Morgunblaðið - 22.04.2005, Blaðsíða 6
N
issan hefur blásið til mikillar
sóknar á markaði fyrir fjór-
hjóladrifna jeppa og jepp-
linga. Á næsta ári verða í
boði ekki færri en sjö gerðir fjórhjóla-
drifsbíla frá Nissan. Patrol er þeirra
stærstur og innan tíðar verður kynnt-
ur hérlendis nýr Pathfinder, svipaður
að stærð og Toyota Land Cruiser 90.
Hann leysir af hólmi Terrano II. Ann-
ar jeppi er Armada sem nú þegar er í
boði í Bandaríkjunum og svo eru
væntanlegir á markað tveir jeppar,
sem enn þá eru á hugmyndastigi. Og
ekki má gleyma pallbílnum King Cab
sem verður leystur af hólmi af nýrri
pallbíl sem á að kallast Navara. Í
jepplingadeildinni er X-Trail í sam-
keppni við Toyota RAV4 og Honda
CR-V en Murano er af gerð fjórhjóla-
drifsbíla sem kalla má lúxus borgar-
jeppa.
Murano hefur verið fáanlegur í
Bandaríkjunum um tveggja ára skeið
og hann er einmitt hannaður í hönn-
unarstöð Nissan í Kaliforníu. Evrópu-
gerð bílsins er hins vegar framleidd í
Japan og nú eru fyrstu bílarnir komn-
ir til Íslands.
Enginn fjallabíll
Murano verður líklega seint mikill
sölubíll hér á landi frekar en aðrir lúx-
usborgarjeppar. Þessir bílar eru í
verðflokki sem setur honum takmörk
á því sviði. En engu að síður er tals-
verð eftirspurn eftir bílum af þessu
tagi hérlendis, sannkölluðum borgar-
jeppum með lúxusívafi. Það sýna
sölutölur á Lexus RX300, BMW X5
og öllum þeim fjölda af amerískum
jeppum og pallbílum sem hafa verið
fluttir inn til landsins að undanförnu.
Murano er ekki fjórhjóladrifsbíll fyrir
þá sem ætla á fjöll eða firnindi heldur
miklu frekar nýtískulegur borgar-
jeppi með eiginleika fólksbílsins og
pláss fjölnotabílsins eða langbaksins.
Stærri en BMW X5 og Lexus RX300
Murano sker sig úr fjöldanum.
Þetta er einn rennilegasti borgar-
jeppinn á markaði. Það er ekki að
finna í honum skarpar línur; hann er
ávalur frá framstuðara að afturstuð-
ara og er í raun og veru sjónræn upp-
lifun, ekki síst vegna þess að formin í
honum blekkja á einhvern hátt augað.
Murano er 4,77 m á lengd og 1,88 m á
breidd og því 3 cm lengri en Lexus
RX300 og 3,5 cm breiðari og heilum
10 cm lengri en BMW X5 en 4 cm
mjórri. Þetta eru einmitt bílarnir sem
Murano keppir helst við. Mörgum
þykir kannski sem þetta verði ójöfn
keppni þar sem keppinautarnir hafa
óneitanlega ímynd lúxusmerkisins yf-
ir sér á meðan Nissan hefur verið bíll
fólksins og látið lúxusarmi sínum,
Infiniti, eftir að keppa við fínu bílana.
Í tilfelli Murano á þetta hins vegar
ekki við, því hann er einungis fáan-
legur í einni útfærslu í Evrópu og
óhætt að segja að þar sé boðinn „einn
með öllu“.
Massaður og vöðvastæltur
Útlit bílsins gerir það kannski að
verkum að hann er ekki fyrir alla; al-
tént ekki þá sem vilja láta lítið fyrir
sér fara. Hann er á 18 tommu álfelg-
um, dálítið bólgnum hjólaskálum og
æði sportlegur á að líta. Massaður og
vöðvastæltur mætti jafnvel segja.
Telji menn hann skera sig úr öðr-
um bílum í ytra útliti er óhætt að
segja að upplifunin af innréttingu
bílsins sé ekki síðri. Murano er leð-
urklæddur og með skreytingum í
miðjustokki og á hurðum og stýri úr
áli. Mælaborðið er með stórri syllu og
mælarnir fyrir aftan stýrið eru eins
og sjálfstæð fljótandi eining. Á stýr-
inu eru stillingar fyrir hljómtæki og
skriðstilli en fyrir ofan miðjustokkinn
er 7 tommu litaskjár með leiðsögu-
kerfi og bakkmyndavél. Leiðsögu-
kerfið nýtist ekki innanlands enn sem
komið er, en bakkmyndavélin er hlut-
ur sem erfitt er að vera án þegar
menn hafa á annað borð vanist henni.
Þá er í bílnum Bose-hljómkerfi.
Sniðug lausn á aftursæti
Staðalbúnaður er líka stór sóllúga
sem er þeim kostum búin að hægt er
að opna hana í fimm þrepum; eða allt
frá lítilli glufu upp í alla lúguna.
Murano er fimm manna bíll með
miklu innanrými. Framsætin eru með
rafstillingu og stýrið er með veltu en
ekki aðdrætti. Gólfið í afturrými er al-
veg slétt og þar er gott pláss fyrir
þrjá fullorðna. Nissan hefur útbúið
Murano með snilldarlega lausn fyrir
aftursætin. Fyrir utan að hægt er að
halla sætisbökunum er nefnilega
hægt að fella þau niður til að búa til
pláss fyrir mikinn farangur. Þetta er
svo sem ekkert nýtt í bílum en í
Murano er þetta gert með því að
grípa í tvö handföng í afturrýminu og
sætisbökin falla slétt niður með einu
handtaki. Sú spurning vaknar hvers
vegna bílaframleiðendur hafa ekki
fyrr fundið þessa lausn?
Vél úr sportbíl og cvt-skipting
Það er fleira óvenjulegt við
Murano. Hann er með 3,5 lítra V6-vél
sem upprunalega er þróuð fyrir
sportbílinn 350Z, en hún er „tjúnuð“
lítillega niður í jeppanum þar sem hún
skilar 234 hestöflum, en í 350Z er hún
látin skila 280 hestöflum. Við hana er
síðan tengd cvt-skipting, (continuo-
usly variable transmission) sem menn
þekkja t.d. úr Primera en einnig hefur
Audi boðið upp á slíkar skiptingar
sem kallast Multispeed. Þetta er
reimskipting en jafnframt með hand-
skiptivali. Kosturinn við þessa skipt-
ingu er að hún er alveg fullkomlega
lungamjúk, menn verða ekki varir við
neinar skiptingar, enda reimdrifin.
Skipting af þessu tagi veldur líka
minni eyðslu en hefðbundnar sjálf-
skiptingar. Sem ekki er vanþörf á því
lítil eyðsla er ekki sterka hlið Mura-
nos. Það verður síðan líklega erfitt að
selja hann í miklu magni í Evrópu þar
sem engin dísilvél er í boði í þennan
bíl.
Það að Murano hafi verið á markaði
í Bandaríkjunum í tvö ár ætti að
tryggja að bíllinn er kominn yfir alla
barnasjúkdóma, jafnvel þótt um 300
nýir hlutir séu í Evrópugerð bílsins og
um 1.300 breytingar hafi verið gerðar
á bílnum. Flestar eru þær smávægi-
legar en stærsta breytingin er á fjöðr-
un bílsins, sem er mun stífari. Bíllinn
liggur líka vel og er stöðugri í beygj-
um en flestir borgarjeppar sem und-
irritaður hefur prófað. Aflið er alltaf
til staðar og bíllinn ber keim af lúx-
usbílum hvað hljóðeinangrun viðkem-
ur. Svo vel hefur fjöðrun Evrópubíls-
ins tekist að fregnir berast af því að
fjöðrunarkerfinu amerísku útgáfunn-
ar verði breytt í samræmi við þá evr-
ópsku strax á næsta ári.
Murano er borgarjeppi með miklu
plássi og hlaðinn búnaði, (xenon-ljós,
18" álfelgur, leðursæti, skriðstilling,
leiðsögukerfi með bakkmyndavél,
Bose-hljómkerfi með 7 hátölurum,
loftkæling, rafmagn í framsætum,
sóllúga o.fl.). Verðið er mjög skaplegt
miðað við búnað, vél og stærð bílsins,
eða 4.990.000 kr. Til samanburðar má
nefna að tveir helstu keppinautarnir
eru nokkuð dýrari. BMW X5 3,0 kost-
ar beinskiptur 5.330.000 kr. en vel á
sjöundu milljón kr. með sambæri-
legum búnaði, og Lexus RX300 Lux-
ury kostar 6.000.000 kr.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aflíðandi línur og bólgnar hjólaskálar gera bílinn kraftalegan.
Djarfir litir í mælum og óvenjuleg form í mælaborði gera bíl-
inn líflegan að innan. Sama V6 vélin og í 350Z en nokkuð dregið úr aflinu.
Nissan Murano – einn með öllu
REYNSLUAKSTUR
Nissan Murano
eftir Guðjón Guðmundsson
gugu@mbl.is
Kemur fullbúinn á 18" álfelgum, xenon-
ljósum og skyggðum afturrúðum.
6 B FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Vél: V6, 3.498 rúmsentimetrar, 24 ventlar, breytileg tíma-
setning ventla, vvt-i.
Afl: 234 hestöfl við 6.000 snúninga á mínútu.
Tog: 318 Nm við 3.600 snúninga á mínútu.
Skipting: CVT með handskiptivali.
Hámarkshraði: 200 km/klst.
Hröðun: 8,9 sekúndur úr kyrrstöðu í 100 km.
Lengd: 4.770 mm.
Breidd: 1.880 mm.
Hæð: 1.705 mm.
Eigin þyngd: 1.865 kg.
Fjöðrun: Sjálfstæð fjöðrun að framan, fjölliðafjöðrun að aftan.
Stöðugleikabúnaður: ESP-stöðugleikastýring og spólvörn.
Farangursrými:
Hjólbarðar: 225/65R18.
Eyðsla: 17,2 lítrar innanbæjar, 12,3 lítrar í blönduðum akstri
(samkv. Nissan).
Verð: 4.990.000 kr.
Umboð: Ingvar Helgason hf.
Nissan Murano