Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 26
Gunnar Breiðfjörð, framkvæmdastjóri Bergiðjunnar. Morgunblaðið/Þorkell Bergiðjan tilheyrir endurhæfing-arsviði Landspítala og þar færfólk starfsendurhæfingu. „Bergiðjan framleiðir m.a. garðhúsgögn úr timbri,“ segir Gunnar Breiðfjörð sem veitir fyrirtækinu for- stöðu. „Garðhúsgögnin okkar eru smíðuð úr furu og sérstaklega miðuð við íslenska veðráttu. Þar á ég við að þau eru sér- staklega fúavarin, grunnuð tvisvar með lit. Þetta er allt unnið í höndunum. Þetta eru gæðahúsgögn Hönnunin á húsgögnunum er að grunni til norsk, hægt er að leggja alla stóla saman og flest borð, þetta eru gæðahúsgögn sem þola vel íslensk veðr- áttu. Það er gott uppá geymslu að gera. Við erum með að auki blómagrindur og blómaker. Einnig smíðum við timb- urtröppur sem eru mjög vinsælar af iðn- aðarmönnum, – þær bestu á landinu, segjum við. Iðnaðarmennirnir eru meira að segja farnir að taka tröppurnar okkar með sér þegar þeir fara í verkefni erlend- is. Gömlu barnaleikföngin vinsæl Þau er vinsæl gömlu barnaleikföngin sem eru smíðuð hér, t.d. dúkkuvagnar og vörubílar, þessi leikföng eru í takt við það sem börn léku sér að á eftirstríðs- árunum. Rúmföt saumuð fyrir Landspítalann Ýmislegt annað er að gerast í Bergiðj- unni. Við erum t.d. með saumastofu þar sem saumuð eru rúmföt fyrir Landspít- alann og sessur í alla garðstólana sem við seljum, sem og erum við með steypustöð þar sem steyptir eru kubbar sem notaðir eru í plötur og veggi í byggingariðn- aðinum. Jólaseríur í gömlum stíl Á rafmagnsverkstæðinu eru fram- leiddar jólaseríur, þessar gömlu og góðu svörtu með stórum perum, sem notaðar eru mikið af bæjarfélögum, Hafn- arfjörður er t.d. allur skreyttur af seríum frá okkur fyrir jólin. Einnig erum við á rafmagnsverkstæðinu með ýmsa aðra starfsemi. Hjá fyrirtækinu vinna að jafnaði 5 verkstjórar og um 35 starfsmenn. Það er allur gangur á því hvað hver starfsmaður á langan starfsaldur, sumir staldra stutt við en aðrir lengur. Við höfum lítið auglýst framleiðslu okkar en seljum hana í verslun okkar í Bergiðjunni við Vatnagarða við hliðina á IKEA.“ Dúkkuvagn smíðaður að gamalli fyrirmynd. Gamli Ford í útgáfu Bergiðjunnar. Vinsæl svalahúsgögn frá Bergiðjunni. Gæðahúsgögn og gamaldags barnaleikföng Bergiðjan framleiðir garðhúsgögn, leikföng og margt fleira. „Húsgögnin okkar eru sérstaklega miðuð við íslenska veðráttu,“ segir Gunnar Breiðfjörð sem veitir Bergiðjunni forstöðu. Starfsmennirnrir Sigurður og Ingvar við tröppuna frægu, í baksýn er Þór Kol- beinsson verkstjóri. Ingibjörg Þórey saumar sængurver. Tröppur í ýmsum stærðum. 26|Morgunblaðið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.