Mánudagsblaðið - 08.05.1950, Side 1
19. tölublað.
_ -
Mánudagurinn 8. maí 1950
Listamanna-
þinginu sliiið
Listamannaþinginu var
slitiö meö hófi aö Hótel
Borg síðastliöinn laugar-
dag. Hófið sátu gestir þings
ins, menntamálaráðherra,
forsætisráðherra, forsetar
Alþingis auk margra ann-
arra.
Páll ísólfsson, tónskáld,
stjórnaði hófinu en -ræöu-
menn voru m. a. forsætis-
ráðherra, borgarstjóri, rekt-
or Menntaskólans, Ásta
Norðmann, Jón Pálmason
og Vilhjálmur Þ. Gíslason.
Formaður Bandalags ís-
lenzkra listamanna, Tómas
Guðmundsson, skáld, flutti
lokaræöuna og sleit jafn-
framt þinginu.
Ræða Tómasar var af-
burðasnjöll, sem ræður
þessa ágæta listamanns eru
jafnan. í lok ræðunnar
þakkaði hann öllum þeim,
sem að sýningunni stóðu
og þá séstaklega formanni
sýningarnefndar Helga Hjör
var og framkvæmdastjóra
Gunnlaugi Pálssyni, arki-
tekt. Lokaorðin í ræðu Tóm-
asar voru þessi: „Um leiö
og ég lýsi yfir því, að lista-
mannaþinginu 1950 er slit-
ið, vildi biöja yöur um að
rísa úr sætum og hylla ís-
land, vöggu vora og fóstur-
jörð meö ferföldu húrra-
hrópi“. Lauk þá hinu 3. lista
mannaþingi.
Um tíu-leytið var staðið
upp frá borðum og stigu
sumir dans fram til klukk-
an 2 um nóttina en aðrir
drukku ómælt.
í landi kunn-
ingsskaparins
Það er gott að vera
flokksbundinn í Reykja-
vík, sérstaklega ef þú
hefur enga sannfæringu,
ert ríkur og fylgir Sjálf-
stæðisflokknum. Við skul
um taka eitt t.d .
Á laugardaginn var
opnaður , pylsuvagn11 1
gömlu B.S.R. afgreiðsl-
unni í Austurstræti. Bæj-
ar st j órnarmeir ihlutinn
samþykkti 1 síðustu viku
leyfi til þess að þarna
mætti selja pylsur og
mjólk. Umsókn um leyfið
lá fyrir bæjarstjórn um
nokkurt skeið.
En svo ósvífinn er
Fjögur reginhneyksli:
rannséknar
c
sm - Bnrf meS é&arfa seniráS - HvaS verSisr issn
Mjólkurhneykslið
Föstudaginn 5. þ. m. fluttu blöðin geigvænleg
tíðindi. Mjólkureftirlitsmaður ríkisins hafði visvit-
andi haldið verndarhendi yfir tveim mjólkurbúum,
sem seija mjólk sína til höfuðstaðarins.
Hér er um glæpsamlega vanrækslu að ræða, sem
hefði getað valdið hryllilegum atburðum í Reykja-
vík. Almenningur kaupir hér matarvörur í þeirri
góðu trú, að ríkið líti eftir því, að ekki sé selt annað
en óskemmdur matur, sem skoðaður hefur verið
af viðkomandi yfirvöldum. Þegar svo er upplýst, að
maður í jafn ábyrgðarmikilli stöðu og Eðvarð Frið-
riksson, mjólkureftirlitsmaður ríkisins, hefur gcrzt
sekur um svo alvarlegt brot í starfi sínu, sem þetta,
þá er von, að almenningur spyrji, hvort slík van-
ræksla eigi sér stað hjá t. d. þeim, sem skoða aðrar
matartegundir. Dómsmálaráðuneytið ætti nú þegar
í stað að víkja Eðvarð Friðrikssyni frá starfi og
höfða jafnframt mál gegn honum, svo að almenn-
jngur fái upplýsingar um, hversu þessum málum
er varið. Væri það því ólíkt hentara en að eltast við
ritstjóra blaðanna út af smávægilegum meiðyrðum.
Einnig bæri í þessu sambandi dómsmálaráðuneyt-
inu að láta fara fram nákvæma rannsókn á mat-
vælaeftirlitinu, svo að rannsóknarmenn þess gætu
fengið eitthvað til þess að sökkva tönnunum í.
Sendiráðcrfarganið
Upplýst er, að kostnaðurinn við sendiráð okkar í
Moskva nemur nú 900 þúsund krónum á ári. Gróð-
inn við að hafa fulltrúa þar er hinsvegar enginn.
Forustumenn íslenzku þjóðarinnar hafa gert mikið
að því að hvetja almenning til þess að spara. Það
má heita furðuleg bíræfni að krefjast þess af al-
menningi, sem þegar er hálfsligaður af sköttum og
skyldum, þegar við daglega horfum upp á taum-
lausa eyðslu hins opinbera, þegar starfsmenn þess
og \iidar\0nir einstakra stjórnmálamanna velta sér
í auði bitlinga og sendinefnda. Gaman vær iað vita,
Gunnar Thoroddsen og
Jóhann Hafstein og
íhaldsmeirihlutinn hér í
Reykjavík, að eigandi
þessa „pylsuvagns“ byrj-
aði að innrétta hann
rúmum tveim mánuðum
áður en leyfið var sam-
þykkt í bæjarstjóminni,
áður en heilbrigðisnefnd-
in hafði samið ályktun,
og meðan málið var til
umræðu. Eigandinn var
búinn að láta smíða fall-
egan bar, setja upp nýj-
an ísskáp og yfirleitt
ganga frá sölustaðnum
löngu áður en leyfið
fékkst.
Þaö er sannarlega gott
að eiga slíka að í henni
Reykjavík.
hvað við eiginlega höfum að gera við margmenn
sendiráð í Osló, Stokkhólmi, París og víðar, þegar
fjármálaráðherra lýsir því yfir, að hann hafi ekki
hugmynd um, hvaðan gjaldeyrir fæst til þess að
flytja inn nauðsynjavörur lianda landsmönniun.
Það er nú svo komið, að almenningur krefst þess að
stjórnin geri einhverjar raunhæfar ráðstafanir til
þess að lækka dýrtíðina og ránið úr vasa skatt-
greiðenda. Ef stjórnin vill sparnað, þá ber henni
fyrst og fremst að líta í eigin barm og binda endi á
taumlaust óhóf og spillingu, sem fest hefm” rætur
sínar þar. Burt með óþarfa sendiráðin og nefndirnar.
Innflutningur S.Í.S.
Fróðlegt væri að vita, hveru margir ísskápar
og bifreiðar komu til landsins með einu af skipum
Sambandsins réttfyr ir páskana. Almannarómur tel-
ur, að skáparnir hafi verið allt milli 80—110, en
bifreiðarnar 10. Tollurinn neitar að gefa upp farm-
skírteini skipsins, sem ekki er að furða. Gæti hið
opinbera krafizt þess, eða að minnsta kosti ráð-
herrar Sjálfstæðisflokksins, að Sambandið upplýsti
sannleikann í þessum málum, eða var það meðal
samningsatriða stjórnarflokkanna, að báðir skyldu
dyggilega hylma yfir syndir hvors annars? Dýr
verður Ólafur allur, ef svo skal metinn hver limur.
Einnig væri mjög gaman að fá að vita, hvað margir
ísskápar hefðu verið veittir á nöfn í Vík í Mýrdál
og svo skýrslur um hversu margir ísskápar og aðrar
heimilisvélar eru í Vík í Mýrdal. Ef rétt verður talið,
þá eru leyfin nálega á hvert hús þar, en skáparnir
þrír. Hver fékk hina, spyrjum við höfuðpaur Sam-
bandsins?
Ógœfumaðurinn oq Ó. Thors
Alþýðublaðið hirtir að verðleikum skipti hins
opinbera við hinn ógæfusama Björgvin emigrant.
Rothögg ríkisstjórnarinnar á lög og reglur, almenna
siðsemi og aðra hluti, sem sjálfsagðir teljast meðal
siðaðra þjóða, var greitt, þegar Ólafur Thors lagði
blessun sína yfir Björgvin, gaf honum upp skuldir,
sem námu tveim milljónum og sendi honum auk
þess 20 smálestir af ýmsmn nauðsynjum vestur til
Nýfundnalands. Ólafur, sem ahnennt er kallaður
„ósýnilegi maðurinn" á þingi, hefur enn ekki reynt
að svara ákærum, en Sigurður frá Vigur varði Björg-
vin að! skipuri innsta ráðs Sjálfstæðisflokksins. Er
nú Sigurði orðið' allt ofurefli nema bjórinn, enda
verður það hann, sem geymir nafn hans um ókom-
in ár. Ilaltu þér við bjórinn, Sigurður — hann svík-
ur þig ekki.