Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 11.07.1955, Qupperneq 8

Mánudagsblaðið - 11.07.1955, Qupperneq 8
CR EINU1ANNAÐ / Furðuleg leiklýsing - Harðfiskur og kokkteill : / - Þjóðleikhúsið og „pantarnir" - Landsbank- inn ómálaður - Jeg er ef menneske te* .*. Gaman væri að vita hvaðan yfirstjórn útvarpsins bárust allar þessar áskoranir um að útvarpa óförunum við Dani í annað sinn — á dönsku? íslendingum ætti að vera nógu vel í minni endenmisframmistaða landa sinna, án þess að stjórnendum útvarpsins þætti hlýða að útvarpa leiknum á dönsku „samkvæmt f jölda áskor- ana“. Þó var eitt gott í sambandi við þessa útsendingu. Danir þeir, sem fram komu í útvarpinu, áttu ekki orð til að lýsa gestrisni „landans“. Nú var ekkert sérstakt haft við þessa Dani, en á hitt ber að líta, að þótt gest- risni sé góð og sjálfsögð, þá er það óhóf, sem móttöku- nefndir, með hið opinbera í fararbroddi, þjóðinni til skammar og athlægis. ★----------------- Talsvert hefur verið um það síðustu vikur, að blaða- mönnum hefur verið boðið í „eftirmiðdagsboð“, sem raunar þekkjast betm’ imdir nafninu „cocktailparty“ Tilefni hafa verið nóg, sýningar ýmissa þjóða í höf- uðborginni, þjóðhátíðadagur USA og allskyns aðrir tyllidagar. Sú ánægjulega nýlunda er nú tekin upp, að bjóðend- ur í slík veizluhöld, t. d. sendiherra Bandaríkjanna, eru farnir að reiða fram íslenzkan harðfisk með drykkjun- um, ásamt tilheyrandi snittum. Svo ánægjulega ný- breytni og þetta er, þótti oss dálítið skoplegt að sjá eina hefðarfrú bæjarins brosandi út að eyrum með Martiniglas í annri hendi og harðfiskrifrildi í hinni. En það var á sinn 20. aldar hátt, þjóðlegt. ★------------------- I»að er eins gott fyrir þá, sem sækja sýningar Þjóð- leikhússins, að hafa með sér úr eða aðra skartgripi. Ef gestir vilja leigja sér kíkja til þess að sjá betur, þá fást þeir gegn vægri leigu og „panti“. Vinsælast er að láta úr sín af hendi en aðrir gripir, t. d. perlufestar, armbönd, eyrnalokkar o. s. frv. eru líka gild vara. Þótt Rósinkranz sé ekki álitinn skrautf jöður í Þjóð- leikhúsinu, ættu yfirmenn hans að reyna að koma í veg fyrir, að þetta grey geri stofnunina að þ\ó, sem enskumælandi menn kalla „pawn-shop^. ★----------------- Óskandi væri, að stjóm Landsbanka Islands færi bráðlega að láta mála byggingima. Bankinn er sann- arlega til lítils sóma í miðbænum, eins og nú stendur á, en myndi verða laglegasta bygging ef reynt yrði að hýrga upp á litarháttinn á honum. Fleiri byggingar í Austurstræti þurfa líka slíkar aðgerðar við og þá helzt opinberar byggingar. ★-------------------- Árni Pálsson, prófessor, var eitt sinn á ferð í Sví- þjóð. Dag einn er hann gekk um götu þar, vatt Svíi sér að honum og spyr: „ErNi Svenskare?“ Áma gazt ekki að spurningunni, þótti hún óþörf, en svarar þó heldur dræmt: ,,Ne —e —e nei“. „Er Ni Svenskare?“ spyr þá sá sænski aftur. Þá var Áma öllum lokið, svo hann snýr sér að manninum og segir all-hryssingslega: „Nej, jeg er et menneske“. Skrýtlur Sjúklingurinn: „Segið mér læknir, haldið þér ekki að ég hefði gott af að skipta til, og fara þangað sem heitaraer“? Læknirinn: „Það er nú það sem ég er að reyna að forða yður frá“. Maður nokkur sótti um dyra- varðar stöðu i stóru hóteli í Stokkhólmi. „Ég sé“, sagði hóteleigandinn að þér hafið unnið á hóteli áður. Hvað gerðuð þér þegar gestir urðu hávaðasamir við vin?“ „Ég bar þá út“. „En þegar gesturinn varð svo ölvaður að hann varð ósjálf- bjarga"? „Ég tók hann og bar hann upp í dýrustu herbergi hótels- ins,. og lét hann sofa þar, þar til að hann kom til sjálfs sín“. Hann fékk stöðuna. Mánudags- þankar Framhald af 3. síðu. lesmál í kletta Almanna- gjár um, að þar hefði þetta félag verið stofnað fyrir 25 árum. Var birt mynd af þessari áletrun. Þetta er heldur en ekki varhuga- verður siður. Vafalaust eiga ýmis samtök eða ein- staklingar ýmislegs að minnast f rá Þingvöllum, og ef það yrði að hefð, að slík- ir færu að krassa nöfn og áletranir á hamraveggi Al- mannagjár gæti það orðið mikill ófögnuður og óprýði þegar stundir líða. Það á vitaskuld algeriega að banna, að nokkrir krassi nokkum skapaðan hlut á klettaveggi á Þingvöllum. Öllum er í fersku minni, þegar kommúnistar flekk- uðu staðinn með þvi að mála einhverja upphrópun á kletta í Almannagjá. Þingvallanefnd og vörður staðarins ættu að gefa út strangt bann við slíku. Að vísu má segja, að slík- ar klausur máist skjótt af veðrum, en ef nýjar og nýjar áletranir kæmu í þeirra stað mundi eyðing náttúrunnar ekld hafa und- an að afmá letrið. Hitinn að innan Ungur kennari og áhuga- maður skrifar athyglis- verða grein í Kirkjuritið nú fyrir skömmu um það, sem hann kaUar að „tendra neistann“. Á hann þar við að fá þurfi óbreytta safn- aðarmenn til að starfa meira og betur í þágu kirkj unnar en þeir gera almennt nú til dags. Greinin er þrungin af áhuga fyrir þri að glæða kirkjulífið í víð- tækri merkingu. Að lokum bendir þessi áhugamaður á tvær leiðir til að „tendra neistann“. Önnur er sú, að teknar verði upp skipulagð- ar húsritjanir presta. Hin er sú, að biskupinn skipi tvo áhugasama menn til að ferðast um landið og „skipuleggja aukið safnað- arlíf“. Það sýnist auðséð, að áhugamaðurinn hefur ekki skilið, hvað hér er á ferð í sambandi við deyfð safnaðanna. Sú deyfð lækn ast ekki með húsvitjunum prestanna eða skipulagn- ingu sendimanna biskups. Sá hiti, sem tendra skal neistann, eins og áhuga- maðurinn komst að orði, verður að koma að innan. Hér stoðar ekki nein í- kveikja utanfrá, því til slíks er cldmaturinn ekki nægilega góður. Ef saf nað- armenn eru óánægðir með starfsleysi í þágu kirkj- unnar verða þeir SJÁLFIR að byrja að starfa, hver og einn. Annars kviknar þar enghm neisti. MÁNUDAGSBLAÐIB 1 Frúrnar - Fúsi og Gestur Fnírnar, Fúsi og Gestur heitir nýr leikflokkur, sem um þessar mundir ferðast um landið. Er flokkurinn nú á Vest- f jörðum, en fer norður í land að þeirri ferð lokinni. Frúrnar* eru þær Nína Sveinsdóttir og Emelía Jónsdóttir, Fúsi — Sigfús Halldórsson og Gestur — Gestur Þorgrímsson. Sýn- ing þeirra tekur tæpa tvo tíma og eru allt ný atriði, auk þess f jögur ný lög eftir Sigfús. Þá tóku þau upp þá nýlundu. að hafa sérstaka bamasýningu sem væntanlega verður vel þegið. Á skránni er m. a. parodía um Kvennamál kölska, auglýsingaþáttur, leikþættir o. fl. Bvað á að gera í hvöld? SUNNUDAGUR Kvikmyndahús: Gamla bíó: Uppreisn í Bæheimi Vladimir Raz. Kl. 7 og 9. Walter Mitty kl. 5. Nýja bíó: Setjið markið hátt. Susan Hayward. Kl. 5, 7 og 9. Tjamarbíó: Rauða sokkabandið. Rosmary Clooney. Kl. 5, 7 og 9. Austurbæjarbíó: Skriðdrekamir koma. Steve Cochran. — Kl. 5, 7 og 9. Stjömubíó: Hetjan. John Derek. Kl. 5, 7 og 9. Hafnarbíó: Auga fyrír auga. Richard Conte. Kl. 5, 7 og 9. Trípolíbíó: Nútiminn. Charley Chaplin. Kl. 5, 7 og 9. Leikhús: Sjálfstæðishúsið: Óskabarn örlaganna. Láms Pálsson. — Kl. 8,30. (Birt án ábyrgðar) Danaheimsóknin Framhald af 1. síðu. hafa vei'ið að hafa „generalprufu" við þjóðverjana sem hér voru. Hvernig má það vera að það var ekki gert? Er það landsliðsnefnd sem ber ábyrgð á því? Almenn- ingur á heimtingu á að fá þetta upplýst og er fyrirspurn beint til nefndarinnar héi'með. Það hefur einnig kvisast út, að mikil óein- ing hafi verið meðal liðsins áð- ur en það fór út í leikinn. Upp- haflega hafi Albert verið valinn foringi þess, en því svo verið breytt daginn áður. Mál þessi eru ekkert einkamál nokkra knattspyrnuforkólfa. Allur al- menningur á hér hlut að máli og að vera í landsliðsnefnd og lands- liðsþjálfari eru ábyrgðarmiklar stöður. Ein aðalorsök hinnar stöðugu sóknar Dananna var hve íslenzku innherjarnir lágu framarlega, einkanlega vinstri innherjinn. Sliku á þjálfari að geta breytt meðan á leik stendur. Jafnvel kom til mála að færa vinstri inn- herja í miðframherjastöðuna. — Allt virðist hafa verið betra en haft var. Eftir leikinn hafa menn mjög haft horn í síðu Albei'ts. Það er hér sem á öðrum sviðum, stutt öfganna á milli, frá ást til haturs, oflofs til lasts. Að undán- teknum markmanninum, stóðu allir leikmeim sig illa. Fallið var mest hjá þeim sem áður gnæfðu hæst. Eftir leikinn var boð í Þjóð- lcikhúskjallaranum fyrir kepp- endur og nokkra gesti. í ræðum, sem þar voru haldnar, voru Dan- ir kurteisir mjög. Töldu réttilega að bæta þyrfti skilyrði til æfinga fyrir íslenzka æsku. Stofna fleiri félög og reisa ný íþróttasvæði. Þá myndi minnka hið stóra bil, sem er milli knattspyrnuland- anna. Tökum undir með þeim og fjölgum félögum í Reykjavík i 10 og sköpum þeim æfingaskil- yrði. Flýtum markvisst þeim degi er við sigrum Dani heima og heiman. , . B. B.

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.