Morgunblaðið - 15.04.2005, Síða 10
10|Morgunblaðið
Timburverk af ýmsu tagi fer aðleita mikið á hugi landsmannaþegar vora tekur. Það þarf aðkoma upp girðingum og sólpöll-
um og gera við ýmislegt og einnig þarf að
bera á garðhúsgögnin og þannig mætti
lengi telja.
BYKO hefur lengi boðið upp á mikið
úrval af timbri til ýmissa nota.
„Við flytjum inn girðingareiningar,
húsgögn og ýmsa fylgihluti í garðinn frá
verksmiðju BYKO í Lettlandi,“ segir
Margrét Möller starfsmaður í BYKO.
En er mikill áhugi fyrir tilbúnum ein-
ingum í timbri?
„Jú, það er mikill áhugi fyrir þeim, ekki
síst vegna þess að húseigandinn getur
sjálfur auðveldlega sett þær upp með smá
leiðbeiningum, þannig sparar hann tíma
og peninga.
Stærstir í innflutningi á
girðingaeiningum
Við höfum verið stærstir í innflutningi á
girðingaeiningum og við í BYKO fylgj-
umst vel með þróuninni, og því hvað fólk
vill helst og höfum kynnt nýjungar í girð-
ingaeiningum á hverju ári og það munum
við að sjálfsögðu gera í ár.
Verksmiðjan BYKO í Lettlandi fram-
leiðir líka allskonar bekki, borð og stóla
og mikið úrval blómakassa, auk annars.
Selja brýr í tveimur lengdum
Við seljum t.d. brýr í tveimur lengdum,
2,2 metra og 3 metra. Framleiðslan á
þeim hófst nú með því að mig langaði í
brú yfir lækinn við sumarbústað okkar
hjóna!
Í dag er þessi lækur allt í einu orðinn
stórt atriði hjá okkur í sumarbústaða-
landinu. Brúin hefur gert það að verkum
að lækurinn er sýnilegri og fallegri og
umhverfið við hann hefur verið lagfært og
prýtt.
Í BYKO höfum við selt fleiri hundruð
brýr þannig að ég geri ráð fyrir að mörg
sumarbústaðalönd státi af fallegum læk
og fallegu umhverfi, þökk sé fallegri brú.
„Ég segi stundum að frú Vigdís Finn-
bogadóttir hafi hjálpað okkur Íslend-
ingum vel af stað með áhuga á trjárækt
og umhverfi okkar og er ég svo sann-
arlega ein af þeim og ég hugsa oft hlýtt til
frú Vigdísar.“
En hvað með garðhúsgögnin?
„Við seljum eigin framleiðslu frá Lett-
landi, en auk þess flytjum við inn léttari
húsgögn úr harðvið (tekki) frá Aust-
urlöndum og nýja línu úr áli og gleri sem
við bindum miklar vonir við. Þessi hús-
gögn úr áli og gleri eru ekki síður hugsuð
fyrir garðskála.
Garðhúsgögnin frá Lettlandi eru
þyngri og viðameiri en hin síðastnefndu
léttari og heppilegra að taka þau inn yfir
veturinn.
Jólaskreyting á garðsófann
vakti athygli
Í garðinum hjá mér eru garðhúsgögn
frá Lettlandi sem eru úti allan ársins
hring og um jólin setti ég greni og jólaljós
á bekkina, þannig má nota húsgögnin
sumar, vetur, vor og haust – njóta þeirra
á sinn hátt á hverri árstíð og skreyta þau í
samræmi við náttúruna.
Jólaskreytingin mín í garðinum vakti
mikla athygli og við heimilisfólkið nutum
ljósanna.
Þrjár nýjar tegundir af garðhúsum
Eru þið með eitthvað af nýjum garð-
hýsum?
„Já, við erum með þrjár nýjar tegundir
í ár af garðhúsum frá Finnlandi. Þau eru
frá fyrirtækinu Lillevilla og hafa verið
mjög vinsæl undanfarin ár. Við reynum á
hverju ári að bæta úrvalið. Við fylgjumst
náttúrulega með þörfum og óskum við-
skiptavina okkar og högum framboði í
samræmi við þær.
Nýju húsin 3 eru stærri garðskúr en við
höfum boðið upp á 9 fermetra, hús með
tveimur sérherbergjum sem eru hugsuð
sem gestahús eða viðbót við bændagist-
inguna og um 20 fermetra hús með furu-
bjálkum sem eru 70 mm að þykkt. Þessir
bjálkar eru þykkari en á hinum húsunum,
en á þeim eru 21 mm og 45 mm þykkir
bjálkar.
Sólhlífar slógu í gegn í fyrra
Í fyrra byrjuðum við að bjóða við-
skiptavinum okkar markísur til sölu.
Þessar sólhlífar slógu aldeilis í gagn og
seldist lagerinn upp á stuttum tíma. Nú í
ár munum við bjóða markísur og verðum
örugglega með lægsta verðið aftur!
Ég má til að minnast á að við höfum
selt barnahús frá Lillevilla síðustu árin og
hafa þau notið mikilla vinsælda. Við mun-
um hugsa vel um börnin í ár eins og und-
anfarin ár og bjóða upp á kastala, sand-
kassa, hoppukastala, trampolín,
sundlaugar, svo eitthvað sé nefnt.
Ég get ekki séð annað en að við ættum
að geta boðið flestum eitthvað við hæfi í
verslunum BYKO í sumar. Nú þegar lóan
er komin og vorið á næstu grösum, verður
ljúft að taka á móti sumrinu, og hafa það
gott í sumar,“ sagði Margrét að lokum.
Margrét Möller við einn garðbekkinn með nýtt gestahús í baksýn.
Blómaker úr timbri eru til sölu í BYKO.Eitt af nýjum gestahúsum frá Lillevilla sem BYKO er nú með í sölu.
Garðsófinn góði sem líka má setja á seríu sem lýsir upp vetrarmyrkrið um jólaleytið.
Falleg húsgögn og fleiri
tegundir af húsum
Hús, húsgögn, girðingareiningar, timbur af öllu tagi. Margrét Möller segir frá
ýmsu því sem er í boði hjá BYKO nú á vordögum.
GARÐVÉLAR ehf.
Tökum að okkur ýmsar lóðaframkvæmdir
s.s. hellulagnir, sólpalla, skjólgirðingar, gróð-
ursetningar, beðagerð, tyrfingu og hleðslur.
Þjónustum einnig sumarhúsalóðir.
Komum og skoðum, gerum verðtilboð
Pantanir í símum 895 0570 og 697 5599
eða á netfangið gardvelar@simnet.is
Fjárfestið í fagmennsku!