Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 8
8 B FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
A
lls komu nærri 5,5 millj-
ónir gesta í Kringluna á
síðasta ári og hafa þeir
aldrei verið fleiri. Heild-
arveltan í Kringlunni
jókst um 10–12% frá árinu 2003.
Mjög mikil eftirspurn er eftir leigu-
plássi í Kringlunni og verður hafist
handa við stækkun hennar á haust-
dögum.
Alls lögðu um 5.494 þúsund gestir
leið sína í Kringluna í fyrra, fleiri en
árið 2000, en það ár var metaðsókn í
verslunarmiðstöðina. Gestum fækk-
aði síðan næstu árin. Örn V. Kjart-
ansson, framkvæmdastjóri Kringl-
unnar, segir það skýrast meðal
annars af tilkomu Smáralindarinnar
árið 2001, enda hafi verslunarrými á
höfuðborgarsvæðinu þá aukist um
nærri fjórðung. Auk þess hafi á þess-
um tíma kreppt að í þjóðfélaginu og
dregið úr verslun almennt.
„Samdrátturinn var samt sem áð-
ur talvert minni en við bjuggumst við
og desember árið 2001 var mjög góð-
ur. Aðsóknin fór síðan að aukast árið
2003 og í fyrra var hún orðin meiri en
nokkru sinni fyrr. Ytri aðstæður hafa
verið mjög góðar, neysla hefur aukist
og það er að skila sér. Framboð á
verslunarrými hefur aukist verulega
síðustu árin með Smáralindinni og
því viljum við líta svo á að þessi góða
aðsókn að Kringlunni í fyrra sé merki
um að hún haldi forystuhlutverki
sínu sem verslunarstaður.“
Örn segir að þessi árangur sé sér-
staklega ánægjulegur þegar litið sé
til þess að samkeppni sé nú harðari í
verslun en oftast áður. Hann segir að
aukin aðsókn að Kringlunni sé einnig
í samræmi við niðurstöður viðhorfs-
kannana sem Rekstrarfélag Kringl-
unnar lætur gera.
Hann segir að Kringlan sé að vissu
leyti mælikvarði á verslun í landinu.
„En þó er það þannig að þegar það er
almennur samdráttur í versluninni,
finnum við seinna og minna fyrir
honum því að staða Kringlunnar er
sterk og aðsókn jöfn. Einnig er fram-
boðið í Kringlunni orðið í öllum verð-
flokkum og því geta viðskiptavinir
fundið ódýrari vöru hér, einnig þegar
samdráttur er, og þannig helst versl-
unin áfram innan Kringlunnar.“
10–12% veltuaukning
Og veltan í Kringlunni eykst í sam-
ræmi við aukna aðsókn. Á síðasta ári
jókst veltan í húsinu um 10–12% frá
árinu 2003, samkvæmt veltuvísitölu
Kringlunnar sem mælir veltu valdra
fyrirtækja í húsinu. Örn segir að út
frá veltuvísitölunni megi að minnsta
kosti draga ályktun um heildarvelt-
una í húsinu. Samkvæmt henni hefur
velta matvöru í Kringlunni aukist
jafnt og þétt og meira en önnur versl-
un. „Veltuvísitala fataverslunar hef-
ur einnig hækkað talsvert en vísitala
veitingasölu í Kringlunni hefur aftur
á móti staðið í stað undanfarin ár
enda má segja að hún sé alltaf í takt
við fjölda gesta á hverju ári. Auk þess
hefur samkeppni almennt á veitinga-
markaðnum harðnað mjög.“
Örn áætlar að heildarveltan hafi
verið um 20–25 milljarðar króna á
síðasta ári miðað við veltu á hvern
fermetra en miðað við meðaleyðslu á
hverja heimsókn sé veltan áætluð
rúmir 26 milljarðar króna á síðasta
ári.
Viðræður við tvær alþjóðlegar
verslunarkeðjur
Í haust verður hafist handa við að
reisa 1.500 fermetra tveggja hæða
viðbyggingu við suðurbyggingu
Kringlunnar og er áætlað að fram-
kvæmdum ljúki vorið 2006. Að sögn
Arnar eru þegar hafnar viðræður við
tvær alþjóðlegar verslunarkeðjur um
að setja upp verslun í nýju viðbygg-
ingunni. Þannig hafi móðurfélag
Hennes & Mauritz, H&M, sent
Kringlunni fyrirspurn um verslunar-
rými en einnig hafi tískuvöruverslun-
in Next hug á að stækka verslun sína
í Kringlunni enn frekar. „Móðurfélag
H&M á og rekur allar stórverslanir
undir merkjum H&M en ekki póst-
verslanirnar eins og víða þekkjast,
meðal annars hér á landi. Viðræður
eru þegar hafnar en þó ekkert enn í
hendi í þeim efnum.
Eins kemur til greina að tísku-
vöruverslunin Next tvöfaldi stærð
verslunar sinnar í Kringlunni. Við er-
um einnig í viðræðum við forsvars-
menn Next og því liggur ekki fyrir
ennþá hver niðurstaðan verður.“
Líkamsrækt og afþreying
Auk þess eru uppi hugmyndir um að
byggja 2.000 fermetra hæð ofan á
suðurbygginguna þar sem fyrirhug-
að er að verði líkamsræktarstöð og/
eða afþreying. Örn segir að sam-
kvæmt áætlunum í dag gætu fram-
kvæmdir hafist árið 2006. Hann segir
að ef miðað sé við þróun verslunar-
miðstöðva erlendis þá vanti meiri af-
þreyingu í Kringluna. „Í helstu og
nýjustu verslunarmiðstöðvum er-
lendis eru komnar líkamsræktar-
stöðvar. Og hér ætti að vera grund-
völlur fyrir slíku. Það hefur orðið
mikil vakning í heilsurækt á undan-
förnum árum og þá skiptir staðsetn-
ing og aðstaða höfuðmáli. Við erum
með nokkuð stóran innri markað. Í
Kringlunni starfa 1.300–1.500
manns, í Verslunarskólanum og Há-
skólanum í Reykjavík eru hátt í
þriðja þúsund nemendur, auk fjölda
starfsmanna í fyrirtækjum í kring.
Margar heimsóknir í Kringluna og
góð bílastæði renna einnig stoðum
undir rekstrargrundvöll líkams-
ræktarstöðvar í húsinu. Aukin af-
þreying hefur einnig verið hluti af
okkar stefnu. Þar erum við til dæmis
að velta fyrir okkur að setja upp
keilusal.“
Síðast voru gerðar meiriháttar
breytingar á Kringlunni árið 1998
þegar gamla Borgarkringlan, nú suð-
urhús, var sameinuð Kringlunni og
tengd við að hluta til. Árið 1999 var
síðan opnuð 11.000 fermetra tengi-
bygging, ásamt tengingu við Borg-
arleikhúsið og nýtt bókasafn.
Vísir að lyklagjaldi
Í Kringlunni eru nú 105 verslanir en
að meðtöldum veitingastöðum og
annarri þjónustu eru um 150 fyrir-
tæki í húsinu. Örn segir að breyting-
ar á rekstri í húsinu séu afar fátíðar
nú um stundir og í raun mun sjald-
gæfari en oft áður. „Hér eru allar ein-
ingar fullar og mikil eftirspurn eftir
plássi. Nú eru um 40 aðilar á skrá,
sem hafa lýst yfir áhuga á að fá að
leigja einingar í Kringlunni. En það
er aftur á móti mjög lítil hreyfing á
plássinu. Það er reyndar svo komið
að myndast hefur vísir að svokölluðu
lyklagjaldi um einingar, menn eru að
kaupa sig inn í leigusamninga og
kaupa jafnvel út rekstur til að koma
sínum rekstri fyrir. Lyklagjald er
þekkt erlendis en hefur ekki tíðkast
hér áður. Þar kemur leigusalinn
hvergi nálægt, heldur er þetta alfarið
í höndum leigutakans þó við höfum
samt sem áður lokaorðið um það
hvernig rekstur fær að fara hér inn.“
Örn segir þessa miklu eftirspurn
skiljanlega í ljósi þess að velta á
hvern fermetra er hvergi meiri en í
Kringlunni.
Bíða eftir grænu ljósi
á Norðurturninn
Örn segir þannig greinilega þörf á að
stækka Kringluna. Sótt hefur verið
um að fá að reisa 17–20 hæða
Aldrei fleiri gestir í Kringluna
Velta verslunar í húsinu jókst um rúm 10% í fyrra. Framkvæmdir við viðbyggingu hefjast í haust.
Fleiri gestir sóttu
Kringluna í fyrra en
nokkru sinni áður. Og
nú standa fyrir dyrum
breytingar á versl-
unarmiðstöðinni. Helgi
Mar Árnason ræddi við
Örn V. Kjartansson,
framkvæmdastjóra
Kringlunnar, og for-
vitnaðist um fram-
tíðaráformin.
Viðbygging Í haust verður hafist handa við að byggja 1.500 fermetra verslunarrými á tveimur hæðum við suðurbyggingu Kringlunnar. Auk þess eru
uppi hugmyndir um að byggja 2.000 fermetra hæð ofan á suðurbygginguna, þar sem fyrirhugað er að bjóða líkamsrækt og afþreyingu.
1"
522285229
!
!!
!
!
!
!
(3'
"
"
522585229
-7 171%(
71 !(%4%1( '&
-7 27 1 ( &'%1( '&O1 &P
!" #
$!
%"&#
Vinna við deiliskipulag að hefjast
VESTURHLUTI Kringlusvæðisins er nú að stórum hluta í eigu fast-
eignafélagsins Klasa hf. en félagið keypti nýverið húsnæði og lóð Árvakurs
hf. sem gefur út Morgunblaðið. Í framhaldi þess keypti Klasi einnig eignir
Sjóvár á Kringlusvæðinu.
Ragnar Atli Guðmundsson er framkvæmdastjóri Klasa hf. Hann segir að
Klasi hafi ásamt öðrum eigendum Kringlusvæðisins, það er Kringlunni,
húsfélagi Húss verslunarinnar og SPRON, ákveðið að gera sameiginlega
tillögu að deiliskipulagi svæðisins. Það sé gert í samráði við skipulags-
yfirvöld Reykjavíkurborgar. Ragnar segir ekki ljóst hvenær nýtt deili-
skipulag Kringlusvæðisins liggur fyrir. „Þessi vinna er að hefjast einmitt
þessa dagana og nú er verið að fara yfir þarfagreiningar hjá hverjum og
einum. En það eru klárlega ýmir möguleikar í uppbyggingu svæðisins. Við
sjáum fyrir okkur miðbæjarsækna starfsemi, það er blandaða byggð versl-
unar, skrifstofuhúsnæðis og íbúða.“
VERSLUN
Morgunblaðið/Þorkell
Kringlan í forystuhlutverki Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri
Rekstrarfélags Kringlunnar, segist líta svo á að góð aðsókn að Kringlunni í
fyrra sé merki um að hún haldi forystuhlutverki sínu sem verslunarstaður.