Morgunblaðið - 22.04.2005, Side 7

Morgunblaðið - 22.04.2005, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 B 7 bílar Sími 535 9000 www.bilanaust.is Manista Handþvottaefni sem fagmenn nota: Gert úr náttúrulegum efnum; öflugt en fer vel með húðina. Hand- þvottakre mið sem fagmenni rnir nota! Barrier Cream Ver hendur/húð gegn óhreinindum og áhrifum ýmissa efna. Screen Wash Fyrir rúðu- sprautuna allan ársins hring: Frostþolið efni sem hreinsar, hrindir vatni frá og gerir gler hálla. Inniheldur ekki tréspíra (metanól). Injector Magic Hellt í bensín- geyminn. Losar óhreinindi, heldur innsprautukerfi bensínvélar hreinu, eyðir raka; tryggir eðlilega úðun og endingu spíssa. Árangur: Betri gangur, hámarksafl og sparneytni. Dot 4 Syntetískur bremsuvökvi sem flestir bíla- framleiðendur mæla með fyrir öll bremsu- kerfi, með eða ánABS. Superdiesel Bætiefna- bætt olía: Fyrir meðal- stórar og stærri dísilvélar. Þykktar- flokkun: 15w40. Eurolite Hálf syntetisk olía: fyrir bensín- og dísilvélar. Hár gæða- staðall. Þykktar- flokkun: 10w40. Long Life 100% syntetisk há- gæða olía. t.d. fyrir Audi, Skoda, Golf ofl. Nýjustu staðlar. Þykktar- flokkun: 0w30. NÝLEGA gekk fyrirtækið Nesprýði ehf. til samninga við Heklu um end- urnýjun á stærstum hluta tækjaflota síns. Samningurinn tekur til alls 12 tækja, þ.e. Caterpillar 301, 8 míní- grafa, sex Caterpillar 442D traktors- grafa, einnar Caterpillar M313C hjóla- vélar, tveggja Caterpillar M315C hjólavélar, einnar Caterpillar 325CL beltagröfu og einnar Caterpillar 330CL beltagröfu. Jafnframt fengu Nesprýðismenn nýja fjögurra öxla Scaniu með grjótpalli frá Sörling. Nesprýði ehf. var stofnuð árið 1993 og er með höfuðstöðvar að Vesturbraut 10–12 í Reykjanesbæ en starfssvæðið nær frá Suðurnesjum og yfir allt höfuðborgarsvæðið. Fyrir- tækið hefur alla tíð lagt megináherslu á hellulagnir og almennan yfirborðs- frágang en hefur síðan það var stofn- að vaxið jafnt og þétt og aukið um- svifin og verkefnin stækkað. Hjá fyrirtækinu eru um 50 fastráðnir starfsmenn en á sumrin fer starfs- mannafjöldi yfir 100. Nesprýði hefur frá stofnun átt mikil viðskipti við Heklu hf, bæði í vinnubílum sem eru nær eingöngu WW og MMC, Scania vörubifreiðum og Caterpillar vinnuvélum. Við þessa endurnýjun verður jarð- vinnuvélafloti þeirra eingöngu frá Caterpillar. Jarðvinnuvélaflotinn eingöngu frá Caterpillar Nesprýði samdi við Heklu um endurnýjun á stærstum hluta tækjaflota síns. Barnabílstólar passa ekki í alla bíla  MARGIR foreldrar hafa haft sam- band við Lýðheilsustöð og Umferðar- stofu vegna vandamála sem komið hafa upp vegna bandarískra barnabílstóla. Í fréttatilkynningu frá Umferðarstofu segir að algengt sé orðið að fólk kaupi sjálft bíla beint frá Bandaríkjunum, sem þá eru með bandarískum bílbeltum – en með þeim er oft erfiðleikum bundið að festa evrópska barnabílstóla skv. leið- beiningum. Sem dæmi má nefna að hér á landi eru til sænsku ungbarnabílstól- arnir Akta Graco, sem eru viðurkenndir og merktir samkvæmt ECE r.44 03. Í Bandaríkjunum er framleiddur svip- aður stóll sem heitir Graco en hann er prófaður eftir FMVSS. Báðum stól- unum fylgir pallur sem belti bílsins eru fest við. „Þeir sem keypt hafa Graco ungbarnastól í Bandaríkjunum hafa komist að raun um að ekki er hægt að festa pallinn í evrópska bíla samkvæmt leiðbeiningum. Þeir hafa þá gripið til þess ráð að kaupa sænska pallinn, sem fylgir Akta Graco, og nota hann í stað- inn. En það er ekki ráðlegt því allir hlut- ar öryggisbúnaðar/barnabílstóla þurfa að vera prófaðir eftir sömu prófunar- reglum.“ Umferðarstofu hefur borist yfirlýsing frá framleiðendum Akta Graco í Svíþjóð þar sem fram kemur að þeir mæla ekki með að nota sænska pallinn fyrir Graco frá Bandaríkjunum því hann er ekki prófaður eftir sömu prófunarreglum og stóllinn sjálfur. Framleiðendur ábyrgjast ekki notkun á sænska pallinum nema fyrir Akta Graco. Umferðarstofa minnir á að barnabílstóll sem ekki er festur í bílinn á réttan hátt veitir falskt öryggi. Vilja lækkun gjalda á bíla  AÐALFUNDUR Bílgreinasambands- ins var haldinn um síðustu helgi. Á fundinum var Erna Gísladóttir endur- kjörin formaður sambandsins. Fund- urinn lagði áherslu á einföldun og lækkun gjalda á bíla fyrir almenning. „Nauðsynlegt er að almenningur fái lækkun í samræmi við aðra. Gjöld á bíla hér á landi eru hærri en almennt í Evrópu. Undanþágum frá vörugjöldum á ökutæki hefur fjölgað og neyslustýr- ing hins opinbera aukist og tekur ekki mið af umhverfissjónarmiðum. Nauð- synlegt er að taka þessi gjaldamál til endurskoðunar og lækkunar nú,“ segir í ályktuninni. Þar segir ennfremur að ef litið er á bílgreinina og afkomu fyr- irtækja í henni megi segja að þessar miklu álögur hins opinbera og sveiflur hafi haft þau áhrif að mjög mörg fyr- irtæki í bílgreininni hafi lent í örð- ugleikum. „Nauðsynlegt er að þessari starfsgrein sé skapað eðlilegt rekstr- arumhverfi til að þjóna bíleigendum sem best en fáar þjóðir eru eins háðar bílum og Íslendingar. Bíllinn er nauðsyn í okkar stóra og strjálbýla landi.“ Aðal- fundurinn endurtekur fyrri tillögur um að vörugjald á varahlutum verði lækk- að í áföngum og óeðlilegt annað en fella það strax niður á öryggisbúnaði. Aðalfundurinn fagnaði upptöku olíu- gjalds. „Þrátt fyrir fjölgun díselbíla er hlutfall þeirra af heildarbílaflotanum tiltölulega lágt hér á landi samanborið við önnur lönd í Evrópu. Áríðandi er að gjaldtaka ríkisins á dísel og bensíni sé sambærileg og feli ekki í sér neyslu- stýringu á milli þessara orkugjafa. Þá bendum við á að óeðlilegt er að bíla- salar greiði bifreiðagjald af bílum sem ekki eru í notkun og einungis til kynn- ingar og sölu hjá viðkomandi aðila.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.