Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.04.2005, Qupperneq 21
Gler og brautir ehf. er ungt og vaxandi fyrirtæki. Það sérhæfir sig í Cover-svala- lokum og garðskálum, sem er alveg ein- stök framleiðsla fyrir íslenskan markað. „Við bjóðum upp á glerbrautarkerfi sem kallast Cover,“ segir Gunnar Svan- berg Jónsson, framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, en það kerfi var fyrsta svalalok- unarkerfið sem hægt var að renna yfir horn og opna allt að 95%. „Við notum hert gler, sem er sterkasta gerð glers sem til er og því mjög öruggt,“ bætir Gunnar við. „Hönnunin er falleg og býður upp á þann möguleika að fólk getur setið úti á svölum hvenær sem er án þess að hafa áhyggjur af veðrinu. Íslendingar hafa eins og aðrar þjóðir tekið þessum möguleika mjög vel og höfum við nú þegar sett upp yfir 120 svalalok síðan fyrirtækið var stofnað árið 2003. Cover-kerfið er mjög sterkt og öruggt, barnalæsing er staðalbúnaður og hjóla- legurnar gera kerfið mjög auðvelt í notk- un þar sem auðvelt er að renna glerinu til hliðar. Auk svalaloka bjóða Gler og braut- ir upp á yfirbyggingar og garðskála með sama kerfi sem er eins og sniðið fyrir ís- lenskar aðstæður.“ Notum hert og sterkt gler Morgunblaðið/Ásdís Gler og brautir er fyrirtæki sem sérhæfir sig í glerbrautakerfum fyrir svalir, sól- stofur og garðskála. Gunnar Svanberg Jónsson og Brynjar Sverrir Guðmundsson fyrir framan fyrirtæki sitt í Garðabæ. Morgunblaðið |21 Fegurð náttúrulegs steins og ending steinsteypu Jóhannes Sigvaldason Sími 893 0107 Kamínur geta gert kaldar stofur hlýjar og notalegar. Kamína.com flytur inn kamínur frá Sví- þjóð, frá fyrirtækinu Nibe. „Þeir eru stærstir í framleiðslu á kam- ínum í Svíþjóð og hafa fengið margar við- urkenningar á sinni framleiðslu,“ segir Ómar Másson sem flytur þessar kamínur inn. En hvað þurfa góðar kamínur að hafa til að bera? „Þær þurfa að hafa góða brennslu. Sú krafa er gerð í dag að um hreina brennslu sé að ræða og eldhólfin sem Nibe framleiðir eru þeim eiginleikum búin að eldsteinninn endurkastar hitanum í eldinn og eykur þar af leiðandi hitagjafann. Þessar kamínur sem ég er að selja eru flestar gerðar fyrir hús af stærðinni 100 til 120 fermetrar.“ Það er yndislegt að orna sér við kamínuna á köldum kvöldum. Kamínur í kaldar stofur Rúm í sumarbústaðinn eru eitt af því nauðsynlegasta, það er jú alkunna að við eyðum miklum tíma í rúminu og því þarf að fara vel um okkur, hvort sem við erum heima eða í sumarhúsi. Rúm.is framleiðir rúm í sumarhús og auðvitað líka í heima- hús. En hvað skyldi vera nýtt í sum- arhúsarúmunum núna? „Það er tvöfalt rúm, hægt er að draga annað rúm undan hinu efra,“ segir Frið- finnur Magnússon framkvæmdastjóri hjá Rúm.is. „Við seljum rúm í sumarbústaði á hverjum degi, fyrir utan öll rúmin sem við seljum í heimahús. Við erum með verslun hér að Snorrabraut 56, þar sem gamla ríkið var, og svo erum við með aðra versl- un í Glerárgötu 34 á Akureyri.“ Virðist ykkur að sumarhúsavæðingin sé að aukast? „Mér finnst a.m.k. að fólk sé í miklum mæli að endurnýja rúm í sumarhús sín og hafi að því er virðist talsverða peninga á milli handa núna. Stefna okkar er að vera „vinir litla mannsins,“ við erum með rúm af öllum gerðum, líka ódýr rúm sem henta í sumarhús.“ Framdregin rúm mikið keypt núna Einfalt en útdregið rúm, heppilegt t.d. í sumarhús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.