Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 8
Æ fleiri koma sér upp sumarhúsum
víðs vegar um landið. Einn þeirra aðila
sem selja sumarhús er Óskar Trausta-
son.
„Ég er með kanadísk einingahús,
ætluð sem sumarhús, til sölu í fyrirtæki
mínu Húsplan.is,“ segir Óskar.
„Ef við tökum sem dæmi 55 fermetra
sumarhús þá kostar það 2,2 milljónir
króna og innifalið er þá allt efni utan-
húss og innanhúss, allt klæðningarefni
og hurðir.“
Er mikið mál að koma þessum húsum
upp?
„Nei, það má reisa svona hús á helgi
og loka því. Hús þessi eru yfirleitt reist
á steyptum grunni og einnig er hægt
að fá þau með trégólfi. Áætlaður kostn-
aður við að klára húsið er um 1,5 millj-
ónir króna.“
Kanadísk einingahús
Æ fleiri koma sér upp sumarhúsum, einingahús eru þægi-
leg viðureignar og í þeim geta menn ýmislegt gert sjálfir.
8|Morgunblaðið
Margir sumarhúsaeigendur oglíka garðeigendur í þéttbýlihafa komið sér upp heitumpottum eða hafa það í
hyggju. Orkuverð fyrir almenna notkun
hjá RARIK hefur lækkað á þessu ári og
kemur það væntanlega þeim til góða, ekki
síst þeim sem eru með rafhitaða potta í
sumarhúsum.
„Gjaldskráin breyttist á þessu ári
þannig að fastagjöldin hafa hækkað en
orkugjöldin hafa lækkað,“ segir Stefán
Arngrímsson hjá RARIK. „Þetta þýðir að
öll viðbótarnotkun er á lægra verði en áð-
ur. Þetta kemur t.d. þeim að notum sem
eru með heita potta sem ganga fyrir raf-
magni. Þar hefur einingaverð lækkað úr
um tíu krónum í um átta krónur.“
Kostar um
1.500 kr. á mánuði
að hita pott
Er dýrt að nota raf-
hitaða potta?
„Nei, það tel ég alls
ekki, samkvæmt minni
reynslu er kostnaður-
inn um 1.500 krónur á
mánuði, en það fer
auðvitað eftir því hve
mikið potturinn er notaður.“
Við hvað notkun ert þú að miða?
„Ég er að tala um 800 lítra pott sem er
notaður í klukkutíma í senn þrisvar í viku
og vatnið þá 38–39°C heitt. Þess á milli er
vatninu haldið 37°C heitu.“
Er rafmagn almennt að lækka hjá RA-
RIK?
„Það má segja að raforkuverð á síðasta
ári hafi verið í sögulegu lágmarki, en um
síðustu áramót tóku ákvæði nýrra orku-
laga gildi og gjaldskrár breyttust, bæði til
hækkunar og lækkunar.“
Hvað hækkar og hvað lækkar?
„Nú er ekki lengur spurt til hvers mað-
ur notar rafmagnið. Almennt séð er það
notkun til húshitunar sem hækkar þar
sem hún var á niðursettu verði. Almenn
notkun svo og notkun atvinnuveganna
lækkar yfirleitt. Þetta er einskonar út-
jöfnun á fyrri gjaldskrá.“
Hvað er hægt að gera til að lækka
rafmagnsreikninginn?
Hvað getur fólk gert til lækka raf-
magnskostnað hjá sér?
„Það er margt sem má benda á. Hús-
hitun vegur þyngst hjá þeim sem ekki
hafa hitaveitu og þar eru ýmsar orkuspar-
andi aðgerðir svo sem bætt einangrun
sem gefa góða raun. Fyrir almenna heim-
ilisnotkun má nefna að notkun tölva og
annarra margmiðlunartækja hefur stór-
aukist og víða gætir fólk þess ekki að
slökkva á tækjunum þegar þau eru ekki í
notkun. Svo eru það kæli- og frystiskápar,
þvottavélar og þurrkarar sem eru orku-
frekustu einingarnar á hverju heimili.
Annars vil ég benda á heimasíðu okkar
rarik.is þar sem finna má ýmis holl ráð
varðandi orkunotkun, bæði fyrir rafmagn
og heitt vatn.“
Ljósmynd/Súsanna Svavarsdóttir
Ein vinsælasta sumarhúsabyggð á Íslandi er í Grímsnesinu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Heitur pottur fjölgar ánægjustundum í sumarhúsinu eða í garðinum.
Stefán
Arngrímsson
Orkuverð
hefur lækkað
Margir sumarhúsaeigendur og líka garðeigendur í þétt-
býli hafa komið sér upp heitum pottum eða hafa það í
hyggju. Það eru ekki slæmar fréttir fyrir þessa aðila að
orkuverð hjá RARIK hafi lækkað.
Dalvegi 28
201 Kópavogi
Sími 515 8700
w w w . f u n i . i s f u n i @ f u n i . i s
ÚTIARINN - GRILL
VIÐARKAMÍNUR
REYKRÖR
FR
U
M
-
04
03
10
21