Morgunblaðið - 31.03.2005, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 B 17
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $% %
&
' (
!# ) $%% ***+ * D. ? ?
!!. D )3% "'
< - 'D ' * D. ?
!!. AC )3% $"'
< - C'
' Ý
msir muna höf-
uðstöðvar Skeljungs
sem voru um árabil á
Suðurlandsbraut 4 þar
sem íburður var mikill
fyrir augað, marmari, þung hús-
gögn, mikið málverkasafn og flestir
voru með lokaðar skrifstofur. Um
miðjan júní sl. voru höfuðstöðv-
arnar fluttar um set og tóku algjör-
um stakkaskiptum við það að skipt
var um húsnæði. Nýja húsnæðið, á
Hólmaslóð 8, byggist á algjörlega
opnu vinnurými þar sem áherslan
er á ljósar og léttar innréttingar,
samkennd starfsmanna og lág-
marks truflun bæði fyrir augað og
eyrað. Lokaðar skrifstofur heyra
þar sögunni til, fyrir utan eina sem
er skrifstofa forstjóra.
Skeljungur hafði átt húsnæðið á
Hólmaslóð í nokkuð mörg ár og
notað það fyrir ýmiss konar starf-
semi í gegnum tíðina. Þar var síð-
ast blanda af lagerum, nokkrum
skrifstofum og mötuneyti fyrir olíu-
bílstjóra. Þegar ákvörðun var tekin
um að flytja höfuðstöðvarnar þang-
að var allt rifið út úr húsinu og það
endurskipulagt.
Fyrirtækið fór harla óvenjulega
leið við skipulagningu og hönnun á
húsnæðinu.
Gissur Pálsson, starfsmaður hjá
Skeljungi sem er byggingaverk-
fræðingur og rafvirki að mennt, var
settur sem verkefnastjóri að verk-
inu en hann hefur stýrt allmörgum
verkefnum Skeljungs á umliðnum
árum, m.a. hönnun bensínstöðvanna
og Select-verslananna. Gissur hafði
umsjón með öllu því og öllum þeim
sem komu að hönnuninni en honum
til halds og trausts var hópur al-
mennra starfsmanna, fimm talsins.
Öðrum starfsmönnum gafst svo
kostur á að senda þessum hópi at-
hugasemdir sínar og uppástungur
og verkefnastjórinn vann með
hópnum úr þeim.
Uppgötva gamla vinnufélaga
Um ástæðuna fyrir því að lagt var
upp með opið vinnurými segir Giss-
ur að talið hafi verið að starfsfólkið
mundi ná betur saman auk þess
sem mun minna rými fer í hvern og
einn þegar svona er háttað. „Það
sýnir sig að þetta hefur gengið eft-
ir. Jafnvel fólk sem hefur verið á
lokaðri skrifstofu í 20–30 ár er
mjög ánægt með breytinguna, sem
byggist á því að það er að kynnast
hvert öðru. Var búið að vinna sam-
an í fjöldamörg ár og hittist varla
nema á árshátíðinni. Nú fer þetta
fólk saman í kaffi og hefur uppgötv-
að að gamli vinnufélaginn á börn og
allt. Þannig hefur myndast meiri
samstaða, það er kosturinn við
opna rýmið. Liðsandinn er betri en
var áður og allt sem heitir rígur á
Morgunblaðið/Árni Sæberg
framt var komið fyrir hljóðgildrum. Lengst til hægri má sjá kaffistofuna í Eyjasal en lengst til vinstri sér inn í Fjallasal.
Sálir hönnuðu
húsnæðið