Morgunblaðið - 31.03.2005, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 B 21
Með því að láta Póstinn sjá um
allan pakkann sparar þú rekstrar-
kostnað. Pósturinn kemur á
fyrirfram ákveðnum tíma, tekur
allar sendingar og skilar þeim
fljótt og örugglega til viðtakenda.
Hafðu samband við sölufulltrúa
í síma 580-1090 eða í netfangið
solufulltruar@postur.is og fáðu
nánari upplýsingar.
www.postur.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
G
V
2
78
64
03
/2
00
5
eru því með heilum glerveggjum sem
snúa út að opna vinnusvæðinu.
„Hugmyndin var að menn hefðu ekk-
ert að fela og það ættu allir að sjá
hvað þeir væru að gera,“ segir Birg-
ir.
Hálfopið svæði best
Opin vinnusvæði segir hann vera það
sem markaðurinn vill. „Það eru á því
kostir og gallar og þetta gengur
vissulega í tískubylgjum. Mitt mat er
að einingarnar mega ekki vera of
stórar og svæðið þarf að vera hálf-
opið. Þá á ég við að hafa einingarnar
litlar, t.d. sex manns í einu herbergi.
Ef einingarnar eru minnkaðar líður
starfsmanninum betur,“ segir Birgir
og samsinnir því að það séu fremur
stjórnendur en starfsmenn sem vilji
hafa allt opið. „Það verður vissulega
betri nýting á öllu en þetta togast á.“
Nýjungar í hönnuninni á húsnæði
Samskipa eru, að mati Birgis, einna
helst kaffibarir og kaffihús. Á aðal
skrifstofuhæðinni eru nokkrir kaffi-
barir og jafnframt er kaffihús úr
samsettum glereiningum inni í miðju
skrifstofurýminu en með því var ver-
ið að búa til nokkurs konar skipsbrú í
miðju rýminu. Hulda Kristín Magn-
úsdóttir, aðstoðarmaður starfandi
stjórnarformanns, er í húsnæð-
isnefnd Samskipa og segir hún hug-
myndina um kaffibari á hæðinni vera
sprottna af vangaveltum um hvernig
mætti fá fólk til að standa upp og
hittast með reglulegu millibili.
„Bestu hugmyndirnar verða ekki
endilega til á fundum,“ segir Hulda
Kristín. „Þær fæðast oftar en ekki
yfir óformlegu spjalli og til þess eru
kaffibarirnir.“
Líkamsrækt og barnaherbergi
„Öll þessi stoðrými eru mikilvæg
þegar þetta margt fólk starfar sam-
an á opnu svæði,“ segir Birgir en
ekki er allt upptalið. Á hæðinni er
einnig að finna búningsherbergi og
líkamsræktaraðstöðu með tækjasal
og fjölnotasal þar sem hægt er að
spila skvass og körfubolta ásamt því
að boðið verður upp á námskeið, s.s.
jóga en hugmyndin er að bjóða næst
upp á magadansnámskeið. Þá er á
hæðinni barnaherbergi fyrir þá sem
þurfa einhverra hluta vegna að taka
börnin með sér í vinnuna og nether-
bergi fyrir hafnarstarfsmenn og
aðra sem þurfa að komast í tölvu-
samband. Auk þess er kennslu- og
endurmenntunarstofa þar sem er
boðið upp á tölvunámskeið, nám-
skeið í mannlegum samskiptum og
tímastjórnunarnámskeið. Gegnt
mötuneytinu er hvíldarherbergið
sem Birgir minntist á áður en þar
geta starfsmenn teflt, spilað á spil,
horft á sjónvarp eða gert annað sér
til afþreyingar.
Hulda Kristín segir markmiðið
með allri þessari þjónustu við starfs-
menn vera að gera vinnustaðinn vin-
veittan starfsmönnum, láta þeim líða
vel og efla þá hvort sem það er á
vinnu- eða hvíldartíma. En sökum
stærðar hússins eru vegalengdirnar
innanhúss talsverðar, frá stafni aftur
í skut er 240 metra gönguleið. Hulda
Kristín starfar á skrifstofu yf-
irstjórnar í stafni hússins og segist
ganga í það minnsta einn kílómetra á
dag innanhúss. „Þetta er því hin fín-
asta hreyfing.“
Hljóðvistin mikilvæg
Húsgögn í skrifstofurýminu eru í
gráum lit. „Það stóð til að nota við-
arhúsgögn en Birgir sannfærði okk-
ur um að hafa allt grátt. Og við erum
mjög ánægð með útkomuna.“ segir
Hulda Kristín.
Innx sá að mestu um húsgögnin og
þar á meðal dönsk rafmagnsborð
sem allir starfsmenn eru með. Stól-
arnir eru hins vegar frá Epal, íslensk
hönnun eftir Pétur Lúthersson og
sófasett eru ýmist frá Epal eða Exó.
Þá eru fundarborðin sérsmíðuð frá
Pennanum. Á gólfum í opna rýminu
er steinteppi sem tekur vel í sig
hljóð, að sögn Birgis en hljóðvistina
segir hann ákaflega mikið atriði og
mikið hafi verið lagt upp úr því við
hönnun Samskipahússins. Einnig
var á stöku stað lagður nátt-
úrusteinn og á skrifstofum er skipsp-
arket með gúmmíi á milli en Birgir
segir slíkt hafa verið notað á vand-
aðri gömlum skútum og eikarbátum.
Víða er hátt til lofts og í loftum eru
hljóðeinangrandi gifsplötur. Ístak er
aðalverktaki að húsinu og hafði um-
sjón með hönnuninni. Arkís sá um
hönnunina, Ístak um burðarþol,
VGK um lagnir, Raftákn sá um raf-
magn, VSI um brunahönnun og
Línuhönnun um verkefnastjórnun
fyrir Samskip.
„Aðstaðan er alveg til fyr-
irmyndar, hvort sem þú ert reyk-
ingamaður eða kaffisjúklingur eða
hvað það er. Það er hugsað fyrir
öllu, jafnvel líkamsrækt. Þetta er
bara eins og að vera í fríi.“
„Við fengum besta útsýnið í
Reykjavík. Hér sjáum við Esjuna
alla daga og skipin þegar þau koma
og fara. Það er munur að hafa fyrir
augunum vöruna sem við erum að
höndla með alla daga.“
„Hér er fullt af herbergjum til að
leysa persónuleg mál sem koma
upp. Þau eru gífurlega mikið notuð.
Maður fer á kaffibarinn til að kjafta
en í herbergin ef þarf að ræða eitt-
hvað persónulegt.“
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn