Mánudagsblaðið - 24.10.1949, Blaðsíða 7
iMtnaninraniiMiminmniuiniiiiiuniiiiiiiuiinnn'iiiiiMniiiimiiiitiiiiniiiiiiiniiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHitiiuiiiiiiiiiitiiiiintiiiitiitiMutHiidiiiiiiiiiiiiuiiitiitiiniitnMRifnflinHiiiiiitiiiiiiiiiliiiiiiii DinniiiiiiiiiuiiiiHiuiitiiiiintiiHiiiuiiiiiiitiiiiiniinMiiirnmttiiiniiiiiiiiiiiuiniuiiiiiiiuiiiiiitmninnimiiiiiiiiniiiinitiiiiiiiHiiiinttiitiiiti!
Mánudagur 24. október 1949.
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
7
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
BLBÐ FYRIR ALLA
Lesendum blaða hér á landi er nú þegar kunnugt, að hér er aðeins
eitt blað, sem fjallar jafnt um þjóðmál sem önnur mál og heldur hlutleysi
sínu. öll þau mál, sem skipta hag almennings, eru rædd í Mánudagsblað-
inu, og okkur er jafnan ljúft að hirta allar hliðar þeii-ra mála, sem mest
eru rædd.
Að vísu hefur orðið vart d' itillar óánægju meðal þeirra, sem vegna
einhverrar ástæðu hræðast f rjálsa blaðamennsku, en við slíku er að búast,
og verður ekki við því amazt.
Það hefur vakið nokkurt umtal, að blað, sem ekki hikar við að benda
á það, sem miður fer I þjóðfélaginu, skuli geta haldið áfram að koma út.
Ástæðan til þess, ef vel er að gáð, er augljós: íslenzkir blaðalesendur eru
orðnir langþreyttir á flokksbundnu blöðunum og vilja framar öllu vita,
hvað raunveruíega er að gerast.
Fastir dálkar í blaðinu hafa náð miklum vinsældum. Dálkar Jóns
Reykvíkings, sem birtir eru í nær hverju blaði, Kvennadálkur Clíós og
greinaflokkur eftir Ajax um ýmis málefui liafa vakið umræður meðal
iesenda.
Fyrir þá lesendur, sem ekki fylgjast með stjórnmálum eða öðrum
þjóðmálum að staöaldri, er líka nóg efni. Nægir þar að benda á kvik-
myndagagnrýni, spennandi sögur, fréttir og upplýsingar á sérstökum
sviðum, og nú í haust hefjast á ný leikarafréttir, sem áttu miklum vin-
sældum að fagna meðal yngri lesenda. Mánudagsblaðið getur því sannar-
lega kallazt BLAÐ FYRIR ALLA.
Þegar Alþingi kemur saman, mun blaðið hafa sérstakan þingfrétta-
ritara, en hann mun fylgjast með öllu því, sem gerist í þingsölum okkar
og upplýsa störf þingfulltrúa okkar. AUir, sem áhuga hafa á landsmálum,
ættu því að fylgjast með þingfréttum blaðsins.
Nú fer að hausta og kólna í veðri. Ekki er þá við að búast, að jafn-
margt fólk verði á götunum á mánudagsmorgnum, þegar sölubörn bjóða
blaðið. Til þess að þið þurfið ekki að missa af blaðinu, bjóðum við ykkur
að gerast áskrifendur og fá blaðið sent heim á mánudagsmorgnum.
Ef þið viljið verða áskrifendur blaðsins, þá gerið eitt af tvennu:
Hringið í síma 3975 og gefið upp nafn og heimilisfang eða fylhð út
eftirfarandi áskriftarlista.
ÞEKKIÐ SANNLEIKANN
Útbreiðið
Mánudagsblaðið
Auglýsið í Mánudagsblaðinu
giiilHiiiiuriiiiiiigiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiii
Lesið
Mánudagsblaðið
Ég undirrit óska eftir að gerast áskrifandi að
Mánudagsblaðinu.
Nafn ........................................
HeimiU ......................................
Staður ......................................
Utanáskrift:
Mánudagsblaðið
Reykjavík.
iiiiiiiiiMiiiiiiiiiiuiiniiiiiiuiiiiniiiiiiitiinniiiiBuiuiirvnMifntniMiNiutiiiiiiniuiuBuiiiiHiuiufiiiuiiiiuiuuiitiiiwtinviiinnTiirviTtiwifiiiniinu ■
iriitiittiHitiiiiiiiiiiiiiiniuiuiHiRiiiiHininiitiiminiuiiiiHiuininiuiHiiiriiuiuiHiHiMuiMHiuiuiiiiuiuiuiiiiiiiiiiiirtniHiuiniinurtiiiiuraiiiiuiHiRiuMiiiiurtniBiraMHiiuuiHiiiiiitniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiNiiiliniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiNiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiitiii