Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 10
10 B FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
nærri 20 þúsund fermetra turn við
norðurenda hússins. Fyrir því hefur
enn ekki fengist samþykki borgar-
yfirvalda þar sem þau hafa viljað fá
áður deiliskipulag af öllu Kringlu-
svæðinu, einnig vesturhlutanum sem
liggur að Kringlumýrarbraut. „Í
Norðurturninum eru hugmyndir um
að blanda saman íbúðum, hugsan-
lega hótelaðstöðu og skrifstofum.
Erlendis hefur það færst í vöxt að
blanda saman íbúðarbyggð í og við
verslunarmiðstöðvar. Þannig mætti
hugsa sér að sú þjónusta sem Kringl-
an býður henti vel fólki sem komið er
yfir miðjan aldur og vill fá einhverja
stoðþjónustu en samt ekki fulla
umönnun. Við höfum sótt það fast í
nokkur ár að fá að reisa þennan turn
en það hefur ekki fengist niðurstaða
í það ennþá.“
Áfram í forystuhlutverki
Örn segist þannig sannfærður um að
Kringlan verði áfram í forystuhlut-
verki verslunar á höfuðborgarsvæð-
inu, fái hún að vaxa og dafna. „Það
lítur hins vegar út fyrir að það verði
áframhaldandi uppbygging verslun-
ar á Kópavogssvæðinu. Að mínu viti
þarf Reykjavíkurborg því að hlúa að
verslun í borginni. Það eru mögu-
leikar á Kringlusvæðinu, hér er gott
og hentugt verslunarsvæði sem er
nálægt íbúunum og helstu sam-
göngum.
Það eru vissir möguleikar á
stækkun verslunarsvæðis á vestur-
svæði Kringlunnar. Nýir eigendur
eru núna að hátt í 75% af því svæði,
það er Morgunblaðsreitnum, Sjóvár-
húsinu og svæðum í kringum þau.
Kringlan hefur ákveðið að taka þátt í
að leggja drög að deiliskipulagi á
heildarsvæðinu með frekari upp-
byggingu í huga, og þá í samráði við
borgaryfirvöld. Það verður síðan að
koma í ljós hvort eigendum tekst að
vinna saman að frekari framkvæmd-
um á Kringlusvæðinu, en möguleik-
arnir eru sannarlega fyrir hendi,“
segir Örn.
Norðurturninn Kringlan hefur sótt um að fá að reisa 17–20 hæða turn við
norðurenda hússins, þar sem uppi eru hugmyndir um að blanda saman
íbúðum, hugsanlega hótelaðstöðu og skrifstofum.
hema@mbl.is
VERSLUN
!
"
#
$
%
# #
! &%
'()*+,+(-.
/
0
-
%
%
1'0$0
8
Fáðu fréttirnar
sendar í
símann þinn
Sturlaugur útibússtjóri
LÍ á Akranesi
STURLAUGUR Sturlaugsson, fyrrum forstjóri
HB Granda, hefur verið ráðinn útibússtjóri Lands-
banka Íslands á Akranesi. Hann hefur störf hjá
bankanum 1. apríl og tekur við starfi útibússtjóra í
sumar.
Sturlaugur hefur alla sína starfsævi unnið að sjáv-
arútvegi, lengst af sem aðstoðarforstjóri Haraldar
Böðvarssonar hf. á Akranesi. Hann segist vera
ánægður með að hefja störf á nýjum vettvangi á
Akranesi. „Hér þekki ég mig best og hlakka til að
taka þátt í að efla Landsbankann sem reyndar skip-
ar traustan sess í bæjarlífinu á Akranesi nú þegar.
Mér finnst spennandi að fá tækifæri til að gera
bankann að enn traustari bakhjarli fyrirtækja og fjölskyldna í bænum.
Landsbankinn er umsvifamestur íslenskra banka á sviði inn- og útlána á Ís-
landi og banka elstur og því með djúpar og öflugar rætur í íslensku mann-
lífi.
Þess vegna er það meðal annars óneitanlega spennandi að hefja störf á
þessum nýja vettvangi. Að auki getur Landsbankinn nýtt reynslu mína úr
sjávarútveginum í framtíðinni.“
Sturlaugur er formaður Íþróttabandalags Akraness og segist sækja mik-
inn þrótt í störf sín í íþrótta- og æskulýðsmálum. „Ég er því vanur
skemmtilegri og heiðarlegri keppni,“ segir Sturlaugur.
Væntingar
minnka
VÆNTINGAR bandarískra neyt-
enda minnkuðu annan mánuðinn í
röð nú í mars. Vísitalan lækkaði um-
fram væntingar sérfræðinga í könn-
un Bloomberg en vísitölugildið er þó
enn yfir 100 stigum sem táknar að
fleiri neytendur eru jákvæðir en nei-
kvæðir. Fram kemur í Vegvísi
Landsbanka Íslands að minni vænt-
ingar neytenda vestra megi rekja til
olíuverðshækkunar en gallonið af ol-
íu fór yfir tvo dali í mars og telja
hagfræðingar að efnahagshorfur
fyrir næstu sex mánuðina hafi versn-
að í kjölfarið. Það hafði hins vegar
jákvæð áhrif á hlutabréfamarkaðinn
að væntingavísitalan skyldi vera ör-
lítið undir væntingum sérfræðinga
því meiri væntingar hefði hugsan-
lega ýtt undir þá skoðun að Seðla-
banki Bandaríkjanna þyrfti að
hækka stýrivexti hraðar en áður
hafði verið gert ráð fyrir.
SAMTÖK auglýsenda (SAU) og
Birtingahúsið ehf. hafa undirritað
þriggja ára samstarfssamning um-
námstefnuhald fyrir auglýsendur og
munu félögin standa sameiginlega
að tveimur námstefnum á ári þar
sem fengnir verða til landsins
fremstu sérfræðingar heims á sviði-
markaðsfræða. Um frekara sam-
starf verður einnig að ræða milli fé-
laganna á sviði fræðslustarfs og
upplýsingagjafar.
Í tilkynningu kemur fram að
fyrsta námstefnan samkvæmt sam-
starfssamkomulaginu verði haldin
19. apríl næstkomandi en fyrirlesari
verður Tim Ambler við London
Business School.
SAU og Birtingarhúsið taka höndum saman
Föstudaginn 8. apríl 2005
í ráðstefnusal Gullhamra í Reykjavík kl. 09:00 – 15:30
MEÐAL FYRIRLESTRA ERU:
Stofnsetningaréttur
Dr. Poiares Maduro, lögmaður Evrópudómstólsins
EES-samningurinn og útrás Bakkavör Group hf.
Hildur Árnadóttir, fjármálastjóri Bakkavör Group hf
EES-samningurinn og eftirlit með fjármálastarfsemi
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Fjármagnsflæði fjárfestinga
Titus Van Stiphout, yfirlögfræðingur EFTA skrifstofunnar
Hlutverk EB– og EFTA dómstólsins í að tryggja frjálst flæði fjármagns
Dr. Carl Baudenbacher, forseti EFTA dómstólsins
Skráðu þig strax
Vinsamlega skráið þátttöku á vefslóðinni www.bifrost.is/radstefna eða með
tölvupósti radstefna@bifrost.is
Verð með hádegisverði og öðrum veitingum er kr. 12.900,-
Ráðstefna um áhrif
EES-samningsins á útrás
íslenskra fyrirtækja innan
Evrópu
Nánari upplýsingar á www.bifrost.is
EVRÓPUNEFND
Á VEGUM
FORSÆTISRÁÐUNEYTIS
GROUP