Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.04.2005, Blaðsíða 29
Þegar verið er að koma upp íbúðarhús- næði eða laga innkeyrslur fer fólk óhjá- kvæmilega að hugsa fljótlega um hvernig gólfin eða planið eigi að líta út. Það er jú grundvöllurinn sem alltaf skiptir höfuð- máli. Eitt af því sem stendur til boða er að fá gólfflötinn steyptan og til eru fyrirtæki sem bjóða upp á munstraða steypu. „Ég steypi gólf og plön með munstraðri steypu samkvæmt einkaleyfi sem ég hef fengið frá Bomanite í Bandaríkjunum,“ segir Jóhannes Sigvaldason. Steypan er lituð með kvartsefnum „Ég keypti þetta einkaleyfi af aðila sem bauð upp á þessa þjónustu hér á landi frá 1987. Ég kom inn í þetta 1998 og rak um tíma með öðrum fyrirtækið Steypulist, en ég er einn með þetta í dag,“ segir Jóhann- es. En hvernig er munstrið sett í steypuna? „Steypan sem er lögð og sléttuð, lituð með kvartsefnum og eru 25 litir í boði, fólk getur valið eftir litaspjaldi en ég framleiði efnið sjálfur þannig að ég get boðið enn fleiri liti. Munstrið er stimplað í með gúmmímótum Þegar steypan hefur náð ákveðinni hörðnun er munstrið stimplað ofan í hana með gúmmímótum.“ Hvernig munstur vill fólk? „Um er að ræða sjö munsturtegundir sem ég get boðið um þessar mundir. Svo þjónusta ég eldri plön unnin með þessari aðferð, þríf þau og ber á þau efni sem fær þau til að glansa og skýrir litinn, og sel efni ef fólk vill gera þetta sjálft.“ Er mikil eftirspurn eftir þessari aðferð? „Já, það er þó nokkur eftirspurn og fer vaxandi. Þetta er hvað kostnað snertir álíka dýrt og að leggja hellur.“ Munstur í steypu með kvartsyfirborði Þarna líkist yfirborðið talsvert flísalögn en er í raun mótað í steypuna. Glæsileg samsetning sem gróðurinn gerir enn fallegri. Steypa með ljósu kvartsyfirborði og fal- lega mótuðum flísamyndum. Steyptar innkeyrslur og stéttar eru að verða algengari og þá vinsælt að hafa munstur í þeim. Til eru margar gerðir af munstrum og velja má úr fjölmörgum litum. Morgunblaðið |29 TÚNÞÖKUSALA TIL SÖLU TÚNÞÖKUR FYRIR HEIMILIÐ, SUMARBÚSTAÐINN EÐA FYRIRTÆKIÐ GERUM TILBOÐ Í MINNI OG STÆRRI VERK 10 ÁRA REYNSLA ODDSTEINN MAGNÚSSON SÍMAR 663 6666/663 7666 NETFANG: tun@visir.is Jamis Capri 2.4 24”, 7-12 ára, álstell, 7 gíra Verð 19.990 kr. Jamis Ranger SX 2.4 24”, 8-12 ára, álstell, 21 gíra, framdempari Verð 19.990 kr. k fy SMÁRALIND SÍMI 545 1550 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 krakka Hjól fyrir alla hressa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.