Morgunblaðið - 24.05.2005, Side 1

Morgunblaðið - 24.05.2005, Side 1
Goðsögn í rokkheimum Rætt við Dave Mustaine sem fer fyrir Megadeth | 38 STOFNAÐ 1913 138. TBL. 93. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is KULDATÍÐIN að undanförnu er farin að hafa þau áhrif að aspir víða norðanlands eru farnar að gulna, líkt og haust væri. Að sögn Jóns Kristófers Arnarsonar, framkvæmda- stjóra Skógræktarfélags Eyfirðinga, eru þau tré að gulna sem laufguðust snemma. Ekki sé þó hætta á skemmdum af þessum völdum en vegna kuldans sé hins vegar hætta á sveppasjúkdómum í lerkitrjám síðar í sumar. Það sér ekki fyrir raunverulegan enda á kuldakastinu fyrr en eftir helgi, þótt hitinn yfir hádaginn kunni að skríða upp fyrir 10 stigin miðvikudag til föstudags, þá aðallega vegna hins hæga vinds sem spáð er næstu daga. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að á laugardag muni kólna aftur og ekki sé því bú- ist við hlýindum með vestanátt fyrr en á mánudag sam- kvæmt spám. „Á mánudag förum við inn í vestlæga vind- átt sem dregur að meiri hlýindi sunnan úr hafi,“ segir hann. „Það eru því engin hlýindi alveg á næstunni þótt daghiti verði mun skaplegri í vikunni en verið hefur.“ Vegagerðarmenn hafa furðumikið að gera miðað við árstíma því allir helstu fjallvegir austanlands eru í hættu á að lokast nema þeir séu ruddir. Og undanfarna daga hefur þurft að beita moksturstækjum óspart á vegum eins og Hellisheiði eystri, Fjarðarheiði, Mjóafjarð- arheiði, Breiðdalsheiði, Öxi, Möðrudalsöræfum, Fagra- dal og Oddsskarði. Sveinn Sveinsson, deildarstjóri hjá Vegagerðinni á Reyðarfirði, segir ástandið vissulega sér- stakt og hafa valdið óþægindum þrátt fyrir að ekki hafi orðið nein alvarleg óhöpp. | Miðopna Morgunblaðið/Kristján Aspirnar á Akureyri laufguðust fremur snemma þetta árið sökum þess hve snemma vorið virtist vera á ferð. Standa þær þétt saman syðst á íþróttavelli Akureyrar. Núna er laufið hins vegar orðið gulleitt og tengja margir þessa breytingu við frostið sem herjað hefur á trén á nóttunni að undanförnu. Aspir að gulna líkt og að hausti Eftir Björn Jóhann Björnsson og Örlyg Stein Sigurjónsson VATNSSALA á veitusvæði Orku- veitu Reykjavíkur, sem er orðið á stórum hluta suðvesturlands, var í kringum 20. maí síðastliðinn þegar orðin meiri en allan maímánuð á síðasta ári, að sögn Guðmundar Þóroddssonar, forstjóra Orkuveit- unnar, sem telur kuldakastið greinilega hafa þau áhrif að fólk kyndi enn híbýli sín meira en venju- legt getur talist á þessum árstíma. Vatnsnotkun meiri en í fyrra Tókýo. AFP, AP. | Nýtt ágreiningsefni er komið upp í samskiptum Japana og Kínverja sem eru nú sögð stirðari en nokkru sinni síðan ríkin tvö tóku upp stjórn- málasamband 1972. Wu Yi, sem er einn af vara- forsætisráðherr- um Kína, aflýsti í gær fyrirvara- laust fundi sem fyrirhugað hafði verið að hún ætti með Junichiro Koizumi, forsætisráð- herra Japans, í heimsókn kínverska ráðherrans til Japans. Sneri Wu þegar heim og telja Japanir að um sé að ræða vísvitandi móðgun. Fyrst var sagt í Peking að Wu hefði þurft að stytta heimsóknina vegna „brýnna verkefna“ heima fyr- ir. Síðar gaf þó talsmaður utanrík- isráðuneytis Kína í skyn að ástæðan væri árlegar heimsóknir Koizumis til helgistaðar þar sem minnst er fall- inna Japana í heimsstyrjöldinni síð- ari. Meðal þeirra sem grafnir eru á staðnum eru 14 dæmdir stríðsglæpa- menn sem stóðu fyrir hryðjuverkum í Kína. Koizumi segist aðeins vera að heiðra minningu hinna föllnu sem japanskur borgari en ekki sem ráð- herra. Gesturinn fór heim í fússi Wu Yi Spenna í samskiptum Kínverja og Japana Albany. AP. | Bandarískir emb- ættismenn sögðust í gær ætla að reyna að loka lagalegri smugu í sjúkratryggingakerf- inu sem gerir nauðgurum og barnaníðingum kleift að fá stinningarlyfið Viagra á kostn- að skattgreiðenda. Áður hafði fjármálastjóri New York-ríkis greint frá því að venjubundin endurskoðun hefði leitt í ljós að 198 kynferð- isafbrotamenn í ríkinu hefðu fengið Viagra á kostnað hins opinbera eftir að þeir voru sakfelldir. Þeir eru allir taldir líklegir til að endurtaka glæp- ina. Bandaríska heilbrigðisráðu- neytið sagði að hugsanlega þyrfti að breyta lögum um sjúkratryggingakerfið. „Það að gefa kynferðisafbrota- mönnum Viagra á kostnað hins opinbera er eins og að gefa dæmdum morðingjum byssur eftir að þeir losna úr fangelsi,“ sagði Charles Schumer, fulltrúi New York í öld- ungadeild Bandaríkjaþings. Nauðgarar fá ókeypis Viagra Berlín. AFP. | Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands, þykir tefla djarft með því að flýta þingkosning- um þar sem skoðanakannanir benda til þess að flokkur hans, Jafnaðar- mannaflokkurinn, bíði mikinn ósigur. Schröder tilkynnti í gær að hann hygðist fara fram á traustsyfirlýsingu þingsins 1. júlí. Talið er að þingmenn Jafnaðarmannaflokksins og Græn- ingja greiði atkvæði gegn yfirlýsing- unni til að knýja fram þingrof. Verði hún felld þarf að halda kosningar fyr- ir 18. september. Bild, söluhæsta dagblað Þýska- lands, fagnaði þessari ákvörðun Schröders en sagði hann hafa tekið mikla áhættu. „Með því að taka í hornin á bola er hugsanlegt að kansl- arinn hlífi landinu við átján mánaða pólitískri lömun.“ Fréttavefur tímaritsins Der Spieg- el sagði hins vegar að stjórn Schröd- ers hygðist „fyrirfara sér af ótta við dauðann“. Nýlegar skoðanakannanir benda til þess að Kristilegir demó- kratar myndu sigra auðveldlega færu þingkosningar fram nú. Schröder ákveður að knýja fram þingrof og kosningar fyrir 18. september AP Gerhard Schröder, kanslari Þýskalands (fyrir miðju), umkringdur líf- vörðum eftir fund með Horst Köhler, forseta landsins, í Berlín í gærkvöldi. Teflir djarft  Kosið um | 14 Hún upplýsir Svía um íslenska list og hönnun | Daglegt líf Christina Nilroth Erla Steina gerir það gott  Lands- bankadeildin  Arsenal-strákur til Keflavíkur  Spurs sýndi klærnar Íþróttir í dag

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.