Mánudagsblaðið - 26.09.1960, Blaðsíða 8
OR EINU I ANNAB
Skáld fil Ameríku — Ausfursfræti 2 akreinar —
Kvarfað um úfvarpsþáff — Vildi farþegalisfann —
Barnahljómsveif í Iðnó — Kaffi í Hafnarfirði —
íþróffaforkólfar laumasf
Agnar Þóröarson, leikritskáld, er nú á förum til
] Bandaríkjanna á næstunni. Ætlun Agnars er sú, að
nema við School of Drama-deild Yale-háskólans nú
í haust, en ferðast um eitthvað um miðjan veturínt
m. a. til vesturstrandarinnar og dveljast í Kaliforníu.
Það yrði þarfaverk ef umferðarnefnd léti fær?
burt alla stöðumæla í Austurstræti og tæki þar upy
tveggja akreina-akstur. Austurstræti er stutt gata
en fjölfarin og bílastæði við næstu götur, stöðumæl<
ar um allt nágrennið. Umferðin í Austurstræti el
komin í öngþveiti, því þótt sjálfsagt og eðlilegt se,
að umferðarþrengsli séu í hjarta borgarinnar er
nauðsyn að draga úr því eftir mætti. Aðeins leig1;-
bifreiðum yrði heimilt að stoppa augnablik meðar
farþegar færu úr, og vöruflutningar í búðir og fyrir
tæki aðeins eftir miðnætti til 7 að morgni.
Kvartað er um, að þáttur Gunnars Eyjólfsson-
ar, Klippt og skorið, sé mjög „skorinn við nögl“,
hvað efni og flutning snertir. Það er vandasamt að
halda svona þætti gangandi svo áhugi hlustenda
haldist og ómögulegt ef kastað er höndum til þess.
Frægustu skemmtikraftar heimsins, bæði í útvarpi
og sjónvarpi vinna samskonar þætti með starfs-
liði alla vikuna, en „Islendingurinn getur allt“ a.
m. k. að sögn Færeyinga, en erfiðlega ætlar þó Gunn-
ari að takast að sanna það.
j, Gamansögur eru þegar á lofti um framámenn
Kongo-„lýðveldisins“ og hið broslega valdabrölt
} þeirra. Innbyrðis deilur og kynþáttahatur milli ein-
stakra blökkumannaþjóðflokka myndu gera Adolf
heitinn Hitler að einskonar Lincoln, og hinar margvís-
legu yfirlýsingar forsprakkanna vekja vart annað en
bros. Nýjasta sagan er um það að Lúmúmba hafi
verið á ferð í flugvél. Bráðlega gerðist hann soltinn
r og bað um matseðilinn. Ekki varð ícappinn sérlega
hrifinn af matseðlinum og sneri sér þá að flugþern-
unni og bað um farþegalistann.
Það kárnaði gamanið í Iðnó kvöld eitt þegar
kynna átti ,,junior“ hljómsveit þar. Þessar unglinga-
hljómsveitir og kynning þeirra eru orðin alltíður við-
burður í næturlífi bæjarins. Þegar börnin komu á
| sviðið ásamt hljóðfærunum, birtist unglingaeftirlitið
í dyrunum og sendi blessuð börnin beint heim til
mömmu og pabba. Þetta var fallega gert. Næst ætti
nefndin að mæta í Austurstræti og ganga við í leið-
inni á ýmsum öðrum skemmtistöðu bæjarins og
hreinsa til. •—
j •----------------------------
Vegfarandi skrifar: „Það er leitt fyrir menn eins
, og mig, sem oft eiga erindi til Hafnarfjarðar, að
j ekki skuli vera þar sæmilegur kaffi- og matstaður,
nema „sjoppumar" sem oft eru fullar af ungldng-
um. Þetta er ákaflega bagalegt fyrir okkur, ekki að
við gerum miklar kröfur, heldur viljum aðeins góðan
kaffisopa og sæmilegan mat. Hafnarfjarðarkaupstað-
ur nú orðinn svo stór, að vegur ætti að vera til að
reka smáan en hreinlegan matsölustað.“
j •----------------------------
Einn af forustumönnum í íþróttamálum okkar,
segir almannarómur, sniglaði sér með köppunum suð-
ur til Rmar og hélt sig þar vel til hnífs og skeiðar.
Það er ekki nýtt, að íþróttafrömuðir snigla sér í reis-
t ur en gallinn er sá, að of margir þeirra koma allt-
.1 af aftur. Væru ekki einhver ráð til þess, að leyfa
þessum sniglurum að komast út, en meina þeim heim-
K ferðina með öllu.
Grein Jónasar
Framhald af 4. síðu
hyggju og kostgæfni. Hugur
samborgarannia sannar honum
að rétt hefir verið stefnt milli
blindskerja yfirstandandi tíma.
Mánudagur 26. september 1960.
Sigfús Halldórsson er til-
tölulega ungur maður, en Helgi
Valtýsson er 83 ára. Vel ber
hann aldurinn. Helgi hefur ára
tugum saman verið einhver lífs
glaðasti og fjörmesti aldamóta-
maðurinn. Hann hefur verið for
göngumaður í íþróttamálum
þjóðarinnar, einn af þýðingar-
meistu vakningarmönnfum ung
mennafélaganna. Rithöfundur og
skáld á flestum vegum ljóðmáls
ins. Enn er Helgi brennandi á-
hugamaður um öll íslenzk mál
efni, sem horfa til viðreisnar
landi og þjóð. Enn ann hann
æskustöðvum sinum milli
austfirzku blágrýtisfjallanna
með hrifningu og tilfinningu
æskumannsins. Samtíðin ann
með öðrum hætti. Hver kynslóð
hefur sínar lífsvenjur. En hið
ósvikna æskufjör Helga Val-
týssonar getur gefið ungum
samferðamönnum glögga hug-
mynd um hve heitt sá eldur
brann sem gerði aldamótakyn-
slóðinni fært að lyfta grettistök
um á öllum sviðum þjóðlífsins.
LYGAFRÉTT UM SLAGSMÁL
Sögusagnir um niikil og
afdrifarík slagsmál frjás-
íþróttamanna í Þýzkalandi
eru ýkjur einar og álygar,
að því blaðið hefur bezt
frétt.
I ráði er að birta liér í
blaðinu reglulegan íþrótta-
þátt — Iþróttir í stuttu máli
— og í dag birtist fyrsta
greinin, sem fjallar um
knattspyrnu. Greinin er á
7. síðu,
reglulegt
stað.
en fær framvegis
pláss á öðrum
„AImennar“ í glæsil. húsakynnum
Flesf slys og óhöpp á leið í hádegismatinn - borð-
ið á vinnusfað, ósk tryggingafélaga
Almennar tryggingar fluttu um s.l. helgi í hin nýju og glæsi-
legu húsakynni sín við Pósthússtræti, þar sem áður stóð Nora-
Magasin. Öll afgreiðsl hússins fer fram á götuhæð, en á næstu
tveim hæðum eru skrifstofur forstjóra, deildarstjóranna, bók-
hald og ýmsar skrifstofur, sem anna dagiegum rekstri.
Eorstjóri ..Almennc1* Baldvin
Einarsson skýrði blaðamönnum
stutt’ega frá starfi félagsins síð
an það var stofnað fyrir 17
árum. Heíur verk þess dafnað
Nýtt klæðskeraverkstæði að
Bankastræti 6
Nýfízkulegf — fljóf og góð afgreiðsla
S.l. föstudag bauð Haraldur Örn Sigurðsson blaðamönnum
í klæðskeraverkstæði sitt, Bankastræti 6, uppi. Þennan dag
opnaði Haraldur verkstæði sitt, en hann hefur sjá'lfur starfað
hjá Vigfúsi Guðbrandssyni og Co. undanfarin ár, sem sniða-
meistari.
Góð vinnuskilyrði
Afgreiðsla verkstæðis Har-
aldar er mjög smekklega úr
garði gerð, nýtízkuleg í búnaði
og öll vinnuskilyrði hin ákjós-
anlegustu. Kvaðst Haraldur
mundi kappkosta að veita við-
skiptamönnum sínum hina
beztu, og fullkomnustu þjónustu
í hvívetna, sem að klæðskera-
starfinu lyti, hafa jafnan á boð
stólum mikið úrval efnis, fyrsta
flokks vinnu og i öllu vandaða.
Þá lagði Haraldur áherzlu á, að
viðskiptamenn sínir fengju sem
skjótasta og áreiðanlegasta af-
greiðslu.
Nýmaeli
Haraldur skýrði svo frá, að
verkstæði hans myndi auk
venjulegrar verkstæðisvinnu
jafnan hafa á boðstólum allt
það, sem tiiheyrir samkvæmis-
fatnaði t. d. skyrtur, vesti og
annað, sem mönnum mun þykja
heppilegt að geta fengið á ein-
um og sama stað. Verkstæið er
allt hið bezta úr garði gert.
vel, félagið er nú með stærstu
tryggingarfélögum landsins með
útbúum í Hafnarfirði og Akur-
eyri en umboðsmenn í öllum
kaupstöðum og hreppum lands-
ins; en iðgjöldin hafa aukizt
frá byrjun upp í kr. 30 millj.
Hin nýja bygging, sem er hin
glæsi'egasta og fyllir í skarðið
milli Reykjavíkurapóteks og
Hótel Borgar, er björt og rúm-
góð, en mesta athygli vekur
gríðarhár hitamælir, sem byggð
ur er utan á húsið, Austurvall-
armegin, og kynnir vegfarend-
um hita eða kuldastig höfuð-
staðarins. Hefur mælir þessi
þegar náð vinsældum, því jafn-
an viil almenningur vita unr
veðrið. Rekstur Almennra verð
ur með sama hætti og áður„
nema að afgreiðslan verur opin.
í hádeginu, en i því sambandi
sagði framkvæmdastjórinn,.
vilja tryggingarfélög, að skrif-
stofufólk og þeir sem úti vinna
fari ekki heim í mat, því flest
slys og óhöpp í umferð ske ein-
mitt er kapphlaupið um að ná
,,í matinn“ stendur sem hæst.
Fólk á að snæða á vinnustað
í hádeginu en með fjölskyld-
unni að kvöldi.