Morgunblaðið - 15.04.2005, Síða 25

Morgunblaðið - 15.04.2005, Síða 25
Morgunblaðið |25 Sólpöllum hefur fjölgað mjög síðustu árin hér á Íslandi, þeir eru alltaf að verða stærri og fallegri. Áður fyrr voru þetta t.d. 5 m² pallar fyrir framan útidyrahurð en núna eru þetta 200m² pallar sem liggja allt í kringum húsið, með stígum og brúm á milli. Hér á Íslandi er langmest notuð gagn- varin fura í pallana en samt færist í vöxt að nota harðvið. Þessir pallar þurfa við- hald eins og annað timburverk og þar er gott að leita til Gólfþjónustunnar sem sér- hæfir sig í slípun og olíuburði á sólpöllum Sólpallar eru fljótir að grána en það er ysta lagið sem sveppurinn nær að festa sig í þar sem fúavörnin skolast burtu með rigningarvatninu. Auðvelt að slípa sólpallinn upp Auðvelt er að slípa upp pallinn en það er gert svo til alveg eins og verið sé að slípa upp parketið inni í stofu, fyrst er byrjað grófum pappír og svo endað á fín- um, og að lokum er olían eða fúavörnin borin á með viðeigandi hætti. Harðviður sést einnig hér á landi en þó eingöngu sem yfirborðsklæðning (dekk). Harðviðurinn er náttúrulega miklu end- ingarbetri en á móti kemur að smíði á svoleiðis dekki tekur miklu lengri tíma og svo er hann dýrari en furan. Hægt er að nota olíufúavörn og vatns- leysanlega fúavörn. Morgunblaðið/Sverrir Hér sést Erlendur Þór Ólafsson við parketslípun. Sólpallar þurfa viðhald og slípun Það er ekki nóg að koma sér upp sólpalli, það þarf að halda honum við. Þegar við- urinn fer að láta á sjá má slípa hann upp og gera hann sem nýjan. „Undanfarin ár hefur Víkurverk ehf. snúið sér nær eingöngu að sölu á hús- bílum og vörum tengdum rekstri slíkra farartækja,“ segir Kristín Jónsdóttir hjá Víkurverki. „ Má þar nefna að fyrirtækið hafði umboð fyrir hina þekktu húsbíla af gerðunum Elnach, Benimar og Sea. Síð- ar bætast við Rimor og LMC húsbílar og nú bætir Víkurverk einnig hjólhýsum og fellihýsum við, ásamt því að vera með fjölbreytt úrval aukahluta sem tengjast ferðalögum á slíkum húsvögnum. Úrval húsbílanna hefur verið stóraukið og get- um við ævinlega séð fjölbreytni í sniði innréttinga, undirvagna og véla á staðn- um. Nú verður t.d. boðið upp á aft- urhjólsdrifna húsbíla af Ford gerð frá ítalska fyrirtækinu Rimor sem þekkt er um alla Evrópu fyrir hágæðavöru. Auk þess að leggja ríka áherslu á fjöl- breyttasta úrvalið á landinu af húsbílum býður fyrirtækið upp á vönduðustu hjól- hýsi sem framleidd eru í Evrópu í dag. Eru það hjólhýsi af LMC gerð, þýsk gæðaframleiðsla, sem hentar okkar ís- lensku aðstæðum fjarskalega vel. Má þar nefna að þau eru öll boðin með styrktum undirvagni ásamt auknu ein- angrunargildi og sterkari álklæðningu í veggjum. Einnig er hægt er að fá húsin með hita í gólfi sem kemur sér vel þar sem ferðatími okkar Íslendinga er sífellt að lengjast í báða enda, bæði haust og vor, getur þá verið gott að stíga fram úr rúminu á hlýtt og notalegt gólfið. Boðið er upp á húsin með hinu þekkta Alde- hitakerfi, en fyrir þá sem ekki vilja það er einnig hægt að fá þau með hefðbund- inni Truma-miðstöð. Nýjasta línan í sýningarsal Víkurverks Í sýningarsal fyrirtækisins á Tang- arhöfða 1, verður ávallt hægt að sjá nýj- ustu línuna í húsbílum og hjólhýsum frá fyrrgreindum framleiðendum. Mun Vík- urverk leggja áherslu á að bjóða mikla breidd í húsbílum og ferðavögnum á verði sem öllum hentar. Má þar nefna að verð á húsbílum hefur verið lækkað frá því í fyrra. Auk þessa býður fyr- irtækið upp á fjölbreytt úrval auka- hluta, stórra sem smárra, fortjöld, skyggni, sólarsellur, útvörp og margt margt fleira sem gera okkur ferðalagið ánægjulegra og eykur þægindin á ferða- lögum okkar. Einnig sér fyrirtækið um ísetningu á hljómflutningstækjum, sólarsellum og ýmsum öðrum aukabúnaði sem fólk vill setja í sína vagna eða húsbíla.“ Morgunblaðið/ÞÖK Hjónin Kristín Anný Jónsdóttir og Valgeir Ingi Ólafsson. Hjólhýsi, sumar- hús á hjólum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.