Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 01.06.1953, Page 8

Mánudagsblaðið - 01.06.1953, Page 8
DREINUIANNAÐ Skattskránni seinkar — Leikhúsliornið — Börnin og í|>róttavöllurinn — Kósinkranz og forsetastúkan. ÞVf ER BÖRNUM EKKI LEYFT að sitja fyrir framan grindurnar á Iþróttavellinum ? Þessi litlu grey eru troðin undir, þegar margt er á vellinum og hrakin víðsvegar. Forráðamenn vallarins ættu að sjá um að snáðarnir njóti leikanna engu síður en fullorðnir. Auk þess finnst oss, að krakkar, allt að 10—11 ára að aldri ættu að fá frían aðgang. íþróttahreyf- ingin nýtur styrks og henni ber skylda að hlúa að áhuga yngstu borgaranna. ÞAÐ VEKUR ANDÚÐ áhorfenda, að Rósinkranz og vinafólk hans skuli alltaf vera að flækjast í for- setastúku Þjóðleikhússins. Stúkan á að vera tóm, nema þegar forseti og fylgdarlið hans nota hana. STJÖRNARFLOKKARNIÍt hræðast nú kosning- arnar meira en góðu hófi gegnir og beita ýmsum brögðum til þess að breiða yfir syndir sínar. Síðasta bragðið er það, að seinka útkomu Skatt- skrárinnar þar til kosið hefur verið. Skráarófétið átti að koma út fyrir kosningar, en skyndilega fékk prentsmiðjan skipun irm það að vinna hægt að henni og m. a. sleppa allri aukavinnu. Þessi ráðstöfun nægir til þess, að skráin kemur ekki út fyrr en eftir kosningar. Jæja, GUNNAR HANSEN er nú kominn í ljósa- dýrð Bachmanns í Þjóðleikhúsinu. Hann á að setja upp „Private lives“ eftir Noel Coward í haust, og verð- ur það sennilega fyrsta sýningin þar. Þá er og hjalað, að Nitouche-óperettan verði flutt þar. Víst er talið, að „Landið gleymda“ mum hirða þann gróða, sem Þjóðleikhúsið hafði af sýningum eins og Topaze og Rekkjunni. Sök sér ef um góða sýningu hefði verið að ræða — en svo var ekki. MÍR-lónleikar í Ausfurbæjarbíó Tveir rússneskir listamenn liafa haldið konserta hér á vegiun MÍR. Eru það frú Kra.vtsenko (píanó) og herra Lisitsian (barytón og „þjóð- listamaður" Sovét-Rússlands og Sovét-Armeníu). Frúin er duglegur pían- isti, en hún virtist ekki skilja Chopin mjög vel. Hins vegar var allt öðru máli að gegna ura Rachmaninoff og Kabal- ewski. Sérstaklega var áber- andi hve frúin náði mikl- um hljómi, og ræður hún yfir unjög hnitmiðaðri tækni. — Heildarsvipurinn yfir leik f rúarinnar var glæsilegur, ef til vill miklu glæsilegri en hvað hann var innilega list- rænn. Barytóninn Lisistsian er af- burðagóður söngvari. Tón- anyndun hans er mjög góð og raddblærinn nær alltaf við- íkunnanlegur og stundum mjög fagur. Þarna söng mað- :ur, sem hafði söngtækni mjög á valdi sínu. Efnismeðferðin ;var glæsileg og sterk. Lisitsi- an ef vafalaust með beztu eöngvurum, sem hér hafa heyrzt. Þriðjudaginn 2. júní verður Elísabefc drofcfcning Breta krýnd. — Krýningin verður mjög háfcíðleg. — Myndin sýnir drottninguna og mann hennar, Filipus hertoga. Pavel Lisitsian. Mikið var klappað. Mátti sjá og heyra, að hér var um pólitískan konsert að ræða. Mátti sjá það á því, að þarna gat að líta menn og konur, sem annars sjást aldrei á konsertum, en því oftar á fundum í Stjörnubíó eða í kaffi á Miðgarði. En pólitíkin heyrðist á því, að hinir ó- músíkölsku konsertgestir komu upp um sig með því að klappa inni í miðju lagi, sem er alþekkt. Var klapplið þetta auðþekkjanlegt. Ef þessi póhtiski músík- svipur er frá tekin, svo óekta sem fcann var, þá var þessi konsert mjög ánægjulegur. Bakk. Hneykslið að Keldum BÆTUR. Þurfti hann að' fá sam- þykki rektors til þessa lítilræðis sökum þess, að þetta viðbótarfé — 50 000 dollarar — frá Rocke- fellerstofnuninni átti svo að koma sem GJÖF TIL HÁSKÓLA ÍS- LANDS. Þannig virðist rektor Háskólans bera yfirábyrgð á þessu viðbótarfé. — En maðurinn er góðhjartaður og virðist taka það nærri sér að skýra sjálfur'frá sannleikanum opinberlega. 4. Hr. Einar Bjamason er að reyna að bera blak af byggingar- nefndinni á Keldum. Það er nú með þessar 227 000 krónur, svo virðist sem allir hafi flaskað á þeim. Hr. Ásgeir Pétursson sagði, að eftir skýrslum að dæma væri búið að greiða mér G00 000 krón- ur í dýrtíðaraukningu, og sama sagan var með rektor Háskólans, hann tók þær sem sjálfstæðar tölur. Kem ég þá að játningu Bjöms á Keldum. Hann segir, að tölurn- ar í skýrslum til Rockefellerstofn- unarinnar séu að öllu leyti réttar, og hefur það verið staðfest af end urskoðunardeild fjármálaráðu- neytisins, en SVO KEMIIR játn- ingin. Þar stóð: Til verktaka fyr- ir aukaefni og vinnu kr. 358.648,02, en þar liefði þá átt að standa, ef verktakarnir voru margir: Til ýmissa verktaka. Og hverjir em þeir þá, þessir „ýmsu verktakar“? 1. Húsameistari ríkisins. 2. J. Þorláksson og Norðmann selur nokkra poka af sementi. 3. Ýmsir reikningar um 20.000 krónur. 4. Axel Kristjánsson Rafha sel- ur gips. Þetta nægir til að sýna óheil- indin. En svo kórónar nefndin þetta með því að þetta sé falsað í ógáti, eins og stendur í Þjóðvilj- anum 13. nóv. 1052. Ja, þetta eru nú menn, sem blakta! En þið, góðu herrar í stjóraarráðinu, haf- ið ekki mótmælt amerísku skýrsl- unuffl. Sveinbjöm Kristjánsson. MÁNUDAGSBLA&IÐ Opinber ákœra á heudur landlækni? Landlæknir er sem kunnugt er ritstjóri og útgefandi rits, sem nefnt er Heilbrigðisskýrsl ur, og gefið er út árl., og sent víða um lönd, þar á meðal til .Heilbrigðisstofnunar Samein- uðu þjóðanna*. Rit þetta hef- ur aðeins, eða á að hafa aðeins eitt markmið, að gefa hlut- lausa skýrslu um heilbrigðis- ástand þjóðarinnar. Þeir hér- lendir menn, er undanfarin ár hafa lesið skýrslur þessar, munu hafa veitt því athygli, að inn á milli hinna fróðlegu talna eru aðfinnslur og ákæru greinar á ýmsa slækna og læknastéttina í heild; greinar er minna óhugnanlega á ,,Skutul“ gamla á Isafirði, á meðan hinn pólitíski andi Vil- mundar Jónssonar sveif þar yfir vötnum. Um það skal ekki dæmt hér, hversu mikil rök hafi hingað til legið á bak við árlegar að- finnslur og kærur landlæknis, því ekki hafa heyrzt, svo vitað sé, óánægjuraddir úr hópi lækna né leiðréttingar. Þungar ákæru á t\ o lækna á Isafirði. I síðustu heilbrigðisskýrsl- um keyrir alveg um þverbak. Lensar landlæknir þar fyrir fullum seglum, með hinar þyngstu ákærur á hr. yfir- lækni Bjarna Sigurðsson á ísafirði, þar sem að því er virðist er borið á lækninn að hann leggi líf fjölda manna í stórhættu með holskurðaað- gerðum að ástæðulitlu. Og rök rétt ályktun er sú, að þetta athæfi sé framið í gróðaskyni Annar læloiir þar á staðnum liggur að vissu leyti einnig undir sömu ákæru, sem sé, frambjóðandi Sjálfstæðis flokksins þar, hr. Kjartan Jó- hannsson, því flesta sjúkl- inga leggur hann inn á sjúkra húsið; og svo er hann enn- fremur aðstoðarlæknirBjama Sigurðssonar. Það er strax hægt að fullyrða, að þessi kæra landlæknis átti ekki heima i heilbrigðisskýrslun- um; hún átti beint að sendast til viðkomandi sakadómara. Og annað er strax hægt að fullyrða, að kæran er öll á sandi byggð, og gjörsamlega óverðskulduð. Og mjög leiðin- legt er og fullkomið hneyksli, að slíkt og þvílíkt skuli að al- gjörlega órannsökuðu máli koma fyrir auga sérfræðinga jafnvel birtast í stórblöðum erlendum. Það virðist alveg óhugsan- legt annað en að bæði íslenzk yfirvöld og læknafélagið ís- lenzka láti mál þetta ekki af- skipfcalaust, og hreinsi mann- orð ágætra lækna af ófyrir- gefanlegri lausmælgi yfir- manns stéttarinnar. Væri ekki ennfremur athugandi, hvort ekki bæri tafarlaust að fá ann an lækni fyrir ritstjóra hinna opinberu heilbrigðisskýrslna. Eiturlyf jamálið Islenzka í erlendum blöðum. I dönskum blöðum, og senni lega í blöðum fleiri þjóða, hef- ur verið á það minnzt, að fs- lendingar noti alls konar eit- urlyf umfram aðrar þjóðir. M. a. hefur danska læknablaðið gert þetta að frásagnarefni. Frétt þessi er höfð eftir Vil- mundi Jónssyni, og tekin upp úr riti hans, Heilbrigðisskýrsl um. Þessa eftirtektarverðu frásögn hefur svo landlæknir endurtekið í boðsbréfi s. 1. sumar, og borið þær þungu á- sakanir á læknastéttina í heild að gefin séu út eiturlyfja- recept í tíma og ótíma, að ástæðulausu, og í svo miklu magni, að um verulegar eitur- lyfjabirgðir sé að ræða á heimilum víðsvegar í bænum. Það má fullyrða hér, að dregið er yfirleitt í efa að rétt sé frá skýrt, hvað snertir gífurlega notkun eiturlyf já á íslandi, og alveg fráleitt og fullkomin ó- sanniudi, að íslenzldr læknar séu eiturlyfjagefendur um f ram það, sem nauðsynlegt er, og tíðkast meðal erlendra lækna. Þessa fruntalegu á- kæru ber að rannsaka tafar- Framhald á 3. síðu. Mvað á a& gera í kviild Gamla Bíó: Eg þarfnast þín. Farley Granger, Dana And- rews — kl. 5, 7 og 9. Nýja Bíó: Synir banakstjórans. Edwará G. Robinson — kl. 5, 7 og 9. Tjarnarbíó: Carrie — kl. 9. Lajla — kl. 5 og 7. AusturbæjarMó: Þjónustustúlkan. Jane Wyman — kl. 5, 7 og 9. Hafnarbíó: Státnir stríðsmenn. David Waine — kl. 5, 7 og 9. Stjömubíó: Syngjmn og hlæjum. Bob Crosby — kl. 5, 7 og 9. -Tripolibíó: Brunnurinn — kl. 7 og 9. LEIKHÚS: Þjóðleikhúsið: La Traviata. — Ópera. Dox-a Lindgren, Einar Krist jánsson — M. 20.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.