Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 35 DAGBÓK Lifun hefur fest sig í sessi sem nýstárlegt tímarit Blaðið er unnið á faglegan hátt þar sem samspil fallegra mynda og áhugaverðra uppskrifta opnar auglýsendum nýja leið að mikilvægum markhópi. Lifun verður dreift með laugardagsblaðinu í 60.000eintökum níu sinnum á árinu og mun þriðja tölublaðið koma út 28. maí næstkomandi. Panta þarf auglýsingar fyrir kl. 16 miðvikudaginn 25. maí Umsjón: Halla Bára Gestsdóttir og Gunnar Sverrisson. Auglýsingar: Sif Þorsteinsdóttir, sími 569 1254. – auglýsingar 569 1111 JÓHANN Tryggvason heldur þessa dagana sýningu á olíumálverkum í Sparisjóði Hafnarfjarðar, Garða- torgi 1 í Garðabæ. Sýningin er opin á afgreiðslutíma Sparisjóðsins kl. 9:15–16:00 virka daga. Viðfangs- efni hennar er Elliðaárdalur og fleira. Þetta er önnur einkasýning Jóhanns ásamt að hafa sýnt verk á fimm samsýningum. Viðfangsefni hans er að öllu jöfnu landslags- myndir og portrett. Jóhann sýnir í Hafnarfirði Félagsstarf Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 10– 11 samverustund, kl. 14–16 fé- lagsvist, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi | Brids í Gjábakka í dag kl. 13.15. Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák kl. 13. Miðvikudagur: Göngu- Hrólfar ganga frá Ásgarði kl. 10. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Karlaleikfimi kl. 13, opið hús í safn- aðarheimili á vegum kirkjunnar kl. 13, kóræfing FEBG á sama stað kl. 17. Lokað í Garðabergi. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9– 16.30 vinnustofur opnar, kl. 10.30 létt ganga. Frá hádegi spilasalur op- inn, kl. 14.30 leggur Gerðubergskór af stað í heimsókn á Grensásdeild. Félagsþjónustan Hraunbæ 105 | Kl. 9 postulínsmálun, glerskurður og hárgreiðsla, kl. 10 boccia, kl. 11 leikfimi, kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 Bónus, kl. 13 myndlist, kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, leikfimi í Bjarkarhúsinu kl 13.30, bridge kl. 13, gler kl. 13, pútt á Hrafnistuvellinum kl. 14–16.16. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnu- stofa kl. 9–13 kortagerð o.fl. hjá Sig- rúnu, boccia kl. 9.30–10.30, helgi- stund kl. 13.30 í umsjón séra Ólafs Jóhannssonar. Böðun virka daga fyrir hádegi. Fótaaðgerðir. Hár- greiðsla, sími 517 3005. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öllum opið. Vorsýning 13–16 út vik- una. Leikfimi kl. 10–11. Bónusferð 12.40. Bókabíll 14.15. Almennur félagsfundur um starfið í vetur og í framtíðinni föstudag 27. maí kl. 14. Hárgreiðslustofa s. 568-3139. Fóta- aðgerðarstofa 897-9801. Upplýs- ingar í síma 568-3132. Norðurbrún 1 | Kl. 9–12 myndlist, kl. 9 smíði, kl. 9 opin vinnustofa, kl. 10 boccia, kl. 13–16.30 postulínsmálun, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 14 leikfimi. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höf- uðborgarsvæðinu | félagsheimilið, Hátún 12 bingó í kvöld kl. 19.30. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.15–16 postulíns- málun, kl. 10.15–11.45 enska, kl. 11.45–12.45 hádegisverður, kl. 13–16 bútasaumur, kl. 13–16 frjáls spil, kl. 13.–14.30 leshringur, kl. 14.30–15.45 kaffiveitingar. Kirkjustarf Áskirkja | Opið hús milli 10–14, kaffi og spjall. Bænastund kl. 12. Boðið upp á léttan hádegisverð. Garðasókn | Opið hús í sumar í Kirkjuhvoli á þriðjudögum kl. 13 til 16. Spilaður lomber, vist og bridge. Rabbað saman og notið samver- unnar. Kaffi á könnunni. Farið verð- ur í vettvangsferðir mánaðarlega, auglýstar hverju sinni. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýs.s. 895 0169. Allir velkomnir. Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta er í Hjallakirkju á þriðjudög- um kl. 9.15–11 í umsjá sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar héraðsprests. KFUM og KFUK | Samkoma kl. 20. Ræðumaður er Leonard Sweet frá Bandaríkjunum. Mikil lofgjörð. Allir eru velkomnir. Krossinn | Samkoma í Hlíðarsmára 5-7 í kvöld kl. 20. Gunnar Þor- steinsson talar. Allir velkomnir. Langholtskirkja | Vorferð Kven- félagsins verður farin 26. maí kl. 15. Farið verður um Suðurnes með leið- sögumanni og snæddur kvöldverður í Duus-húsi. Ferð og matur kostar kr. 3.300 fyrir félagskonur en kr. 4.300 fyrir gesti. Allir eru velkomn- ir. Skráning er hjá Brynju (899 7708) og Margréti L (698 5485) fyrir 23. maí. Morgunblaðið/Árni Sæberg Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Hlutavelta | Þessar stúlkur, Karitas, Bryndís Inga, Auður og Guðný, héldu tombólu og söfnuðu kr. 11.931 til styrktar Rauða krossi Íslands. Morgunblaðið/Árni Torfason STÓRSVEIT Reykja- víkur heldur tónleika annað kvöld með bandaríska tromp- etleikaranum, tón- skáldinu og hljómsveit- arstjóranum Greg Hopkins. Tónleikarnir verða að þessu sinni í Ráðhúsi Reykjavíkur og hefjast kl. 20. Flutt verða ný verk eftir Hopkins auk eldra efnis úr smiðju hans. Greg Hopkins hefur verið reglulegur gesta- stjórnandi og einleikari með Stórsveit Reykjavíkur á undanförnum misserum. Hann er búsettur í Boston og leiðir þar eigin stórsveit og ferðast víða um heim sem kennari, útsetjari, stjórnandi og trompetleikari. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Greg Hopkins í Ráðhúsinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.