Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 14
Ístórum og glæsilegum garði áBrúnavegi 8 stendur gamla póst-húsið í bland við nýrri byggingar.Húsráðendur þarna eru Ragn-
hildur Þórarinsdóttir og Bergur Bene-
diktsson. Þau eru senn að opna gistingu
í gamla pósthúsinu, en þau eiga nú eign
þessa ein.
„Við keyptum þetta hús 1982 með fé-
lögum okkar Áslaugu Helgadóttur og
Nichlas Hall. Við gerðum húsið upp
saman á næstu 7 árum sem íbúðarhús
fyrir okkur öll. Þessir félagar okkar
vildu fyrir skömmu selja, við keyptum
þeirra hlut í eigninni og ætlum að leigja
hana út í skammtímaleigu, ferðamönn-
um innlendum sem erlendum.
Þetta er óvenjulegt sambýli og við
vildum hafa hönd í bagga með hvernig
þetta yrði nýtt. Þess má geta að þetta
er reyklaust hús og það komast þar fyr-
ir 6 manns í rúmi og einn til tveir að
auki. Við veitum þá þjónustu að kaupa
inn fyrir fólk ef það óskar en að öðru
leyti sér það um sig sjálft hvað mat
snertir. Þetta er fullbúið og ríkmann-
legt heimili, “ segir Ragnhildur við
blaðamann inni í stofu hins gamla póst-
húss, sem upphaflega var reist 1847 og
stóð þá við Austurvöll, á lóðinni Póst-
hússtræti 11, þar sem Hótel Borg
stendur nú.
Skrifstofa Milljónafélagsins
og íbúðarhús Thors Jensens
„Árið 1872 var Ole P. Finsen skip-
aður póstmeistari fyrstur manna. Bjó
hann þá í umræddu húsi og setti þar
upp póstafgreiðslu í norðurendanum.
Var þar oft þröngt á þingi er fréttist að
póstur hefði borist til bæjarins, enda
tíðkaðist þá ekki útburður bréfa,“ segir
Ragnhildur, en hún og maður hennar
hafa kynnt sér eftir föngum sögu húss-
ins.
Árið 1898 voru að hennar sögn
þrengslin orðin slík við póstafgreiðsluna
að ekki var lengur við unað og hún því
flutt í Barnaskólann við Pósthússtræti.
Upp frá því gekk húsið við Póst-
hússtræti 11 undir heitinu gamla póst-
húsið.
Árið 1902 eignaðist Thor Jensen hús-
ið og bjó þar ásamt fjölskyldu sinni þar
til þau fluttu að Fríkirkjuvegi 11. Millj-
ónafélagið var í gamla pósthúsinu með
skrifstofur sínar um tíma og nokkru
síðar hafði Morgunblaðið bækistöð í
húsinu um skeið. Er ákveðið var að
reisa Hótel Borg var húsið flutt suður í
Skerjafjörð árið 1928 á lóð á mótum
Reykjavíkurvegar og Þvervegar, sem
nú heitir Einarsnes. Var þar m.a. rekið
barnaheimili um tíma. Í byrjun árs 1941
eignaðist Hallur Hallsson tannlæknir
húsið og nokkrum mánuðum síðar var
honum 0gert að fjarlægja gamla póst-
húsið vegna flugvallargerðarinnar.
Breska hernámsliðið flutti síðan húsið í
Laugarásinn 14. ágúst 1941, á lóð sem
nú er Brúnavegur 8. Þar hefur það ver-
ið fært í upprunalegt horf og blasir við
sjónum manna, – víðförlasta hús í
Reykjavík. Framan á því er skjöldur
sem á er letrað:
Nýju hellurnar við klifurtréð þekja 70 fermetra og eru frá Hellusteypu JVJ. Hellu-
lagðir verða 100 fermetrar til viðbótar með götusteini og hefðbundnum hellum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gamla pósthúsið hefur fengið glæsilega andlitslyftingu og var endurnýjunin gerð af fagfólki.
Ragnhildur Þórarinsdóttir er ásamt
manni sínum Bergi Benediktssyni að
opna skammtímagistingu á Brúnavegi 8.
Falleg hvít vorlaukablóm prýða svörðinn
fyrir neðan klifurtréð.
Séð inn í garðinn að innganginum í Gamla pósthúsið.
Gisting í gamla
pósthúsinu í
glæsilegum garði
Gamla pósthúsið var reist árið 1847 við Austurvöll í
Reykjavík. Það varð pósthús 1872, síðar hafði Morg-
unblaðið þar aðsetur um tíma. 1928 var Gamla pósthúsið
flutt út í Skerjafjörð og þaðan var það flutt 1941 að Brúna-
vegi 8, þar sem það hefur staðið sem íbúðarhús frá því
Hallur Hallsson tannlæknir flutti það á sumarhúsaland
sitt þar. Nú búa þar hjónin Ragnhildur Þórarinsdóttir og
Bergur Benediktsson og eru þau að opna þetta sögufræga
hús sem skammtímagistingu um þessar mundir.
14|Morgunblaðið
Hellur eru stóra málið þegar farið er að skipuleggja t.d. innkeyrslur og stéttir í
garða. Hellusteypa JVJ hefur selt mikið af hellum undanfarið.
„Klaustursteinn hefur verið vinsælastur hjá okkur, hann er 11 sentimetra
breiður og er í fimm lengdum, einnig erum við með hefðbundnar ferkantaðar
hellur í ýmsum stærðum og gott úrval af steinum,“ segir Dagrún Guðlaugsdóttir
hjá Hellusteypu JVJ.
„Við framleiðum þessar hellur sem við seljum en við erum einnig nýlega farin
að flytja inn hellur sem henta einstaklega vel á sólpalla, þær eru úr granítnátt-
úrusteini. Það er skemmtilegasta nýjungin í ár hjá okkur. Líka verður hægt að fá
flísar og utanhúsklæðningar úr sama efni. Einnig erum við með frábært úrval af
garðleikjum í risaútgáfum, einnig útitöfl svo viðveran í garðinum verður enn
skemmtilegri en áður.
Við erum komin með mikla reynslu af helluframleiðslu og vörur frá okkur má
sjá víða um land,“ segir Dagrún að lokum.
Náttúrusteinn úr granít skemmtilegasta nýjungin