Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 21.03.1949, Blaðsíða 8

Mánudagsblaðið - 21.03.1949, Blaðsíða 8
Department ot' fuller explanation „Kom eldur upp í birgða- skemmu smíðaverkstæðis Sveins og Gísla, en hús þetta stóð fyr- ir utan Bakka, eða utan Bakka, eða utanvert við kaupstaðinn sjálfan". (Vísir, 16. marz.) Atvinnuræningjar í bæjarstjórn „Kettir hér í Reykjavík munu vera atvinnulitlir, því sjálf drep ur bæjarstjórnin allar rottur — ■og líklega mýsnar Hka.“ (Víkverji, 15. marz). Flestum þótti orðið nóg um um afskipti islenzku klerkanna af stjórnmálum. Þeir höfðu Kvað eftir annað orðið sér til minnkunar og misnotað virðingu embættis síns með fánýtu hjali um mál, sem þeir hvorki skildu né höfðu ástæðu til að blanda sér í. í stað þess að leiðbeina sókn- arböritum sínum og gæta þess, að opinber rit styddu ekki sið- ferðisleysi, þá deildu þeir um mál, sem ekki snertu þeirra verkahring hið minnsta. í stóln uc standa þessir andans menn •og átelja menn fyrir syndsam- legtjíf og hvetja þá til betrun- ar, en blöðin auglýsa, að 25 ára stúlkur eða yngri vanti mann „til reynslu“ eða nokkra léttlynda karlmenn vanti þrjár atúlkur, til þess að skemmta sér með í sumarfríinu fyrir norð- an — að vísu séu þeir fjórir, en slíkt kom ekki að sök, þegar um aðeins hálfsmánaðar-vin- áttu sé að ræða. Dæmi: „Happa drætti — 25 ára gömul stúlka óskar eftir góðum félaga eða ’vini. Hefi litla en þægilega íbúð. Tilboð með fullkomnum upplýs ingum, ásamt mynd, sendist . . blaðinu, merkt „vinningur — 466“. Þagmælska sjálfsögð og myndinni skilað." Það kann að vera, að blessaðir saklausu Tderkarnir okkar haldi, að þessa stúlku vanti einhvern til þess að spila Marjas við, en þó mun almenningur vera á annarri skoðun. Einstaklingsfrelsinu lil að athafna sig verður ■ekki mótmælt á þessum vett- vangi, en eru ekki einhver tak- mörk fvrir því, hverskonar aug iýsingar blöðin taka -— og sér klerkastéttin engin missmíði á Jessum auglýsingum’ Tvö mál voru aðallega á dag- skrá í vikunni, bandalagsmálið •og togaradeilan. Alþýðublaðið •og Mbl. lögðu fram krafta sína með bandalaginu, en Þjóðvilj- y.m á móti. Baráttan hafði verið hörð, og þóttust hvorirtveggja hafa rétt fyrir sér. I fyrri vilcu 3ok mátti telja, að Þjóðviljinn hefði allan almenning með sér, aðallega vegna þess, að mál- flutningur Mbl.-manna var svo ósannfærandi, að fáir lögðu trúnað á fagurgala ritstjóra þeirra. . • ^ En þó fór svo að lokum, að málflutningur Þjóðviljans fékk herfilegt áfall. Togliatti, Thorez og aðrir leiðtogar skoðana- bræðra þeirra lýstu yfir skilyrð islausri hollustu við félaga Stalín og hlutu fyrir það al- menna andúð frelsisunnandi samborgara sinna. Almenning ur bjóst nú við, að kommúnist ar hér myndu fordæma þessa afstöðu „leiðtoganna" úti í löndum, en sú von varð að engu þegar leiðtogarnir hér sýndu sig reiðubúna til þess að fagna hingað'komu „hermanna öreig- anna“. 'Þar sýndu kommúnistar enn einu sinni ósjálfstæði sitt gagnvart alþjóðakommúnisma og misstu um leið þá miklu sam úð, sem þeir höfðu í þessu máli. Öllum varð nú ljóst, að skrif þeirra um bandalagið var ekki annað en auðvirðlegur áróður gegn því landinu, sem við eig- um einna nánasta samleið með — en viljum ekki, að sendi okk ur her til þess að vernda okkur á friðartímum. (T Um síðustu helgi fóru þrír ráðherrar okkar til þess að at- huga kvaðir bandalagsins. I fylkingarbrjósti var Bjarni Benediktsson, utanríkisráð- herra, maðurinn, sem er ómiss- andi Sjálfstæðisflokknum í bar- áttunni gegn kommúnistum — til þess að semja við Banda- ríkjamenn. En með æðstu stjórn landsins fór skrítinn hópur. Fjármálaráð herrann, sem um þessar mundir stendur í málaferlum vegna þess að hann þykir sannur að „kynlegu bókhaldi" í fyrirtækj- um, sem hann á aðallega. Land búnaðarráðherrann, sem legið hefur undir gagnrýni almenn- ings, þingmanna, blaða og yfir- leitt alls þess, sem getur gagn rýnt, fyrir kynlega sölu höf- uðbóls í hendur manni, sem þeg ar hefur lagt í eyði eitt fræg- asta höfuðból Islands og for- sætisráðherrann, sem ekkert hefur sér til frægðar unnið ann- að en að vekja furðu almenn- ings með því að hlaupa til út- landa, þegar líf þjóðarinnar, lausn togaradeilunnar, var í veði. Á vellinum fyrir utan Alþing ishúsið stendur stytta Jóns Sig urðssonar og minnir óþyrmilega á hið velkunna „Vér mótmæl- um allir“. Framhald á 3. síðu. Eyja sekkur Lítil eyja í Tongaeyjahópn- um hjá Falklandseyjum hefur sokkið í sjó. Eyjá þessi var mannlaus, en á þessum svæðum hafa verið jarðskjálftar undan- farið, og benda líkur til þess að mikil eldsumbrot hafi átt sér stað á hafsbotninum þar í grennd. Leiðbsiningar fyrir Brynjólf MÁNUDAGSBLÁÐI9 Ognaröld: Þetta orð skal nota um ástandið í lönd- um, sem hafa leynilegar kosningar, en leyfa ekki ríkislögreglunni að „spila með“. Svívirðilegur rógur: Hver sanngjörn og ofstopalaus tilraun til að skýra hugs- unarhátt Rússa. Stríðsæsingamaður: Hver sá sem hefur andstyggð á stríði. Lýðræði: Stjórnarfyrirkomu Jag með austrænu sniði, þar sem einstaklingar njóta. engra réttinda. Hýena: Vestur-Evrópumað- ur eða Ameríkumaður. Sjakali: ditto. Skriðdýr: ditto. Skemmdarstarfsemi: Mars- halláætiunin. Friðelskandi þjóðir: Sovét- rússland og leppriki þess. Friðarspiilar: Fyrrverandi bandamenn Rússa. (Úr ,,Scotsman“). Billjard í skólum Skólanefnd New York borgar fann á dögunum upp einfalt og haldgott ráð til þess að fá nem endur til að halda sig burt frá billjard-stofum. Á fundi, sem nefndin hélt. var ákveðið að kaupa 135 billj- ardborð og setja þau upp í hin um ýmsu skólum borgarinnar Verzlunar- samningur Verzlunarsamningar milli Breta og Þjóðverja hafa styrkzt mjög síðustu vikur, og hafa full trúar beggja haldið mavga fundi með sér undanfarið. Heimsækja „meistarana4” Moskvaútvarpið hefur til- kynnt, að hópur fulltrúa komm únistaflokks Norður-Kóreu sé nú kominn til Moskva. Ekki hef ur verið skýrt frá hvaða erinda, en þó má telja líklegt, að þeir ætli að fullnuma sig í einræðis- venjum Moskvaklíkunnar. Axis-Sally „Axis-Sally eða Mi’dred Gillars, sú sem talaði í þýzka útvarpið gegn Bandaríkjunum á stríðsárunum, liefur nú verið dæmd sek fj'rir stríðsglæpi og landráð. Gillars er bandarískur borgari, og dvaldist í Þýzka- landi í mörg ár og hjálpaði naz- I istum. Eftir styrjöldina var hún flutt til Bandaríkjanna, og hafa málaferli gegn henni staðið í nokkrar vikur. Nýlega féll dóm ur og verður hann birtur inn- an skamms. „Mnsica;i komið ut Blaðinu hefur borizt mánaðar ritið MOSICA, sem Drangeyjar útgáfan gefur út. í blaðinu eru margar ágætar greinar, m. a. 100 ára dánar- minning Fréderic Chopin, frétt ir úr íslenzku tónlistarlífi, Miklir tónsnillingar (um Arturo Toscanini), viðtal við Kristinn Ingvarsson, orgelleikara. Þá eru og greinar um jazz- kosningar í Bandaríkjunum og margt fleira. MUSICA er prýdd ' fjölda mynda. JLa vio morði Fréttir bei'ast frá Opelusas, Lousiana, U.S.A. að hvítur skríll hafi ætlað að taka negra af lífi, en meðan þeir voru að varpa hlutkesti, til þess að á- hveða, hver þeirra ætti að hafa heiðurinn af böðulstarfinu, hafi negrinn stungið sér í Atchafa- laya-ána og sloppið. Honeycutt, en svo heitir negr inn .liafði nýlega játað á sig að I hafa gert líkamsárás á hvíta ! konu, og þótti þá nokkur ástæða til að myrða hann. (Ur New | York Times, endursagt og i stytt). Blaðamaður rekinn lir Finnska stjómi’n rak fyrir skömmu fréttaritara Associat- ed Press úr landi fyrir skrif, sem hún telur að muni verða skaðleg utanríkisstefnu stjórn- arinnar. Gustav Svensson, fréttaritari A.P., hafði fyrir nokkru skrifað grein og sagt þar að allt benti til þess, að Rússar myndu fara fram á fleiri flota- og herstöðvar í Finnlandi. Svensson kom til Finnlands fyrir tveim vikurn, til þess að starfa fyrir fréttastofu sína þar, en nú er hann kominn til Stokkhólms. Hann hefur skýrt svo frá, að hvert orð, sem hann hafi skrifað, sé rétt, og hafi háttsettur maður innan finnsku stjórnarinnar gefið sér upplýst- ingarnar. William P. Odom, sem árið 1947 flaug tvisv ar í kringum hnöttinn á methraða, hefur nú sett met í langflugi. Hann flaug 2307 mílu r á 13 klukkustundum og 55 mínútum ár, þess að stoppa. Hann flaug frá Honolulu til Kaliforníu.

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.