Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 20
20|Morgunblaðið
Steinasteinn Eyjarslóð 9, Reykjavík
Steypt blómaker
mikið úrval granít grá og rauð
Verð frá 4.370.- Frostþolin og sandblásin
steinnsteina
Eyjarslóð 9
101 Reykjavík
Sími 5515720
Ormsvelli 1
860 Hvolsvöllur
Sími 4877752
www.steinasteinn.is
Plantað
u
með
okkur
Blómaval hefur að undanförnuverið með á boðstólum vörurfrá Broste, sem eru vörur fráKaupmannahöfn sem verið
hafa mjög vinsælar.
„Þetta er nytjavörulína og spannar her-
bergi heimilisins og líka sólpallinn og sval-
irnar og jafnvel út í skóg,“ segir Rúna
Magnúsdóttir hjá Bergís.
„Bergís flytur inn þessar vörur sem eru
m.a. seldar í Blómavali. Allar nánir upp-
lýsingar um þessar vörur höfum við sett á
heimasíðu okkar sem er www. bergis.is,“
segir Rúna.
En hvað er skemmtilegt frá Broste
þetta vorið?
„Ég hef lýst dálítið vorinu sem
skemmtilegri samtengingu við náttúruna,
þar sem bjartir litir minna okkar á að
sumarið sé í nánd. Ilmur jarðarinnar
vaknar til lífsins og ber með sér bjartar
vonir um notalegar stundir í návist þeirra
sem okkur þykir vænt um.
Ný lína í körfum komin
til skjalanna
Meðal þeirra hluta sem nú eru að koma
inn er ný lína í körfum, bæði úr tágum og
heklaðar körfur. Þá kemur allt í stíl, jafn-
vel inniskór, nefna má gólfmottur, diska-
mottur, nestiskörfur. Andi sjöunda ára-
tugar er á sveimi yfir þessari línu en þrátt
fyrir það passa hönnuðir sig á að koma
með eitthvað ferskt með blæ hins gamla
tíma. Litirnir núna eru einmitt í takt við
sjöunda áratuginn. Við erum einnig með
hluti sem tilheyra borðskrauti sem nota
má t.d. í garðveislum og boðum framtíð-
arinnar og brúðkaupum. Efnisvalið þar er
mikið gerviefni, fiðrildi eru vinsæl, svo og
gervirósarblöð, vírlengjur og rósarlengj-
ur. Þá má nefna skreytingar í glæra vasa,
nýjungin þar er möguleiki á því sem við
köllum gúmmígrín, þar er um að ræða
bjarta formaða hluti eins og blóm eða fiðr-
ildi sem festa eða smella má á gler eða
spegla og aðra slétta fleti. Blómaval selur
þetta allt saman.“
Bjartir litir sem
minna á náttúruna
Fallegar vörur gleðja augu okkar, ekki síst þegar sólin
skín á þá. Ekki skaðar að hlutirnir séu nytsamir, en það
eru Broste-vörurnar einmitt sem Bergís flytur inn.