Morgunblaðið - 22.04.2005, Blaðsíða 1
TRIUMPH ROCKET
BÍLAKIRKJUGARÐAR
BENZ A150
IB Á SELFOSSI
FORMÚLA 1
BARNABÍLSTÓLAR
NISSAN MURANO
– LOKS Í EVRÓPUGERÐ
Hægt að prófa
Opel í þrjá daga
INGVAR Helgason, umboðsaðili
Opel, býður í einn mánuð, frá 18.
apríl til 18. júlí, upp á allt að þriggja
daga reynsluakstur. Tilboðið um
reynsluakstur sem nú stendur al-
menningi til boða er hluti markaðs-
átaks GM í Evrópu. Það nefnist
Million Mile Test Drive og hófst í
Þýskalandi í marsmánuði en hefur
verið að breiðast þaðan út til ann-
arra Evrópulanda síðan. „Við ætl-
um að gefa neytendum kost á því
að finna sjálfir hversu langt Opel-
og Vauxhall-bílar hafa náð í vöru-
vöndun, aksturseiginleikum og
þægindum,“ segir forstjóri GM-
Europe, Fritz Henderson.
Óttast
tjónabílana
BÍLGREINASAMBANDIÐ telur
nauðsynlegt að eftirlit sé með
skráningu tjónabíla í samræmi
við reglur og að bílar á uppboðum
tryggingafélaganna séu aðeins
seldir til viðurkenndra verkstæða.
Sambandið ályktaði um þetta mál
á aðalfundi sínum í síðustu viku
og telur að hætta sé á því að
tjónabílar komist aftur á götuna
án þess að sæta nokkru eftirliti
eða nokkrar upplýsingar liggi fyrir
um þá í tjónaferilsskrá. Einnig
séu dæmi þess að loftpúðar og
fullkomin öryggisbelti séu ekki
sett í bíla eftir að þeir lenda í
tjóni.