstjórnunum.
Útgerðarmenn segjast ekki geta gert út skip-
in vegna kostnaðarins við útgerðina. Þetta er af-
sökun forstjóra stærri útgerðarfélaganna og ,,fá-
tæklingnna“, sem eiga ekki nema einn eða tvo
togara, á því að koma fjárhag landsins í kaldakol.
Stjórnin lætur það viðgangast, að milljónir tapist
í erlendum gjaldeyri á sama tíma, sem við þiggjum
fégjafir erlendis frá. Hún lætur fámenna stétt
ríkra manna ráða örlögum þjóðarinnar. Persónu-
Jega verða fæstir þessara manna fátækir, þóittj
verkfallið standi í mánuði í viðbót. Þeir hafa séð
svo um, að þeir sjálfir standist áföll, þó að ríkis-
kýrin geldist.
Sú eindæma fyrirlitning, sem þessir útgerðar-
menn hafa nú sýnt þjóðinni, á vart sinn líka í
sögu siðaðra þjóða. Mennirnir, sem þjóðin sjálf
lagði sig í framkróka fyrir, svo að atvinna þeirra
og fyrirtæki mættu blessast, hafa nú gengið í ber-
högg við hana. Ef hér væri ríkisstjórn, sem hefði
þótt ekki væri nema einn meðlim, sem dugur væri
í, þá væru horfurnar öðruvísi.
Einstaklingsframtakið blessast aðeins meðan
einstaklingsar geta rekið fyrirtæki sín án noklcurs
samneytis við hið opinbera. En um leið og á þeim
lieyrist, að þeir geti ekki rekið þessi fyrirtæki, þá
er um aðeins eitt að að ræða: Lýsa því yfir, að
þeir séu á kúpunni og frekari rekstur þýði aðeins
meira tap. Það er því augljóst, hvað hið opinbera
Afhending Nobels-verðlaunanna er afar hátíðleg athöfn. Gustav Svíakonungur er við-
ataddur ásamt stórmennum ríkisins. Þessi mynd er frá slíkri athöfn og sést Svíaprins
á miðri myndinni.
Blað koiimnín-
ista dæmt
Lögfræðingur, Kravchenkos,
krafðist þess í frönskum rétti
nýlega, að franska vikublaðið
Les Lettres Francaises borgaði
Kravchenko 10.000.000 franka
í skaðabætur fyrir umsögn ?ess
um bók hans, Eg kaus frelsið.
í lok vikunnar bárus fréttir
um, að rétturinn hafi dæmt blað
ið til þess að greiða Kravchencc
þessar skaðabætur.
Hryllileg morð-
alda í London —
einn maður að
verki
Scotland Yard, hin heims-
fræga brezka lögregla, virðist
nú eiga í höggi við morðingja,
sem í nokkur ár hefur ekki haft
aðra skemmtilegri iðju en að
myrða menn og konur. Upplýs-
ingar eru nú fyrst að berast, en
þó er vitað, að sum morðin eru
að minnsta kosti þriggja ára
gömul.
á nú að gera.Það á að krefjast þess, að sérhver.t
þessara útgerðarfélaga verði gert upp og full grein
gerð fyrir fjárhagsástandi þess. Og hér ber ekki
aðeins að taka fyrirtækin sjálf — heldur allar
eigur þeirra — hús, bifreiðar og aðra muni. Ef
þau eru eins illa stödd og þeir segja, þá er þeirra
ferill í þessum málum endaður. Ef þeir aftur á móti
hafa haldið út þetta verkfall í þeirri von að lækka
kaup hásetanna, þá eiga þeir á hættu að vopnin
snúist í höndum þeirra.
íslenzkir sjómenn láta ekki nokkra menn stöðva
atvinnu sína um langt skeið, aðeins til þess að
reyna að skara eld að sinni köku. Hver eyrir, sem
sjómenn fá, er skattlagður, og kaup þeirra má sjá
í opinberum skýrslum. Njóta útgerðarmenn ein-
hverra sérréttinda í þessum efnum? Loddaraskap-
ur útgerðarmanna er nú öllum augljós, og það
er þeim sjálfum fyrir beztu, að komast sem fyrst
að samningum við háseta.
Aðferð morðingjans virðist
vera sú, að hann kemur sér í
mjúkinn hjá ríku fólki og býður
því upp í sveit, þar sem hann
hefur leigt bústað um stundar
sakir. Þegar þaaigað kemur,
myrðir hann „gestinn“ og brenn
ir líkið eða eyðir því á annan
hátt. Svo hagsýnn hefur hann
verið, að þótt lögreglunni hafi
verið tilkynnt, að þetta fólk
hafi horfið, hefur hún ekki
rennt grun í, að um morð kynni
að vera að ræða. Morðinginn
hefur komizt yfir mestar eignir
þessa fólks með því að falsa
skjöl þess efnis.
Þegar er vitað, að hann hef
ur drepið fimm manneskjur og
lögreglan heldur að vel geti ver
1 ið um fleiri að ræða.
j-----------------------
Innbrotá Þing-
Blaðinu báruát fréttir
um það í gærkveldi, að
brotizt hefði verið inn í
sumarbústiaði á Þingvöll
um.
í þessari frétt var tekið
fram, að um 10—15 sum-
arbústaði væri að ræða.
Ófært liefur verið t:l Þing
valla undanfarið, og benda
líkur til, að um óvenju
hrausta og framtaksama
þjófa hafi verið að ræða.
Ekki tókst blaðinu að fá
þessa frétt staðfesiía af
lögreglunni.