Morgunblaðið - 31.03.2005, Qupperneq 20
20 B FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
S
tarfsemi Samskipa í
Reykjavík hefur verið
sameinuð í nýju húsnæði
við Kjalarvog þar sem
vítt er til veggja og sér yf-
ir himin og haf. Upphaflega stóð ein-
ungis til að flytja vörumiðstöð Sam-
skipa á þetta svæði en niðurstaðan
varð að starfsemin skyldi öll færð
saman.
Að undirbúningi verksins stóð sér-
lega skipuð húsnæðisnefnd Sam-
skipa og skipa hana fimm starfs-
menn fyrirtækisins. Hlutverk
nefndarinnar var að útbúa útboðs-
lýsingar á verkinu, bjóða það út og
leggja arkitekt hússins, Birgi Teits-
syni hjá arkitektastofunni Arkís, lið
við hönnun og val á innréttingum.
„Húsið var eiginlega hannað og
byggt í einu, á einungis 16 mán-
uðum,“ segir hann, en byrjað var á
að flytja vörumiðstöðina í húsið í
október sl. og skömmu fyrir áramót
hóf skrifstofufólkið að flytja inn.
Birgir segir Samskipahúsið vera í
senn vörumerki fyrirtækisins og
ímynd þess í krafti forms, stærðar,
efnis- og litavals. „Húsið teiknar sig í
landslagið, eins og skip sem lagst
hefur til affermingar,“ segir hann og
vitnar þar í hugmyndalýsingu arki-
tektanna. Hann segir tenginguna við
hafið og höfnina vera meginþema í
hönnun lóðarinnar. Þar skapi m.a.
bryggjuþil, netkistur og melgresi
skemmtilegar andstæður en beð og
kantar úr ryðguðu stáli kallist á við
bryggjuþilið.
Gagnsæi og flæði upplýsinga
Húsið er alls um 27.600 fermetrar að
flatarmáli en þar af er skrifstofurými
innan við 5.900 fermetrar og 275.000
Skip sem
lagst hefur til
affermingar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gangurinn langi Frá öðrum enda hússins til hins eru 240 metrar. Kaffihús er í glerbyggingu hægra megin. Vinstra megin við ganginn eru fund-
arherbergi, skrifstofur og kaffibarir aðskilin frá opna rýminu með gleri. Hér sér inn í rauða fundarherbergið en blái veggurinn snýr að vörugeymslunni.
Kaffihús úr gleri Stutt er í kaffiaðstöðu og önnur einkarými þar sem
starfsfólk getur spjallað saman og sinnt persónulegum málefnum.
Messinn Matsalurinn er bjartur og rúmgóður en um 400 starfsmenn vinna í húsinu. Gegnt matsalnum, vinstra megin á myndinni, er hvíldar- og afþrey-
ingarherbergi, reykherbergi og fleiri einkarými. Handan matsalarins er hins vegar aðstaða til líkamsræktar í tækjasal og fjölnotasal auk búningsklefa.
HÖNNUN | OPIN RÝMI
„Í heild sinni er þetta virkilega
fallegt og ofsalega góð aðstaða.
Kaffiaðstaðan og fundarherbergin,
setuherbergi og svo erum við með
líkamsrækt og stórt og flott mötu-
neyti.“
„Mér finnst sem fólk sé almennt
ánægt með þetta, hef ekki heyrt
mikið af óánægjuröddum.“
„Þótt hátt sé til lofts þá er enginn
glymjandi. Kannski að gólfefnið
dragi úr þessu.“
„Hér er allt í glerveggjum og
fólk var svolítið hissa á því. Það var
mjög truflandi í fundarherbergj-
unum, alltaf einhver að horfa inn
og fundarmenn að horfa út. En nú
er komin filma á glerið í sjónlínu.“
„Það er talsvert langt að labba í
mötuneytið en það er góð líkams-
rækt í leiðinni. Maður er í rauninni
búinn að brenna hádegismatnum
þegar maður kemur tilbaka úr
mat.“
„Að vera með íþróttaaðstöðu er
æðislegt. Það er talsvert notað. Nú
fer maður 6 sinnum í viku og það er
mikil keppni í gangi.“
„Aðstaðan hefur aldrei verið
betri.“
Orð dagsins
í dag er
hreyfanleiki
„HREYFANLEIKI er það sem
gengið var út frá í skipulagningu og
vali á húsgögnum hjá Samskipum,“
segir Guðbjartur Guðbjartsson,
framkvæmdastjóri Innx. „Öll borð
sem keypt eru inn í húsið eru t.a.m.
rafstillanleg, þannig að fólk geti
bæði setið og staðið við vinnu sína.“
Guðbjartur segir þetta gríðarlega
mikilvægt þeim vinnuveitendum
sem hugsi vel um starfsmenn sína.
„Í Danmörku er það í vinnulöggjöf,
að ef maður vinnur meira en 2 tíma
við tölvu þá á það að vera rafstill-
anlegt. Það sem hrjáir nútímamann-
inn í auknum mæli eru atvinnu-
sjúkdómar tengdir því að sitja í
kyrrstöðu. Fólk situr við borð dag-
langt og hefur ekki möguleika á að
hreyfa það og er í ofanálag með
vonlausan stól. Samskip tóku þá
stefnu að búa eins vel að starfs-
mönnum sínum og hugsast gat og
húsgögnin voru einn þáttur af því.
Það var lögð áhersla á að þau væru
hreyfanleg og hægt að stilla þau
fyrir hvern starfsmann.“
Húsgögnin hjá Samskipum eru
sérsmíðuð hjá danska fyrirtækinu
Dencon í þeim gráa lit sem valinn
var. Stólarnir sem eru frá Innx eru
framleiddir af sænska fyrirtækinu
RH form, segir Guðbjartur. „Þeir
eru byggðir á því að starfsmaðurinn
geti hreyft sig. Axlir séu frjálsar,
það sé ekki þvingun á bakinu og
armarnir séu stillanlegir þannig að
þú komist að borðinu. Gegn-
umsneitt eiga húsgögnin að vera
þannig að starfsmaðurinn geti
hreyft sig sem mest.“
Allra verst að sitja
Hann segir Innx leggja áherslu á að
bjóða nýjustu og mest spennandi
lausnirnar í skrifstofuhúsgögnum á
hverjum tíma vegna þess að hér sé
að skapast aukið heilsufarsvanda-
mál. „Við fórum á mjög skömmum
tíma úr því að vera landbúnaðar- og
fiskveiðiþjóð, þar sem allir strituðu
með líkamanum, í það að stærstur
hluti þjóðarinnar situr við borð. At-
vinnusjúkdómarnir eru því allt
öðruvísi en verið hefur. Það er eng-
in spurning að svar framtíðarinnar
er hreyfanleiki og fjölbreytni.
Reyndar er það að sitja það versta
sem við gerum líkamanum, það er
betra að liggja eða standa.“
Guðbjartur segir eitt af því sem
hvetji til hreyfingar hjá Samskipum
vera sérstakar stöðvar fyrir prent-
ara og fleira sem fólk þarf að sækja
í reglulega. „Stundum má skipu-
leggja plássið þannig að menn eru
neyddir til að taka nokkur skref.
Það er ekki sniðugt að sitja límdur
við borð og vera með öll tæki þannig
að aldrei þurfi að standa upp.
Áherslan ætti því að vera á opið
vinnurými og sveigjanleika,“ segir
Guðbjartur og vitnar til erlendra
rannsókna þar sem fram hafi komið
að í opnu vinnurými afkasti fólk
meira, það sé mun frjórra, fái betri
hugmyndir og skili af sér meiri
vinnu.
Ennfremur segir Guðbjartur að
talsvert sé farið að bera á örum
breytingum innan fyrirtækja og þá
þurfi sífellt að gera breytingar á
vinnuaðstöðunni. „Þess vegna er
hreyfanleiki fyrirtækjanna líka
nauðsynlegur. Fyrirtæki í dag
þurfa bara að vera snögg að átta sig
og fljót að gera breytingar. Þau
geta ekki leyft sér að vera nið-
urnjörvuð, þá verður of flókið að
gera breytingar. Hreyfanleiki er
einfaldlega orð dagsins í dag á öll-
um sviðum.“
rúmmetrar. Um 400 manns starfa í
húsinu.
„Við hönnun skrifstofurýma var
leitast við að skapa opið og sveigj-
anlegt vinnurými, í takt við nútíma
sýnileika í viðskiptum og stjórnun,
þar sem gagnsæi og flæði upplýsinga
er mikið. Þetta er gert með stórum
glerveggjum og glerrýmum auk þess
sem útsýni inn í vöruhúsið og út á
hafnarsvæðið gerir starfsmönnum
skrifstofunnar kleift að fylgjast vel
með grunnstarfseminni,“ segir Birg-
ir en í efnisvali og útfærslum innan-
húss er sótt í lausnir frá skipaiðn-
aðinum og það tengt lóðinni þannig
að myndi eina heild. Sem dæmi um
slíkan efnivið er kortenstál á stiga-
húsi og vegg sem gengur þaðan út úr
byggingunni en kortenstál segir
Birgir m.a. notað í hafnarkanta.
Skrifstofurýmið segir Birgir hafa
verið samvinnuverkefni arkitekta og
starfsmanna en það hafi verið unnið
út frá stjórnunarstíl fyrirtækisins og
opnu skipuriti þess. „Þess vegna var
lagt til að þarna yrði opið skrif-
stofurými með einkarýmum fyrir
starfsmenn þar sem þeir gætu sinnt
sínum einkamálum,“ segir hann og
tínir til sérstök símaherbergi, sófa-
herbergi, reykherbergi og hvíld-
arherbergi sem starfsmenn Sam-
skipa hafa aðgang að.
Einhverjir starfsmannanna eru þó
með skrifstofur meðfram opna rým-
inu en áhersla var lögð á að þær
væru ekki lokaðar af. Skrifstofurnar