Morgunblaðið - 15.04.2005, Page 2
2|Morgunblaðið
Ágæti lesandi
Um helgina verður sýningin Vor-
boðinn haldin annað árið í röð í Vetr-
argarðinum í Smáralind. Sýningin í
fyrra tókst að okkar mati afskaplega
vel. Við erum mjög þakklát fyrir gríð-
arlega góða aðsókn og jákvæðar við-
tökur. Yfir 40 þúsund manns sóttu
Smáralindina heim yfir sýningarhelg-
ina í fyrra og væntum við þess að jafn
vel takist til í ár.
Eins og í fyrra standa fyrirtækin
Jón Bergsson og Hellusteypa JVJ að
Vorboðanum 2005. Við höfum átt afar
ánægjulegt samstarf við sýnendur og
aðra sem hafa komið að þessu með
okkur á einn eða annan hátt og gert
okkur mögulegt að halda veglega sýn-
ingu þar sem ekki er innheimtur að-
gangseyrir og kynnt flest það sem við-
kemur framvæmdum í garðinum og
húsinu.
Vetrargarðurinn í Smáralind hent-
ar að okkar mati vel til vörukynninga
þar sem fólk getur sameinað að kynna
sér áhugaverðar vörur sýnenda og
kíkt í verslanir eða fengið sér eitthvað
gott að borða. Ekki má heldur gleyma
því að við Smáralind eru stærstu bíla-
stæði landsins og aðkoma öll til fyr-
irmyndar.
Sýnendur munu örugglega gera sitt
til að þú hafir ánægju af deginum og
fáir hugmyndir sem gera garðinn þinn
að sæluveröld fyrir fjölskylduna þína.
Við vonumst til að sem flestir hafi
tækifæri til að koma og hlökkum til
njóta vorstemningarinnar með ykkur.
Fyrir hönd Vorboðans sf.
Jón Arnarson og
Dagrún Guðlaugsdóttir Krókusar eru þau vorblóm sem gera
okkur ljóst að senn fari vorið að koma.
Þrátt fyrir endurtekin hretköst blómgast
þeir í öðrum hverjum garði, – gleðja
augu okkar og segja með tilvist sinni;
bráðum kemur betri tíð með blóm í haga.
Falleg vorblóm
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Útgefandi: Árvakur hf.
Umsjón efnis: Guðrún Guðlaugsdóttir,
gudrung@mbl.is
Ljósmynd á forsíðu: Árni Sæberg
Umbrot: Harpa Grímsdóttir
Auglýsingasala: Katrín Theódórsdóttir,
s: 569-1105, kata@mbl.is
Prentun: Prentsmiðja Árvakurs hf.
Dreift með Morgunblaðinu
Þekjublóm 4
Garðáhöld 6
Einingahús og rafmagn 8
Garðhús 10
Uppskriftir og grill 12
Gamla pósthúsið 14
Kort yfir sýningarsvæði 16
Heitir pottar 18
Litfagrir nytjahlutir 20
Kamínur og hert gler 21
Landmótun 22
Sláttuvélar 23
Pílugluggatjöld 24
Hjólhýsi og gólfslípun 25
Bergiðjan 26
Skermir fellitjöld 27
Villigarðyrkja 28
Munstur í steypu 29
Þökur og ný tré 30
Efnisyfirlit