Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 B 23
Á ÞEIM tveimur árum sem liðin
eru frá því Luiz Inácio Lula da
Silva var kjörinn forseti Brasilíu
hefur verið unnið að því að op-
inberar stofnanir og fyrirtæki þar
í landi snúi sér alfarið að opnum
hugbúnaði fyrir rekstur tölvu-
kerfa, svo sem Linux og öðrum
ókeypis hugbúnaði. Víða í Evrópu
er verið að fara svipaða leið og
velta ýmis stjórnvöld og opinberar
stofnanir þar því fyrir sér að snúa
sér alfarið að opnum og ókeypis
hugbúnaði, svo sem í Þýskalandi,
Frakklandi og Noregi.
Í grein í bandaríska blaðinu
New York Times segir að da Silva
og stjórn hans stefni að því að
spara milljónir Bandaríkjadollara í
höfundarréttar- og leyfisgreiðslum
við það að taka upp opinn hug-
búnað.
Opinberum stofnunum, fyr-
irtækjum og rannsóknarstofum,
sem fá fjárhagsstuðning frá hinu
opinbera í Brasilíu, hefur einnig
verið gert að vista allan þann hug-
búnað sem unnið er að hjá þessum
aðilum þannig að hann sé al-
gjörlega opinn og aðgengilegur
öllum, að því er fram kemur í
greininni í NYT.
Tilboði Microsoft hafnað
Stjórnvöld í Brasilíu hafa unnið að
áætlun sem miðar að því að hjálpa
lágtekjufjölskyldum og litlum fyr-
irtækjum að eignast sína fyrstu
einkatölvu. Hrinda á áætlun þess-
ari í framkvæmd í lok næsta mán-
aðar. NYT hefur eftir Sérgio
Amadeu, forseta þeirrar stofn-
unar í stjórnkerfinu í Brasilíu sem
fer með tæknimál, að skilyrði fyr-
ir því að af þessu geti orðið sé að
nauðsynlegur hugbúnaður fyrir
einkatölvurnar sé ókeypis. Mark-
miðið sé ekki að verja skattpen-
ingum til að hlaða undir einok-
unarstöðu Microsoft.
Microsoft hefur boðist til að út-
vega einfaldari og ódýrari útgáfu
af Windows-hugbúnaðinum fyrir
einkatölvuáætlun brasilískra
stjórnvalda. Amadeu hefur þegar
hafnað tilboði Microsoft. Ákvörð-
un hefur þó ekki verið tekin um
hvaða hugbúnaður mun fylgja
tölvunum.
Ódýrar tölvur
Samkvæmt áætluninni um einka-
tölvur fyrir lágtekjufjölskyldur og
lítil fyrirtæki í Brasilíu er gert
ráð fyrir að tölvuframleiðendur
fái skattafslátt gegn lækkun á
verði, og er áætlað að verðið á
hverri tölvu verði í kringum 500
Bandaríkjadollarar, eða um 30
þúsund íslenskar krónur.
Þrjú stærstu símafyrirtækin á
fastlínumarkaði í Brasilíu hafa
samkvæmt NYT ákveðið að taka
þátt í átaki brasilísku stjórn-
arinnar og ætla að bjóða 15
klukkustunda nettengingu á mán-
uði fyrir innan við 3 dollara fyrir
hverja tölvu.
Stjórnvöld í Brasilíu
bjóða ókeypis hugbúnað
Lágtekjufjölskyldum og litlum fyrirtækjum
útvegaðar einkatölvur á lágu verði