Mánudagsblaðið - 22.06.1953, Side 1
Mánudagurinn 22. júní 1953,
argangur
22. tölublað.
- Framboðin í Reykjavík -
| Ajax skrifar um: |
| Xlþinjis- !
kosninjAf
Óvíða á landinu er eins erfitt að
segja fýrir um úrslit og hér í
Reykjavík. Áhugi almennings á
kosningurium. virðist ekki mikill.
Mikill hluti Reykvíkinga er. orð-
inn leiður á stjórnmálaþvarginu.
Því fer fjarri, að annar eins kosn-
ihgahiti sé í þessari kosningabar-
áttu og í forsetakosningunum í
fyrra. Og fjöldi fólks virðist enn
ói'áðnir í því á hvaða lista það
lætur atkvæði sín falla. Einkan-
Jega virðist margt fólk reika á
mörkum Sjálfstæðisflokksins og
Lýðveldisflokksins og milli komm
únista og Þjóðvamarmanna.
A-lisfinn
Þar eru tvö efstu sætin skipuð
eins og síðast. Haraldur er efstur
og Gylfi annar. í þriðja sæti er
Alfreð Gíslason læknir, vinsæll
maður, sem annars hefur tekið'
Htinn virkan þátt í pólitík. Af
þeim, sem neðar eru á listanum,
vekur Grímur Þorkelsson mesta
áthygli. Hann hefur verið í fram-
boði fyrir kommúnista við undan-
farnar kosningar, en hefur nú yfir
gefið þá.
Margt er á huldu um fylgi Al-
þýðuflokksins í Reykjavík nú. —
Sennilega missir hann eitthvað
slangur af atkvæðum til Þjóð-
varnarmanna. Það hefur lika
heyrzt, að eitthvað af fylgi hans
yzt til hægri muni fara yfir á
Lýðveldisflokkinn. Þess ber að
gæta, að Jónas Guðmundsson á
marga vini í Alþýðuflokknum. Á
hinn bóginn telja ýmsir, að Al-
þýðuflokkurinn muni fá eitthvað
af atkvæðum frá fyrrverandi
Sjálfstæðisfólki, sem studdi Ás-
geir í forsetakosningunum. Á A-
listanum eru nú m. a. Björn Páls-
son fli^gmaður, sem var einn
helzti stuðningsmaður Ásgeirs. —
Mestar líkur eru á þvi, að Al-
þýðuiflokkurinn f|i aftur einn
mann kjörinn í Reykjavík, og
svo auðvitað einn uppbótarþing-
mann.
E-iÍStÍRtl
Þar er Rannveig aftur í efsta
sæti, en heyrzt hafði, að hún væri
treg til framboðs. í öðru sæti er
Skeggi Samuelsson, sem-er flutt-
ur til bæjarins vestan af Fjörðum
fyrir nokkrum árum. Heyrzt hef-
ur, að Skeggi hafi fvrr á árum
verið bendlaður bæði við komm-
únista og Alþýðuflokkinn, hvað
sem hæft kann að vera í því. —
Flestir hinir á listanum eru kunn-
ir Framsóknarmenn. Listanum er
styrkur af Ingvari Pálmasyni
skipstjóra, sem er harðduglegur
aflamaður og vinsæll meðal sjó-
manna. Athygli vekur það, að á
listanum er frú Valborg Bents-
dóttir, sem til skamms tima hefur
verið talin gallharður kommún-
isti.
Það er líka erfitt að spá um
fylgi B-listans. Andstæðingar list-
ans halda því fram, að hjá Fram-
sókn muni verða stórfellt fylgis-
hrun og Rannveig muni kolfalla.
Það er líka víst, að allmargt fólk,
sem síðast kaus Rannveigu, gerir
það ekki nú. Talsvert af vinstri
Framsóknarmönnum fer yfir til
Þjóðvarnar og einhverjir hægri
menn flokksins til Lýðveldis-
flokksins. En ég er samt ekki viss
um, að Framsókn tapi eins miklu
og margir halda.' Eg gæti trúað,
að hún fengi nokkurn vegin sama
atkvæðamagn og síðast, en auð-
vitað er mjög hæpið, að það dugi
nú til að koma Rannveigu á þing.
Lofsöngur Timans um Rannveigu
er ósköp leiðinlegur, og hún græð-
ir áreiðanlega ekkert á honum.
Hinsvegar gæti ég vel trúað, að
hún græddi eitthvað á hinum sí-
felldu skömmum í blöðum and-
stæðinganna, sem oft og tiðum
eru vægast sagt ósmekklegar.
C-lisfinn
Þar eru í efstu sætunum gömlu
þingmennirnir þrír, Einar Oigeirs
son, Sigurðnr Guðnason og Brj n-
jólfur Bjarnason. Ekki hefur orð-
ið úr því, að Sigui'ður hafi verið
látinn draga sig í hlé, því að sam-
komulag náðist ekki um eftir-
mann hans, og vildu margir
hreppa hnossið. Eðvarð Sigurðs-
son, Eggert Þorbjarnarson, Snorri
Jónssen, Guðgeir Jónsson og lík-
lega margir fleúá. Útkoman varð
sú, að gamli maðurinn varð aftur
í kjöri, og það er svo sem engin
skömm að honum, þetta er heið-
urskarl. Hann er í eðli sínu alltaf
sami afdalabóndinn, sinnugur og
velviljaður, þröngsýnn og smá-
glúrinn.
í fjórða sæti er Gunnar M.
Magnúss, baráttustjóri gegn her í
landi, sem var látinn draga sig í
hlé í Vestur-ísafjarðarsýslu til að
fara fram í Reykjavík. Framboð
Gunnars á að sýna það, að fleiri
en kommúnistar standi að listan-
um. En þarna hefðu kommúnist-
ar getað verið klókari í vali. Jafn-
vel hörðustu flokksmenn eru
hundóánægðir með Gunnar og
draga engan dul á það. Einkan-
lega draga hinir intellektúellu
dár að honum, liklega meir en
hann á skilið. Naivitet Gunnars
vekur megnaða kátínu í þeim
sofistiseraða hópi. Annar maður á
listanum, sem ekki er flokksbund-
inn og aðallega styður flokkinn
vegna hersetumálanna, er Lárus
Rist, sem í alla staði er stórbrotn-
ari og rismeiri persóna en Gunn-
ar M. Magnúss. Annars eru fjest
andlitin á listanum gamalkunnir
kommúnistar. Þarna eru yfir-
stéttarkommúnistamir gömlu frú
Erla Egilsson, Kristinn Björnsson
læknir og Halldór Kiljan Laxness.
Þarna er líka Einar G. Einarsson
lögfræðingur, sonur Guðrúnar
Guðlaugsdóttur, Sjálfstæðiskon-
unnar miklu--------—.
Um fylgi C-listans eru spárnar
harla sundurleitar. Sumir spá
kommúnistum fylgisaukningar,
aðrir stórfelldu hruni. Eg spái, að
Framhald á 4. síðu.
Er það satt, að Alþýðuflokk-
urinn noti skrifstofur Trj gg-
ingapstofnunar Hkisins fyrir
kosningaskrifstof u ?
IIinnzÉa kveðjan - |
Rosenberg-hjónin bandarísku voru tekin af lífi aðfaranótt .
laugardags. Þetta er ífyrsta sinni í sögu USA að njósnarar
hafa verið teknir af lífi á friðartíma. — Þau hjón voru dænui
til dauða fyrir tveim árum, en fullnægingu dómsins oft frest*
að. Dómur þessi hlaut mikla gagnrýni af hálfu vinstri-sinna
og ýmissa annarra, og bárust Eisenhower forseta mótmæli
frá hópum og einstaklingum. — Myndin sýnir hjónin kveðj-
ast áður en þau voru flutt hvort í 'sinn klefa. J
Jónas Sveinssonf iæknir}
kominn heim /
Kynnti sér aðferðir við blóðhreinsun í Sviss
Jónas Sveinsson læknir kom heim i síðastliðinni
viltu. Læknirinn hefur dvalizt jira um tnæggja mánaða
skeið. >
Mánudagsblaðið náði sem snöggvast í Iækninn
í gær (laugardag). Jónas Sveinsson kvaðst hafa aðal-
lega dvalið I Lokarno í Srisslandi, þar sem hann
kynnti sér hinar nýju aðferðir við blóðhreinsun. Hamjj,
kynnti sér blóðhreinsunaraðferðir hjá Dr. Werli, sem;
er nijög kunnur fyrir rannsóknir sínar á þessari ný-
ung í læknarisindum.
Eins og íslenzkum blaðalesendmn er kunnugt, þá
hefur verið ritað í blöðin hér heima um blóðhreinsanir
þessar, sem þykja hin mesta nýmig í læknafræðum.
Sökum þess að Mánudagsblaðið er fullunnið á
hádegi á iaugardag, vannst ekki tími til þess að spyrja
iækninn nákvæmlega mn ferðina og þessa sérstökR
grein, sem hann kynnti sér ytra.
Vonandi fær blaðið tækifæri til að kynna þessl
mál betur fyrir lesendum sínum, þegar betri túni
jinnst til þess að ræða við Jónas Sveinsson. jé