Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 19
Morgunblaðið |19
Heitir pottar hafa verið fram-leiddir og seldir á vegumTrefja um árabil. „Frá 1987, þetta er ís-
lensk framleiðsla,“ segir Auðunn Ósk-
arsson, framkvæmdastjóri Trefja.
En hvers konar heitir pottar eru
þetta?
„Við framleiðum ellefu mismunandi
gerðir. Þetta eru allt akryl-pottar,
stærðin er frá 600 lítra upp í 12 potta
sem taka 2.200 lítra. Þeir eru fyrir hita-
veituvatn og einnig erum við með rafhit-
aða potta. Við erum að framleiða heita
potta sem henta sérstaklega íslenskum
aðstæðum. Pottarnir eru seldir á ýms-
um stigum, allt eftir óskum kaupand-
ans.“
Munurinn liggur í hreinsibúnaði
Er mikill munur á rafpottum og hita-
veitupottum?
„Það er enginn munur á pottinum sjálf-
um í okkar tilviki, þetta eru sömu grunn-
einingarnar. Munurinn liggur í hreinsi-
búnaði fyrir vatnið. Í rafhituðum pottum
er fólk að endurnýta sama vatnið mán-
uðum saman, það gefur auga leið að það
þarf að tryggja hreinlætið með síum, af-
jónun á vatninu og svo þarf að setja klór í
vatnið til að drepa bakteríur. En í potti
fyrir hitaveituvatn er almennt gegnum-
streymi, sem þýðir að vatnið rennur í
pottinn og svo út úr honum gegnum yf-
irfall. Rennslið í pottinn viðheldur réttu
hitastigi, en um er að ræða sírennsli þann-
ig að vatnið er ekki endurnotað og því ekki
þörf á hreinsibúnaði.“
Mikið selt af heitum
pottum á sumrin
Setjið þið upp pottana?
„Við alltént bendum á fólk sem leggur
fyrir sig uppsetningu og frágang á pott-
um. Við erum einnig með ráðgjöf og alls-
kyns fylgihluti sem þarf, bæði við upp-
setningu og rekstur. Við eigum í pottana
alla varahluti ef þarf, fyrir potta frá okkur
framleidda frá fyrstu tíð.“
Er mikið selt hjá ykkur?
„Það er sveiflukennt, þetta er sum-
arsöluvara, byrjar um páska og er mikið
að gera fram yfir verslunarmannahelgi,
en rólegra á veturna.“
Er fólk að kaupa í garðana heima hjá
sér eða meira í sumarhús?
„Það er hvort tveggja en þó held ég að
sumarhúsin séu stærri flokkurinn.“
Heitir pottar –
íslensk framleiðsla
Hvað er notalegra en láta líða úr sér í heitu vatni? Heitir
pottar hafa orðið æ algengari við sumarhús og líka í görðum.