Mánudagsblaðið - 07.10.1957, Side 4
*
mAnudaqsblaðið
Mánudagur 7. október 1957
Jónas Jónsson, írá Hriílu:
Piltur á seytjánda ári
,og kemur sú riígerð á prent í vet-
ur. Eg benti á hve margþætt þró-
un hefur gerst á þessutn stað. Þar
er Garðyrkjuskóli lapdsins og
Jangmesta gróðurhúsastarfsemi á
einum stað. Þar er hin stórmerki-
lega heilsuverndarstöð Jónasar
Kristjánssonar sem hann hefui'
komið á fót á þeim árum þegar
þann átti annað hvort að vera
dauður eöa geymdur í elliheimili.
Þar er baðstöð sveitarinnar, sem
sýnir undramátt leir og gufu-
baða. Þar er Sel. menntaskólans,
sem hefur í 20 ár tengt elzta bæj-
arskóla landsins við sveitalifið.
í Hveragerði er fyrirmyndar elli
heimili þar sem forstjóri Grund-
ar í Reykjavík hefur fótfestu við
að undirbúa við jarðhitann i Ójf-
usi alþjóðlega bað og heilsubót-
arstofnun.
Eg hef lagt til í áður nefndu
erindi að innst í landi Reykjahjá-
leigu verði reistar tvær mannúð-
arstofnanir fyrir ungt fólk sem
hefur í vöku farið framhjá fegurð
lífsins eins og Guttormur skáld
hefur að orði komizt.-Nú vill
hinn. nýi rektor menntaskólans
selja Selið í Ölfusi af því að það
sé of fjarri sjúlfum skólanum. í
þess stað vill hann reisa annað
sel í hæfilegri fjarlægð frá bæn-
um. Sennilegt er að þessi tillaga
rektors verði framkv. Þá eiga
vinir og verndarar barna og ung-
menna að sameinast um þá ósk
að ríkið kaupi menntaskólaselið
og breyti því í vandaða uppeldis-
stöð fyrir drengi og unga menn
sem þurfa endurbætta lífshætti,
ef þeir eiga ekki að sogast niður
í djúpið; Þetta heimili má ekki
vera afskekkt og þó ekki í þjóð-
braut, Þar þarf að vera sterkur
en mannúölegur agi. Þar á eng-
inn að vera ákveðinn tíma efitr
fyrirfram gerðri áætlun heldur
frá hegningunni er eitt dæmi af j eins og sjúklingur á berklaspítala
mörgum. Hér á landi er fjöldi eða taugahæíi, þar sem brottför
ungmenna, bæði piltar og stúlkur er byggð á bata. Piltarnir verða
Blöðin sögðu nýverið frá pilti
á 17. ári, sem var orðinn marg-
sekur um þjófnað. Hvað eftir ann
að flúði hann úr fangelsi, seinast
tvívegis úr Steininum við Skóla-
vörðustíg. Náði í nokkur þusund
krónur og tólí sér far með „rút-
unni‘c heim í átthagana. Raunar
átti hann hvergi friðland en leit-
aði þó í ættargarðinn og að bróð-
up sínum á sama aldri. Það var
engir.n hugsun bak við þennan
flótta, heldur flökti pilturinn
stefnulaus frá einni ófæru í aðra.
Mannt'élagið hefur lögreglu,
dómaia pg' fangaverði, sem gæta
á^rýísu slælega hjarða sinna. Lög
leprjðiy menn ákveða þessum pilti
nxá.naðár, misseris eða ársdvöl í
Steininum ' við Skólavörðustíg
eða á Litlahrauni. Þar verður
hann um stund með sér verri eða
betri mönnum. A því er engin
rannsókn. Að aflokinni hegningu
á liann að líkindum enga leið
opna nema að brjóta aftur og fá
dóm og húsaskjól um stund.
Þessi piltur er ekki einn síns_
liðs. Það eru margir tugir ungra
V - .
manna, sem brjóta dag eftir dag
og ár eítir ár en þjóðfélagið get-
ur hvorki bætt þá né hegnt
þeim. Hvört tveggja er þjóðar-
'Smán.
Fyrir aldarfjórðuhgi safnaði ég
saman réttmætum óskum mann-
félagsins um að vanræltt börn og
ungmenni þyrftu að fá hjálp og
handleiðslu út úr miklum vanda.
Mápnfélagið tók vinsamlega
þessu erindi. Það var sett löggjöf
um barnavernd og margar slíkar
nefndir hafa unnið mikið og gott
verlt að barnavernd í landinu.
Það er ástæða til að fagna fengn-
um sigri. Mikið hefur verið fram-
kvæmt til gagns í þessu efni en
mikið er líka ógert. Pilturinn sem
leikur sér að lögbrotum og flótta ^
Vetraráœtiun Loftleiða h.f.
serh þarf að taka með fastri vel
viljaðri hönd út úr hringiðu hins
dajglega lífs i starfsheimili, sem
eru í einu skóli, sjúkrahús og
fapgelsi. Bezta fyrirmyndin sem
kunn er hér á landi er Olafsdals-
heimilíð í tíð Torfa og konu hans.
Þar voru að vísu aðeins úrvals-
piltái’ og þar var mikið frelsi en
sahrt má úr sögu Ólafsdals fá
hoilar bendingar um, hvernig
slílc heimili eiga að vera. Torfi
hafði úrvals menn um atorku og
mánndom, en hér eru týndir syn-
ir óg dætur sem þarf að gera að
rnyndarmanneskjum og hollum
þjððfélágsþegnum. Eg tók þetta
efrfj tií meðferðar í útvarpserindi
tín£ L‘aihtíðargengi Hveragerðis
að vera í deildum eins og með
mörgum bekkjum og hækki eftir
framför og hegðun. Drengir með
ólæknandi glæpahneigð eiga að
fara í einangrunarfangelsi. Kaup
ætti alls ekki að greiða nema til
fata og hréinlætisútgjalda. Strok
gjarnir og óhlýðnir piltar eiga
að búa í klefa sínum þar til þeir
sjá að sér. Vistmennirnir ættu
að vinna að margháttaðri vinnu,
við skógrækt, húsabyggingar,
smíði og framleiðslustörf í iðn-
aði efti'r fyrirmyndum frá Reykja
lundi. Jafnhliða starfinu kemur
bóklestur þátttaka í bréfaskóla-
vinnu, tafl, spil söngur og íþróttir
heima fyrir. ViStmenn þurfa að
vitá að þeir geta öðlást varánlegt
Ný vetraráætlun Loftleiða
hefst 15. október og gildir hún
til 17. maí 1958.
Á þessu tímabiii verða farnar 8
ferðir í viku um Reykjavík milli
Bandaríkjanna, meginlands Ev-
rópu og Stóra-Bretlands. Héðan
verða vikulegar ferðir til Lun-
dúna, Gautaborgar, Glasgow og
Stafangurs, tvær í viku til Ham-;
borgar og Oslóar, þrjár ferðir í
viku til Kaupmannahafnar.
Héðan munu flugvélarnar fara
austur á bóginn nokkru fyrr en
í sumar eða kl. hálf níu að
*
morgni, en brottfarartíminn til
Bandaríkjanna verður svipaður
og í sumar, klukkan átta að
kvöldi.
Á tímabilinu frá 1. nóvember
til 1. apríl lækka fargjöld Loft-
leiða mjög á flugleiðinni milli ís-
lands og Bandaríkjanna, en Loft
leiðir munu vera eina flugfélagið
þeirra, er heldur uppi föstum á-
ætlunarferðum yfir Norður-At-
lantshafið, sem býður þessi sér-
stöku fargjöld. Nemur lækkun
þessi rúmum 700 krónum fyrir
hvern þann farseðil, sem keypt-
ur er fyrir flugfar fram og til
baka ihilH New York og Reykja-
víkur og kostar hann því ekki
nema rúmar 4 þúsund krónur á
þessu tímabili.
Þá munu Loítleiðir einnig
halda áfram að bjóða hin lágu
fjölskyldu fargjöld, er í gildi
verða sömu yetrarmánuði og hin
lágu almennu fargjöld.
Helztu reglur urn fjölskyldu-
fargjöld eru þær, að fyrirsvars-
maður fjölskyldu greiðir fullt
gjald fyrir farmiða sinn, en frá
andvirði hvers farmiða, sem
hann kaupir að auki fyrir börn
eða maka dregst jafnvirði 160
Bandaríkjadala, sé farið fram og
aftur miili New York og stöðva
Loftleiða i Evrópu.
í fyrravetur varð reyndin sú,
að margar fjölskyldur völdu
tímabil þessara lágu fargjalda til
ferðalaga milli Bandarikjanna og
Evrópu, en í því sambandi má t.
d. geta þess að þau gjöld, sem
Loftleiðir gera hjónum með tvö
uppkomin börn að greiða fyrir
farii5 fram,...pg .aftur milli Íslándí?
og Ameríku eru ekki nema rúm,-
ar 10 þúsund krónur.
Þeim fjölgar nú óðum, sem
kjósa helzt að dvelja heima á ís-
landi að sumarlagi, en vilja leita
saumaraukans, þar sem hann er
að finna í lilýju og þægilegu
loftslagi fyrri eða síðari hluta
vetrar, en fyrir því má ætla, að
margir muni nú viíja nota tæki-
færin til þess að njótá hinna lágu
vetrarfargjalda Loftleiða.
Mikið annríki hefur verið hjá
Loftleiðum í sumar og vai: far-
þegatalan í sl. ágúst orðin rúm,-
lega þrem þúsundum hærri en. á
sama tíma í fyrra, en það sara-
svarar rúmlega 20% aukningu.
Þessi aukning, ásamt hinum
mörgu bréfum, er stjórn félagsr
ins berst jafnan frá farþegúm,
er rórna fyrirgreiðslu alla, sann-
ar að Loftleiðir eiga nú mjög vax
andi vinsældum að fagna í hinní
hörðu samkeppni á flugleiðunúm
yfir Norður-Atlantshafið.
(Frá Loftleiðum).
frelsi, Dagsbrúnarkaup, heimilis-
forstöðu og þátttöku í lífri
frjálsra manna, ef þeir lækna
bresti sína. Meðan þeir geta það
ekki eiga þeir vissa skylduvist í
betrunarheimili, stöðuga vinnu,
langt neðan við taxta og dvöl í
sellu ef óhreinn andi tekur sér
bólfestu í sál þeirra, Karlmenn
ættu að mynda fyrstu nýlenduna
en konur hina næstu. Þær eru
færri utan við vegkantínn. Æsku-
heimili
býli
eklti'
frjálsra rnanna'.
Jónas Jóiisson írá Hriflu,
Greiðslusloppai?
stuttir 09 síðk
Undirfatnaðus
mikið úrval
RKAÐURINN
Eaf na,rstrœti 5 :,
ÖRYGGI
ÞÆGINDI
Ritstjóri og ábyrgðarmaður; Agnar Bogason.
Blaðið kemur út á mánudögum. — Verð 2 kr. í lausasölu.
Afgreiðsla: Tjarnarg. 39 — Sími ritstj. 13496.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.