Morgunblaðið - 31.03.2005, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2005 B 27
VERKFÖLL hjá tveim stærstu
gullnámufyrirtækjum í Suður-
Afríku breiðast nú út og var gert
ráð fyrir að um 30.000 manns
myndu leggja niður störf síðdegis í
gær, að sögn BBC. Fyrirtækin tvö,
Harmony Gold og Gold Fields, sjá
um nær helming af allri gullvinnslu
í landinu en Suður-Afríka er mesti
gullframleiðandi í heimi.
Alls vinna um 80.000 manns hjá
fyrirtækjunum tveim. Deilt er um
kaup en einnig krefjast námu-
eigendur þess að þeir fái að segja
upp fjölda starfsmanna. Er bent á
að hagnaður af útflutningi hafi
dregist saman vegna þess hve gengi
gjaldmiðils landsins, rand, sé hátt.
Stéttarfélögin vilja að mán-
aðarkaup hækki úr 706 rand í 1.200
rand sem samsvarar um 15 þúsund
krónum. „Því miður er ljóst að
stjórnendur beggja þessara fyr-
irtækja eru mjög hrokafullir,“
sagði Moferere Lekorotsoana, tals-
maður sambands námumanna,
NUM, í gær.
Verkföll
í gullnámum
Reuters
ÓRÓI er innan fjármálafyrirtæk-
isins Morgan Stanley að því er segir
í frétt á vefsíðu Financial Times.
Hópur yfirmanna hjá fyrirtækinu
er sagður ætla að beita sér gegn
stjórnarformanninum Phil Purcell
eftir að hann kynnti hugmyndir sín-
ar um uppstokkun innan fyrirtæk-
isins.
Segir í frétt FT að órói af þessu
tagi sé óvenjulegur meðal fyr-
irtækja á Wall Street. Hann hafi
komið upp á yfirborðið eftir mun
slakara gengi hlutabréfa í Morgan
Stanley en helstu keppinautanna,
svo sem Lehman Brothers, Bear
Stearns og Goldman Sachs.
Órói innan raða
Morgan Stanley
AP
STJÓRNVÍSI mun á þessu ári
veita ný verðlaun í íslensku við-
skiptalífi og verða þau veitt fyrir
„Ársskýrslu ársins“. Stjórnvísi
veitir verðlaunin í samstarfi við
Kauphöll Íslands sem er bakhjarl
verðlaunanna. Verðlaunin verða
veitt árlega.
Markmiðið með verðlaununum
er að vekja athygli á því hversu
mikilvægar ársskýrslur eru. Í
fréttatilkynningu frá Stjórnvísi
segir að góð ársskýrsla sé mik-
ilvæg í upplýsingagjöf fyrirtækis
og fjalli um öll helstu atriði sem
máli skipta í rekstri þess. Þess er
vænst að verðlaunin verði fyr-
irtækjum hvatning til að gera enn
betur. Þátttakendur eru þau
hlutafélög sem skráð eru í Kaup-
höll Íslands hverju sinni. Ekki
verður óskað eftir umsóknum
heldur mun dómnefnd velja þá
ársskýrslu sem verðlaunin hlýtur
úr hópi skráðra félaga. Dómnefnd
verðlaunanna er skipuð þeim
Guðfinnu S. Bjarnadóttur rektor
Háskólans í Reykjavík, Heimi
Haraldssyni löggiltum endurskoð-
anda og Stefáni Halldórssyni
framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðs
verkfræðinga.
Verðlaun fyrir
ársskýrslu ársins
STJÓRN bresku verslanakeðjunnar Somerfield
mun koma saman síðar í dag til að ræða tvö yf-
irtökutilboð í keðjuna. Hvort tilboð um sig hljóðar
upp á um einn og hálfan milljarð punda að með-
töldum skuldum, eða um 170 milljarða íslenskra
króna, að því er fram kemur í frétt í Financial Tim-
es. Segir þar að líklegt sé að stjórnendur Somer-
field telji tilboðin of lág þar sem eignir keðjunnar
séu of lágt metnar. Ætla megi að hugsanlegir nýir
eigendur keðjunnar fengju yfirráð yfir eignum upp
á rúmlega einn milljarð punda, eða yfir 115 millj-
arða íslenskra króna, verði af því að stjórnin sam-
þykki yfirtökutilboð.
Segir í frétt FT að eignir Somerfield hafi verið
Yfirtaka á Somerfield rædd á stjórnarfundi
metnar á 772 milljónir punda í apríl 2004, sam-
kvæmt ársreikningum samsteypunnar. Somerfield
hafi frá þeim tíma í tvígang aukið við eignir sam-
steypunnar, sem eigi nú samtals um 1.300 verslanir.
Baugur í samkeppni
Fram kemur í frétt Daily Mail að reiknað sé með að
stjórnendur Somerfield muni hleypa bjóðendum í
bókhald samsteypunnar, en áður vilji þeir vita hve
miklar trúnaðarupplýsingar bjóðendurnir fari fram
á að fá. Stjórnendurnir séu sérstaklega með varann
á í þessum efnum gagnvart Baugi, vegna eignar-
halds Baugs á samkeppnisfyrirtækinu Iceland. Ef
einhverjum af bjóðendum í Somerfield verði hins
vegar hleypt í bókhald samsteypunnar þá eigi aðrir
alvarlegir bjóðendur rétt á hinu sama.
Tchenguiz í bestri stöðu
Í frétt Daily Mail segir að mikil alvara sé að baki til-
boði Tchenguiz í Somerfield. Samsteypan leigi nú
þegar húsnæði af Tchenguiz og fjármálafyrirtæk-
inu Barclays. Þar er um að ræða samtals 51 fyrrum
Safeway-verslun, sem Somerfield keypti af WM
Morrison-keðjunni í fyrra. Segir Daily Mail að sér-
fræðingar í fjármálamarkaði í London telji meðal
annars að vegna þessa standi Tchenguiz og sam-
starfsaðilar best að vígi þegar kemur að hugsanleg-
um kaupum á Somerfield.