Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 12.09.1949, Qupperneq 5

Mánudagsblaðið - 12.09.1949, Qupperneq 5
MÁ NUÐAGSBL AÐIÐ ;f /, & r" 5 Mitiiiiii>iii!iiiiiiiiiiiiiiiiRuiiiii>anai!ii!iiiiiiiiiiiiiitiiiiHiuiuBiiiiiiiiiiiiitiiiiitiiiiiiii>iiiaiiii>iiiiiiii>iiiiiiiiiiiiiiiinBi' j MÁNUDAGSBLAÐIÐ | BLAÐ FYRIR ALLA | Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Agnar Bogason. | Blaðið kemur út á mánudögum. — Verð 1 króna í lausasölu, en | árganguriim, 52 blöð, 48 krónur. Afgreiðsla: Kirkjuhvoli, 2. haeð, opin á mánudögum. = Sími ritstjóra: 3975. | Prentsmiðja: Prentfell h.f. MánudSgur 12. sep't. 1949- i Kosningarabb 2. grein Við skulum nú athuga dá- lítið framboðin og kosninga- horfur í nokkrum þeirra kjör- dæma, þar sem búið er að ákveða helztu framboðin. Hajnarfjörður. Lítill vafi er á, að Emil Jónsson verður endurkosinn þar, en kosningabaráttan verður án éfa harðari en síð- ast, og búast má við, að meiri- hluti Emils verði ekki ýkja mikill. Ingólfur Flygenring er langglæsilegastur af hin- um nýju frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins, vinsæll og valinkunnur heiðursmað- ur. Stingur hann mjög í stúf við spjátrungsstráklinga þá, sem flokkurinn býður nú kjósendum upp á í ýmsum öðrum kjördæmum. Talið er víst, að kommúnistar tapi fylgi í Hafnarfirði, og fá þeir nú að líkindum enga uppbót- arþingmenn þaðan. Bjóða þeir Magnús Kjartansson fram í stað Hermanns Guð- mundssonar. Hermann féll í ónáð hjá Moskvuklíkunni á síðasta hausti, er hann neitaði að reyna að halda völdunum í Alþýðusambandinu með of- beldi, þegar kommúnistar voru komnir í minnihluta þar. Hermann er fremur vin- sæll í Hafnarfirði og fékk talsvert af atkvæðum frá kjósendum, sem eru ekki kommúnistar. Magnús mun á hinn bóginn ekki fá atkvæði annarra en starblindra Moskvumanna. Kommúnist- ar vona, að hann græði eitthvað á vinsældum föður síns, en það munu reynast tálvonir. Mýrasýsla. Þar verður kosningin ekki spennandi fremur en fyrri daginn. Bjarni Ásgeirsson nær kosningu með miklum yfirburðum, enda mun hann eiga meiri hluta atkvæða í öllum hreppum sýslunnar, nema í Borgarnesi og í tveim- ur vestustu hreppunum næst- um hvert atkvæði, enda er Bjarni frændmargur á þeim slóðum. Frambjóðandi Sjálf- stæðisflokksins, Pétur Gunn- arsson, er Skagfirðingur og flestum ókunnugur í Mýra- sýslu. Auk þess er það mikið áfall fyrir Sjálfstæðismenn, að merkasti maður flokksins í Mýrasýslu, Sigurður Snorra- son á Gilsbakka, hefur yfir- gefið flokkinn og mun nú standa nærri Framsóknar- mönnum. Kommúnistar hafa að und- anförnu átt talsvert fylgi í Mýrasýslu, aðallega í Borg- arnesi. Nú logar allt í illdeil- um og klíkuskap meðal Borg- arnesskommúnistanna inn- byrðis, og í sambandi við þær deilur hefur flokkurinn skipt um frambjóðanda og býður nú fram Guðmund Hjartar- son í stað Jóhanns Kúlds. Er talið, að fylgi kommúnista muni minnka eitthvað. Fram- bjóðandi Alþýðuflokksins í Mýrasýslu, Aðalsteinn Hall- dórsson, er frambærilegur maður, en fylgi flokksins í sýslunni er sáralítið. Dalasýsla. Þar mun kosningabaráttan verða hörð, en fullvíst má telja, að Þorsteinn Þorsteins- son, sýslumaður, beri sigur af hólmi, þó með litlum at- kvæðamun (kunnugir gizka á um 40 atkvæða meirihluta). Frambjóðandi Framsóknar- manna, Ásgeir Bjarnason í Ásgarði, kvað vera efnilegur maður, og vera má, að hann njóti að einhverju leyti hinna miklu vinsælda föður síns og Ásgarðsheimilisins. Það mun þó ekki nægja honum til að fella Þorstein sýslumann. Hins vegar ber öllum, sem til þekkja, saman um, að énginn Sjálfstæðismaður annar en Þorsteinn mundi geta haldið Dalasýslu, enda er margt vel um Þorstein. Kommúnistar og kratar eiga svo lítið fylgi í sýslunni, að þeir munu eiga fullt í fangi með að fá með- mælendur með frambjóðend- um sínum. Vestur-ísafjarðarsýsla. Þar verður einhver harð- asta baráttan í þessum kosn- i geirsson aldrei hafa verið í | jeins mikilli hættu og nú, en I hann hefur nú verið þing- | maður kjördæmisins síðan | 1923. Telja margir, að séra 1 Eiríkur Eiríksson á Núpi geti | orðið honum skeinuhættur. § Séra Eiríkur er vinsæll í | sýslunni, mælskur vel og | harðvítugur fundamaður. | Fjöldi hinna yngri kjósenda eru nemendur hans úr Núps- skóla, en hann þykir frábær skólastjóri og kennari. Vitað er, að forráðamenn Sjálf- stæðisflokksins vilja mikið til vinna að halda Ásgeiri á þingi, enda hefur hann verið sýnu íhaldssamari en þeir í flestum málum, en þó framar öllu öðru borið eiginn hag fyrir brjósti. Sjálfstæðis- nenn í Vestur-Isafjarðarsýslu munu þó hafa tekið bending- um flokksstjórnarinnar um, að kjósa Ásgeir, fremur fá- lega. Munu þeir flestir fylkja sér um Axel Tulinius, sem flokkstjórnin ætlaði að svíkja. Þeir viðurkenna að vísu, að Ásgeir sé svo sem nógu íhaldssamur, en honum verði í engu treyst. Það getur haft sína kosti að vera alger tæki- færissinni, en það getur líka stundum haft sína ókosti. Austur-H únavatnssýsla. Þar mun Jón Pálmason verða endurkosinn með tals- verðum meirihluta, en þó mun Framsókn að líkindum vinna eitthvað á. Frambjóð- andi Framsóknar, Hafsteinn Pétursson á Gunnsteinsstöð- um, er vel menntur bóndi og fremur vinsæll, en við und- anfarnar kosningar hefur Framsóknarflokkurinn ekki verið heppinn með val fram- bjóðanda í sýslunni. Hannes Pálsson á Undirfelli var ákaflega óvinsæll í héraði þrátt fyrir góðar gáfur, og Gunnar Grímsson, sem síðast bauð sig fram fyrir flokk- inn, var utanhéraðsmaður (Strandamaður) og lítt þekktur í innsveitum sýsl- unnar. Kommar og kratar eiga lítið fylgi í Austur- Húnavatnssýslu. Jón Pálma- son hefur ýmsa góða kosti, en flámæli hans í forsetastóli er hörmulegt að heyra. Get ég varla trúað öðru en að þeir Jón Pálmason og Hermann Guðmundsson séu hljóðvillt- ustu menn, sem nokkurn tíma hafa átt sæti á Alþingi. Gísli Jónsson mundi líklega verða sá þriðji í röðinni. Austur-Skaftafellssýsla. Þar verður líklega mjög hörð kosningabarátta. Leggur Sjálfstæðisflokkurinn mikið kapp á að ná kjördæminu úr höndum Framsóknar. Á hinu leitinu eru svo kommúnistar, sem höfðu uppbótarmann úr sýslunni síðasta kjörtímabil. Annars væri synd að segja, að Austur-Skaftfellingar hefðu mikið mannval um að velja við þessar kosningar. Páll Þorsteinsson er að vísu vel þenkjandi meinleysismað- ur, en hann er ekki skörung- ur í einu né neinu. Gunnar Bjarnason er fullur af remb- ingi og spjátrungshætti. Ásmundur Sigurðsson er enginn kappi og algert handbendi Moskvuklíkunnar. Aumingja Austur-Skafta- fellssýsla! V estur-Skaftafellssýsla. Talið er sennilegast, að Sjálfstæðismenn vinni kjör- dæmið aftur frá Framsókn með litlum meirihluta þó. Sigur Jóns Gíslasonar 1947 (en þá var hann kjörinn með 6 atkvæða meirihluta) byggð- ist á því, að hann fékk at- kvæði um 30 kommúnista og 10—20 Alþýðuflokksmanna, því að við aukakosningar urðu atkvæðin þessum flokk- um að engu gagni, en við aðalkosningar koma þau flokkunum að notum við út- hlutun uppbótarsæta. Má því búast við, að Jón Gíslason missi á þenna hátt 40—50 at- kvæði, og við því má hann ekki. Líklega verður því Jón Kjartansson kosinn. Jón- arnir eru annars báðir mjög frambærilegir menn, svo að Austur-Skaftfellingar mega öfunda Vestur-Skaftfellinga af mannvali þeirra. Ajax. Þjóðleikhús- stjórinn og „Gæstespil“ Þjóleikhússtjórinn er nú nýkominn úr ferðalagi um Norðurlönd. Eftir viðtal í „Vísi“ virðist Þjóðleikhús- stjórinn vera hættur því að „ráða“ hingað til Þjóðleik- hússins ýmsa óperu- og leik- flokka, því eftir orðum han$ að dæma í „Vísi“ þá bjóðast nú óperuflokkar frá Noregi til þess að koma hingað — hvílíkur heiður! Því vitað er að í Noregi er ekki til ópera, sem er starfandi, heldur að- eins byrjunarflokkar, sem upp og niður náungar starf- rækja, og má í þessu sam- bandi minna á það, að Einar Sturluson hefur verið ráðinn til þess að starfa með einum þessum byrjenda-söngflokki 1 landi Guðlaugs, Noregi. Væri annars ekki skyn- samlegra fyrir Rósenkrans að reyna til þess að hafa friðsamlega samvinnu með íslenzkum leikurum og setja Kvöldskóli K.F.U.M. Sú villa slæddist inn í frá- sögn um skólann hér í blað- inu á dögunum, að hann yrði settur í húsi K.F.U.M. og K. við Amtmannsstíg laugardag- inn 1. okt. kl. 3% e. h„ en átti að sjálfsögðu að véra: kl. 8 e. h. — Þetta eru hjptaðeig- endur beðnir að athuga. Ennþá geta örfáir nemend- ur komizt í skólann og fer innritun fram í nýlenduvöru- verzluninni Vísi, Laugaveg 1. Tímaritiö „Samtíðin“ Septemberhefti þessa vin- sæla tímarits er komið, mjög fjölbreytt að vanda. Benedikt G. Waage skrifar um mál- vöndun íþróttafólksins. Rit- stjórinn, Sigurður Skúlason, skrifar um námsafrek Rann- veigar Þorsteinsdóttur lög- fræðings, þörfina fyrir aukin verzlunarviðskipti við Spán og hina nýju listaverkabók Ásgríms Jónssonar. Halldór Stefánsson fyrrv. alþm. á þarna þarfa grein, sem hann nefnir: Heilsuvernd er betri en lækning. Þá er hinn vin- sæli tækniþáttur um geysi- iegar framfarir á sviði plast- iðnaðarins. Nýr þáttur um ísl. iðnað hefst í þessu hefti, og er fyrsta greinin um Veiðar- færagerð íslands. Loftur Guð mundsson skrifar í hinuin bráðfyndna þætti sínum: „Satt og logið“ grein, er nefn- ist: Hvernig gleymdi nútíma- maðurinn að tala? Þá er kvæði eftir Gunnar Dal. Framhaldssaga. Skopsögur og skrítlur, myndasíða, bóka- fregnir, krossgáta o. m. fl. upp þjóðlega stofnun, bæði söngleiki og leiki, — sem að'- eins íslendingar störfuðu að, — heldur en í tíma og ótíma að vekja vonir hjá útlending- um um „Gæstespil“ við hið ís- lenzka „National Teater“ og spila sig þannig stóran mann í útlöndum, því vitanlega „bjóðast“ hingað aðeins þeir „flokkar“, sem lítið hafa að gera í heimalandinu! Lofum Guðlaugi Rósen- krans að fá orður og titla frá þessum Norðurlandaþjóðum, en hann á .ekki að starfa ein- göngu fyrir þær, því það væri ef til vill hægt að koma mönn- um í skilning um það, að með þessu háttalagi þjóðleikhús- stjóra sé um að rœðá nýja. „Stef“-öldu, sem vill gera ís- lendingum sjálfum ókleift að. starfa hér. Stígandi. IIIII! 1111III lllllllll III illllllÍIIII III !!l III !ll IIIIIIIIIIII IIBIl4V Útbreiðið | Mánudagsblaðið i fliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinaiiRut

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.