Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 1
’Sálir hönnuðu húsnæðið‘
Fimmtudagur
31. mars 2005
VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS
mbl.is
WOLFOWITZ OG ALÞJÓÐABANKINN | 6
HÖNNUN | OPIN RÝMI
INNHERJI | 30
Úlfur í bankanum
6,2%*
Góð og örugg ávöxtun á lausafé fyrir einstaklinga, fyrirtæki, sveitarfélög
og aðra fjárfesta. Kynntu þér ótvíræða kosti Peningabréfa hjá ráðgjöfum
Landsbankans.
*Nafnávöxtun frá 01.02.2005–28.02.2005 á ársgrundvelli.
Peningabréf Landsbankans
410 4000 | landsbanki.is Banki allra landsmanna
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
LB
I
27
61
2
03
/2
00
5
Peningabréf eru fjárfestingarsjóður í skilningi laga nr. 30/2003, um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Athygli fjárfesta er vakin á því að
fjárfestingarsjóðir hafa rýmri fjárfestingarheimildir skv. lögunum heldur en verðbréfasjóðir. Um frekari upplýsingar um sjóðinn, m.a. hvað varðar
muninn á verðbréfasjóðum og fjárfestingarsjóðum og fjárfestingarheimildir sjóðsins, vísast til útboðslýsingar og útdráttar úr útboðslýsingu sem
nálgast má í afgreiðslum Landsbanka Íslands hf. auk upplýsinga á heimasíðu bankans www.li.is
ÞETTA HELST…
ÆTLA má að einstaklingar
greiði á annan tug milljarða í vexti
á ári af yfirdráttarlánum sínum. Yf-
irdráttarlán einstaklinga námu
58,3 milljörðum í lok febrúar og eru
farin að nálgast þá upphæð sem
þau voru í fyrir tilkomu íbúðalána
banka og sparisjóða.
Uppgefnir vextir af yfirdráttar-
lánum einstaklinga eru nú á bilinu
17,95% til 18,45% hjá bönkum og
sparisjóðum, en miðað við 18%
vexti er vaxtabyrðin af yfirdráttar-
lánum einstaklinga á Íslandi um
10,5 milljarðar króna á ári.
Greiða 10 milljarða
fyrir yfirdráttinn
AÐALFUNDUR Fasteigna-
félagsins Stoða hf. verður haldinn í
dag. Stoðir eiga um 70% húsnæðis í
Kringlunni. Í stjórn Stoða sitja tvær
konur, þær Kristín Jóhannesdóttir
og Ingibjörg Pálmadóttir. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
verður þriðja konan kosin í stjórn
félagsins í dag, en það er Elín Þórð-
ardóttir starfsmaður Eimskips.
Þriðja konan
SÆNSKA
fjárfesting-
arfélagið Ind-
ustrivärden,
sem er stærsti
einstaki hluthafi í Össuri hf., hefur
aukið hlut sinn úr 20,45% í 22,3%
hlutafjár.
Keypti Industrivärden fyrst 2
milljónir hluta fyrir 164 milljónir
króna og síðan 4 milljónir hluta fyrir
332 milljónir króna. Heildarverð-
mæti viðskiptanna er því 496 millj-
arðar króna. Industrivärden á nú ríf-
lega 71 milljón hluta í Össuri hf.
Industrivärden eyk-
ur hlut sinn í Össuri
ÁÆTLANIR eru uppi um að hefja
framkvæmdir við 1.500 fermetra við-
byggingu við Kringluna í haust og
eru hafnar viðræður við tvær alþjóð-
legar verslunarkeðjur um stórversl-
anir í viðbyggingunni.
Að sögn Arnar V. Kjartanssonar,
framkvæmdastjóra Rekstrarfélags
Kringlunnar, hefur móðurfélag
Hennes & Mauritz, H&M, sent
Rekstrarfélagi Kringlunnar fyrir-
spurn um verslunarrými en einnig
hafi tískuvöruverslunin Next hug á
að stækka verslun sína í Kringlunni
enn frekar. Hann segir viðræður
hafnar en enn sé ekkert ákveðið.
Alls komu nærri 5,5 milljónir
gesta í Kringluna á síðasta ári og
hafa þeir aldrei verið fleiri. Velta
Kringlunnar var í fyrra 20–25 millj-
arðar króna en í húsinu eru nú rekn-
ar um 105 verslanir. Örn segir að
mikil spurn sé eftir leiguplássi í
verslunarmiðstöðinni og nú séu um
40 aðilar á skrá sem hafi lýst yfir
áhuga á að fá að leigja einingar í hús-
inu. Reyndar hafi nú skapast vísir að
svokölluðu lyklagjaldi um einingar,
menn séu að kaupa sig inn í leigu-
samninga og kaupa jafnvel út rekst-
ur til að koma sínum rekstri fyrir.
Hann segir mikla þörf á að stækka
Kringluna og hefur Rekstrarfélag
Kringlunnar þegar sótt um að fá að
reisa 17–20 hæða turn við norður-
enda hússins.
Kringlan stækkuð og
viðræður við H&M
Morgunblaðið/Arnaldur
Aldrei fleiri/8
Eftir Helga Mar Árnason
hema@mbl.is
FLESTIR íslenskir ferðalangar
hafa eflaust gengið fram á Hennes
& Mauritz-verslun á ferðum sínum
erlendis. H&M er ein stærsta versl-
unarkeðja heims og verslanir henn-
ar jafnan staðsettar miðsvæðis í
helstu stórborgum Evrópu.
H&M opnaði fyrstu verslunina í
Svíþjóð árið 1947 en fyrsta versl-
unin utan Svíþjóðar var opnuð í
Noregi árið 1964. Í dag selur fyr-
irtækið fatnað og snyrtivörur í
meira en 1.000 verslunum í 20 lönd-
um. Hefur verslununum fjölgað um
57% á síðustu fjórum árum. Á síð-
asta ári fjölgaði H&M-verslunum
um 123, 136 nýjar verslanir voru
opnaðar en 13 verslunum var lokað.
Áætlað er að opna 145–155 nýjar
verslanir á þessu ári en þá verða
fyrstu verslanirnar opnaðir í Ung-
verjalandi og á Írlandi. H&M rekur
ekki eigin verksmiðjur en hefur á
sínum snærum um 700 sjálfstæða
byrgja, flesta í Asíu en einnig í Evr-
ópu. Hjá H&M starfa um 45 þúsund
manns. Velta fyrirtækisins á síðasta
ári var um 63 milljarðar sænskra
króna eða um 550 milljarðar ís-
lenskra króna. Þýskaland er stærsti
markaður H&M með um 28% af
veltu samstæðunnar en þar á eftir
koma Svíþjóð og Bretland.
Yfir 1.000
verslanir í 20
löndum
Er þjóðarsálin
til sölu?