Morgunblaðið - 31.03.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 B 25
Sími: 444 4000
www.icehotels.is
GÓ‹UR FUNDUR
Á ICELANDAIR HOTELS finnur flú frábæra fundara›stö›u sem hentar fyrir
fundi af öllum stær›um og ger›um. Vi› bjó›um fyrsta flokks tæknibúna›,
sérfljálfa› starfsfólk og umgjör› vi› hæfi. Veri› velkomin!
Nordica • Loftlei›ir • Flughótel • Hamar • Flú›ir • Rangá • Klaustur • Héra›
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
15
7
5
5
GERÐ kaupréttarsamninga við
stjórnendur íslenskra fyrirtækja og
hlutabréfaeign þeirra í fyrirtækjum
sem þeir starfa fyrir, hefur farið
vaxandi hér á landi undanfarin ár.
Laga- og viðskiptadeild Háskól-
ans í Reykjavík mun á morgun,
föstudaginn 1. apríl, standa fyrir
ráðstefnu um kaupréttarsamninga
við stjórnendur og góða stjórn-
arhætti fyrirtækja, í samvinnu við
Félag lögfræðinga fjármálafyr-
irtækja og Kauphöll Íslands. Ráð-
stefnan er haldin í stofu 131 í Há-
skólanum í Reykjavík og stendur frá
kl. 14 til 17.
Meðal fyrirlesara er þekktur
fræðimaður á sviði stjórnarhátta
fyrirtækja, prófessor Steen Thom-
sen, framkvæmdastjóri rann-
sóknamiðstöðvar um stjórnarhætti
fyrirtækja við Viðskiptaháskólann í
Kaupmannahöfn. Hann er jafnframt
stjórnarformaður danskra samtaka
um stjórnarhætti fyrirtækja.
Hvatakerfi auki arð hluthafa
Steen Thomsen mun flytja erindi um
góða stjórnarhætti og hvatakerfi í
bönkum (e. Good Corporate Govern-
ance and Incentive in Banks) en þar
fjallar hann meðal annars um mik-
ilvægi þess að hvatakerfi auki arð
hluthafa.
Einnig flytja erindi Guðrún Björk
Bjarnadóttir héraðsdómslögmaður,
Jóhannes Sigurðsson, prófessor við
lagadeild Háskólans í Reykjavík, og
Tanya Zharov, lögfræðingur hjá Ís-
lenskri erfðagreiningu. Þá verður
kynnt rannsókn á eðli og umfangi
kaupréttarsamninga við stjórn-
endur skráðra félaga.
Kaupréttarsamn-
ingar við stjórn-
endur og góðir
stjórnarhættir
Nýr forstjóri ráðinn
til Hewlett-Packard
STJÓRN bandaríska tölvufyrirtækisins Hewlett-
Packard hefur ráðið nýjan forstjóra í stað Carly
Fiorina, sem var látin hætta hjá fyrirtækinu í febr-
úar síðastliðnum. Hinn nýi forstjóri er Mark Hurd,
forstjóri tölvufyrirtækisins NCR.
Fiorina var lengi talin ein áhrifamesta kona í
bandarísku viðskiptalífi. Hún sagði í yfirlýsingu er
hún lét af störfum að hún og stjórn Hewlett Pack-
ard hefðu ekki verið sammála um það hvernig ætti
að framfylgja áætlunum félagsins.
Hurd mun taka við starfinu á morgun, 1. apríl.
AP-fréttastofan hefur eftir Patriciu Dunn,
stjórnarmanni hjá HP, að stjórn fyrirtækisins muni
fara fram á að Hurd geri róttækar breytingar á
stefnu þess. M.a. þurfi að taka afstöðu til þess
hvort skipta eigi fyrirtækinu upp í tvö eða fleiri og
hvernig eigi að bæta afkomu allra fimm meginsviða
HP.
Reuters
Mark Hurd á blaðamannafundi Hewlett Packard, þar sem
ráðning hans til fyrirtækisins var tilkynnt.
DANSKA fjarskiptafyrirtækið
TDC (áður Tele Danmark) hefur
tryggt sér meirihluta, nánar tiltekið
62,9% hlutabréfa, í símafyrirtækinu
HTTC í Ungverjalandi. Þannig nær
fyrirtækið einnig yfirráðum yfir
fjarskiptaneti Pantel, sem HTTC
keypti í febrúar og ræður yfir fjar-
skiptaleiðum til nágrannalandanna,
Rúmeníu, Búlgaríu, Króatíu, Aust-
urríkis, Slóveníu, Slóvakíu, Úkraínu
og Serbíu.
Torben V. Holm, aðstoðarforstjóri
TDC, segir í samtali við Børsen að
sérstaða Ungverjalands á fjar-
skiptamarkaði felist einmitt í stað-
setningu þess sem „umferð-
armiðstöðvar“ í Austur-Evrópu.
Ungverjaland
umferðarmiðstöð
í fjarskiptum
YFIRVÖLD á Filippseyjum hafa
ákveðið að grípa til róttækra sparn-
aðaraðgerða á næstu vikum.
Fyrirtæki í opinberri eigu sem og
stjórnardeildir verða næstu tvo
mánuðina aðeins opin fjóra daga í
viku. Á móti
kemur að þau
verða opin í tíu
klukkustundir á
degi hverjum í
stað átta. Áfram
verður því unnin
40 stunda vinnu-
vika.
Með þessu
móti hyggjast yf-
irvöld draga úr fjárútlátum vegna
orkukaupa. Gloria Arroyo, forseti
Filippseyja, sagði í gær nauðsyn-
legt að bregðast við þeim miklu
hækkunum sem orðið hefðu á olíu-
verði.
Aðgerðir þessar til sparnaðar
verða í gildi frá 4. apríl til 31. maí.
Dagblöð segja stjórnvöld vonast til
að spara andvirði tæpra 80 milljóna
króna með þessum hætti.
Vinnudögum
fækkað til að
spara orkuna
Gloria Arroyo
JAPÖNSK framleiðslufyrirtæki
glíma enn við afleiðingar samdrátt-
arins sem varð í efnahagslífinu í
fyrra.
Nýjar tölur sýna að framleiðsla
dróst saman um 2,1% í febr-
úarmánuði miðað við mánuðinn á
undan. Erfiðleikarnir bitna einkum
á tæknifyrirtækjum.
Á þriðjudag voru birtar nýjar
hagtölur sem sýndu að atvinnulaus-
um hefur fjölgað. Kom sú nið-
urstaða á óvart. Þá leiddu tölur
einnig í ljós samdrátt í útgjöldum
heimila og smásölu.
Lítils háttar samdráttur ein-
kenndi japanskt efnahagslíf í fyrra.
Jenið hefur styrkst að undanförnu
sem aftur hefur í för með sér að
samkeppnishæfni japanskra fram-
leiðenda erlendis minnkar. Þar með
hefur útflutningur til mikilvægustu
markaða, Kína og Bandaríkjanna,
dregist saman.
Japönsk iðn-
fyrirtæki í vanda