Morgunblaðið - 24.05.2005, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 24. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
þjónustu,“ segir Grímur og bendir
á að Icelandair noti Bláa lónið
sem meginþema í vorherferð sinni
í Bretlandi um þessar mundir.
„Við höfum þegar haft samband
„ÓÞVERRASTAÐUR: Bláa lónið
og hinir heitustu áfangastaðirnir
sem okkur geðjast alls ekki að,“
er yfirskrift greinar sem birtist á
forsíðu ferðablaðs The Sunday
Times nú um helgina þar sem
fjallað er um sjö af vinsælustu
áfangastöðum heims sem, að mati
greinarhöfunda, hreinlega standa
ekki undir væntingum.
„Mér eru það mikil vonbrigði að
grein af þessu tagi skuli rata inn á
forsíðu ferðablaðs jafnvirts dag-
blaðs og The Sunday Times er,“
sagði Grímur Sæmundsen, fram-
kvæmdastjóri Bláa lónsins, í sam-
tali við Morgunblaðið þegar blaða-
kona leitaði viðbragða hjá honum.
„Ég verð að segja að mér finnst
greinarhöfundur ansi dómharður
og ósanngjarn svo ekki sé dýpra í
árina tekið,“ segir Grímur og tek-
ur fram að í raun sé ekki hægt að
kalla skrif greinarhöfundar annað
en atvinnuróg sem eigi ekkert
skylt við sanngjarna gagnrýni.
Í umfjöllun greinarhöfundar um
Bláa lónið segir m.a.: „Goðsögnin:
Þið hafið séð myndir úr Bláa lón-
inu á óteljandi veggspjöldum –
bert bakið á ljóshærðri fegurð-
ardís sem liggur í hinu tælandi,
mjólkurbláa, steinefnaríka vatni. Í
því felast fyrirheit um samhljóm
hugar og líkama, auk þess sem
lónið lendir ávallt á lista yfir bestu
heilsulindir heims. Raunveruleik-
inn: Þetta er hryllingur frá upp-
hafi til enda. Lónið er ekki einu
sinni náttúruleg eldfjallalind, held-
ur fyllt upp af útstreymi úr nær-
liggjandi jarðvarmaorkuveitu.“ Í
framhaldinu fjallar blaðamaður
um það hversu hryllilega illa
hannað sér hafi fundist húsnæði
Bláa lónsins vera og lýsir því
hversu erfiðlega hafi gengið að
finna búningsklefann, sem hafi svo
reynst allt of lítill og illa þefjandi.
Því næst dregur höfundur heil-
næmt gildi lónsins í efa, heldur
því fram að vatnið hafi óholl áhrif
á hár og segir það að ganga um í
lóninu einna helst hafa líkst því að
labba á hrárri lifur. Kvartar
greinarhöfundur undan miklum
fjölda þýskra ferðamanna í lóninu
og gefur beinlínis í skyn að gestir
lónsins mígi í vatnið. Tekur höf-
undur að lokum fram að hann hafi
einvörðungu enst í lóninu í fimm
mínútur.
Munum bregðast hart við
Spurður hvort yfirmenn Bláa
lónsins muni bregðast við grein-
inni með einhverjum hætti svarar
Grímur því játandi. „Auðvitað
munum við bregðast mjög hart við
þessu, enda um gríðarlegt hags-
munamál að ræða, ekki bara fyrir
okkur heldur alla íslenska ferða-
við sendiherra Íslands í London
sem er kominn okkur til halds og
trausts í málinu, auk þess sem við
erum í samráði við samstarfsaðila
okkar á þessu markaðssvæði. Við
hljótum að bregðast eins sterkt
við þessu eins og okkur er unnt,
en munum að sjálfsögðu gera það
fagmannlega og án alls æsings.
En við hljótum að krefjast þess
að þær missagnir og rangfærslur
sem fram koma í lýsingu grein-
arhöfundar verði leiðréttar og þá
með jafnáberandi hætti og rang-
færslurnar sjálfar,“ segir Grímur
og tekur fram að menn líti málið
enn alvarlegri augum í ljósi þess
að forsíða ferðablaðs The Sunday
Times hafi skartað mynd úr Bláa
lóninu og að neikvæð inngangs-
orð fréttarinnar, sem sjá má hér
að ofan, skuli hafa verið prentuð
ofan í myndina sjálfa.
„Það eitt að alþjóðlegir fjöl-
miðlar setji íslenskan ferða-
mannastað á stall með sumum
þekktustu ferðamannastöðum í
heiminum er út af fyrir sig gríð-
arlegur árangur,“ sagði Guðjón
Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair, í samtali við Morg-
unblaðið. „Sá árangur er til kom-
inn vegna þess að við höfum ver-
ið afskaplega dugleg við að koma
Bláa lóninu á framfæri við al-
þjóðlega fjölmiðla sem gegn-
umsneitt eru óskaplega hrifnir af
þessum stað. Það er hins vegar
fullkomlega eðlilegt að það finn-
ist ekki öllum jafnmikið í staðinn
eða Ísland varið.“
Hinir áfangastaðirnir sex sem
fá slæma útreið greinarhöfunda
ferðablaðs The Sunday Times eru
Mayasvæðið Chichen Itza í
Mexíkó, gönguferð á Hafn-
arbrúnni í Sydney, Skjaldbaka-
eyjan á Fidji, hvalaskoðun í Suð-
ur-Afríku, La Mamounina hótelið
í Marokkó og Cannes í Frakk-
landi.
Bláa lónið fær hraklega
útreið hjá Sunday Times
Ljósmynd/Garðar P Vignisson
Meðal þess sem greinarhöfundur The Sunday Times heldur fram í gagn-
rýni á Bláa lónið er að vatnið hafi slæm áhrif á hárið. Dregur hann heil-
næmi lónsins í efa og gefur m.a. í skyn að gestir lónsins mígi í vatnið.
„Atvinnurógur
sem á ekkert
skylt við
gagnrýni“
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Í SUMAR verður fjórði áfangi end-
urbóta á Alþingishúsinu fram-
kvæmdur. Meðal þess sem verður
gert er að setja lyftu milli annarrar
og þriðju hæðar og gerðar tilheyr-
andi ráðstafanir í tengslum við þá
framkvæmd. Með lyftunni næst
langþráð takmark hreyfihamlaðra
um óhindraðan aðgang að þingpöll-
um.
Lagt verður gólfefni á fyrstu hæð
þar sem skipt var um undirlag síð-
astliðið sumar. Að öðru leyti verður
mest unnið á þriðju og fjórðu hæð
þinghússins. Þar verður gert við
húsið eftir þörfum.
Þá var ákveðið að flytja aðstöðu
fréttamanna í „nýjan Bolabás“ sem
er bæði rými úr gamla „Bolabás“
(starfsaðstöðu fréttamanna) og
áheyrendapöllum efri deildar, svo
og aðstöðu þar sem áður voru sal-
erni pallgesta. Aðstaða fréttamanna
hefur verið í kjallara Skála síðast-
liðið ár en sú staðsetning var talin
óheppileg. Hins vegar var aðstaða
ljósvakamiðla á fjórðu hæð í risi Al-
þingishúss á undanþágu frá eld-
varnareftirliti.
Að loknum framkvæmdum sum-
arsins er einungis eftir að ljúka
endurgerð hita- og loftræstikerfis
hússins, auk utanhússviðgerðar
norðan og vestan megin og end-
urbóta á þaki.
Endurbæturnar, sem hófust
2003, bæði utan- og innanhúss, eru
fyrstu heildstæðu endurbætur á Al-
þingishúsinu frá því húsið var
byggt árið 1881.
Fjórði áfangi endurbóta á Alþingishúsinu í sumar
Hreyfihamlaðir komast
óhindrað á þingpallana
Morgunblaðið/Jim Smart
Unnið var að því í gær að bera tæki út úr þingsalnum.
LÖGREGLUSTJÓRINN í
Reykjavík hafði ekki rétt til að
krefja tekjulága og eignalausa konu
um að hún greiddi lögmannskostn-
að vegna máls sem höfðað var gegn
henni. Þetta kom fram í úrskurði
sem kveðinn var upp í Héraðsdómi
Reykjavíkur í gær.
Konan var dæmd fyrir að aka
undir áhrifum deyfandi lyfja og var
henni gert að greiða 50.000 krónur í
málsvarnarlaun að viðbættum virð-
isaukaskatti og rúmlega 200.000
krónur í sakarkostnað sem fólst í
rannsóknum á sýnum og vegna
læknisvottorða. Konan er eignalaus
og var gerð aðför hjá henni til að fá
málsvarnalaun og sakarkostnað
greiddan en fjárnámið var árang-
urslaust.
Konan krafðist þess að aðförin
yrði ógilt, m.a. með vísan til mann-
réttindasáttmála Evrópu þar sem
kveðið er á um að hver sá sem bor-
inn er sökum um refsiverða hátt-
semi, skuli fá að halda uppi vörnum
sjálfur eða með aðstoð verjanda af
eigin vali. Hafi hann ekki nægjan-
legt fé til að greiða fyrir lögfræðiað-
stoð skuli hann fá hana ókeypis.
Í úrskurðinum segir að í sáttmál-
anum sé ekki tekin afstaða til þess
hvort efnaleysi geti leyst menn und-
an því að greiða útlagðan kostnað
vegna rannsóknar og í öðrum lögum
væri heldur ekki heimild til þess. Á
hinn bóginn væri ljóst að konan er
eignalaus og því hefði henni borið að
fá ókeypis lögfræðiaðstoð. Lögregl-
unni hefði því ekki haft heimild til að
krefja hana um greiðslu á lögmann-
skostnaðinum. Fjárnámsgerðin var
því lækkuð sem því nemur.
Arngrímur Ísberg kvað upp úr-
skurðinn. Ragnar Aðalsteinsson
hrl. flutti málið f.h. konunnar en
Sigurður Gísli Gíslason hdl. var til
varnar fyrir lögregluna.
Átti að fá ókeypis lögfræðiaðstoð