Morgunblaðið - 22.04.2005, Qupperneq 9
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. APRÍL 2005 B 9
bílar Buy your next car directly from USA
and Canada and save lots of kroners
www.natcars.com
STÖÐUGT berast fregnir af nýj-
um bílgerðum frá Kína. Hafei
Saibao er einn þeirra en hann er
teiknaður af Pininfarina á Ítalíu.
Saibao þýðir á kínversku hlé-
barði. Bíllinn var fyrst sýndur á
bílasýningunni í Genf sem
frumgerð á sýningarsvæði Pin-
infarina. Þetta er lítill stall-
bakur, 4,40 metrar á lengd,
1,70 á breidd og 1,47 á hæð.
Undir vélarhlífinni eru fjögurra
strokka bensínvélar, 1,6 og 2,0
lítra, sem framleiddar eru með
leyfi frá Mitsubishi. Bíllinn er
sagður mjög vel búinn. Hann er
með ABS-hemlakerfi og EBD-
hemlunarátaksdreifingu. Rúður
eru rafstýrðar og hann er með
leiðsögukerfi og fyrirvara, (bún-
aður sem varar við þegar bíllinn
nálgast fyrirstöðu þegar hon-
um er lagt). Hægt er að fá hann
einnig með blátannarteng-
ingum sem aukabúnað.
Enn einn
nýr frá
Kína